Jón Óttar kominn með réttarstöðu sakbornings í Samherjamálinu

Gögn sem sak­sókn­arar í Namibíu hafa lagt fram sýna að Jón Óttar Ólafsson átti í sam­skiptum við einn þeirra manna sem grun­aðir eru um að hafa þegið mútur í skiptum fyrir kvóta á árinu 2016 og á árinu 2019.

Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starfað hefur fyrir Samherja árum saman, var kall­aður til yfir­heyrslu hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara nýverið vegna rann­sóknar þess á meintum mútu­greiðslu, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti Samherja í tengslum við starf­semi sam­stæð­unnar í Namibíu. Við þær yfir­heyrslur fékk Jón Óttar rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu.

Það þýðir að sjö manns hið minnsta hafa fengið slíka stöðu við yfir­heyrslur hjá emb­ætt­inu frá því að fyrsta lota þeirra hófst í fyrra­sumar. Kjarninn greindi frá því fyrir nákvæm­lega einu ári síðan að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, væri á meðal sex ein­stak­linga sem fengu rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu við yfir­heyrslur í júlí 2020.

Hinir fimm sem voru þá kall­aðir inn til til yfir­heyrslu og fengu rétt­ar­stöðu sak­born­ings við hana voru Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Samherja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árnason, fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, Aðal­steinn Helgason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, og Jóhannes Stef­áns­son.

Jóhannes var fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu um tíma en lék lyk­il­hlut­verk í því að upp­ljóstra um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um málið sem birt­ist í nóv­em­ber 2019.

Tölvupóstar benda til aðildar

Jón Óttar starf­aði í Namibíu fyrir hönd Samherja um nokk­urra ára skeið, frá árinu 2016. Samherji hefur haldið því fram í yfir­lýs­ingum að í starfi hans hafi falist að kanna hvort ekki væri allt með felldu í rekstr­inum.

Í grein­ar­gerð sem rík­is­sak­sókn­ari í Namibíu sendi frá sér í lok júlí síð­ast­lið­ins voru birtir tölvu­póstar sem Jón Óttar sendi úr net­fangi dótt­ur­fé­lags Samherja 13. sept­em­ber 2016 til tveggja ann­arra manna sem hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu, Ingvars Júl­í­us­sonar og Egils Helga Árna­sonar. Þar sagð­ist hann meðal ann­ars hafa verið að ræða við einn þeirra sex manna, James Hatuikulipi, sem sitja í fang­elsi í Namibíu vegna gruns um að þiggja mútur frá Samherja, í tengslum við greiðslur fyrir kvóta frá fyr­ir­tæk­inu Namgomar, sem Samherji fékk kvóta frá á grund­velli milli­ríkja­samn­ings við Angóla.

Tölvupóstur sem Jón Óttar Ólafsson sendi og fylgdi með nýlegra birtri greinargerð saksóknara í Namibíu.
Tölvu­póstur sem Jón Óttar Ólafsson sendi og fylgdi með nýlegra birtri grein­ar­gerð sak­sókn­ara í Namibíu.

Í grein­ar­gerð sem sak­sókn­ari í Namibíu lagði fram í kyrr­setn­ing­ar­máli í lok síð­asta árs kom þó fram að Jón Óttar hafi átt í tölvu­póst­sam­skiptum við James í maí árið 2019. Því virð­ast gögn benda til þess að Jón Óttar hafi verið í hlut­verki milli­göngu­manns milli Samherja og þeirra sem grun­aðir eru um mútu­þægni í að minnsta kosti tæp þrjú ár.

Til­gangur sam­skipt­anna var að lýsa yfir áhyggjum um að yfir­völd myndu upp­götva leyni­greiðslur sem Samherji greiddi inn á banka­reikn­ing félags­ins Tunda­vala, skráð í eigu Hatuikulipi, í Dúbaí. Nokkur hund­ruð millj­ónir króna runnu inn á reikn­inga þess frá Samherja á árunum 2014 til 2019. Í sam­skipt­unum reyndi Jón Óttar að slá á áhyggjur um að yfir­völd í Namibíu gætu haft upp á þeim greiðslum sem farið höfðu inn á leyni­reikn­inga í Dúbaí. „Við höfum lokað þeim reikn­ingum. Auk þess hafa þeir ekki burði til þess að fara á eftir flóknum aflands­við­skiptum,“ sagði í einum tölvu­póst­inum.

Allt að sex ára fangelsi

Þau brot sem grunur er um að hafi verið framin í Sam­herj­a­mál­inu varða 109. og 264. grein almennra hegn­ing­ar­laga um mútur. Í fyrr­nefndu grein­inni segir að hver sem gefur, lofar eða býður opin­berum starfs­manni, gjöf eða annan ávinn­ing, sem hann á ekki til­kall til, í þágu hans eða ann­arra, til að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans skal sæta fang­elsi allt að fimm árum eða sektum ef máls­bætur eru fyrir hendi. „Sömu refs­ingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opin­berum starfs­manni, erlendum kvið­dóm­anda, erlendum gerð­ar­manni, manni sem á sæti á erlendu full­trúa­þingi sem hefur stjórn­sýslu með höndum, starfs­manni alþjóða­stofn­unar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofn­unar eða á opin­beru lög­gjaf­ar­þingi í erlendu ríki, dóm­ara sem á sæti í alþjóð­legum dóm­stóli eða starfs­manni við slíkan dóm­stól, í því skyni að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans.“

Í 264. grein segir að hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinn­ings af broti á hegn­ing­ar­lögum eða af refsi­verðu broti á öðrum lögum, eða umbreytir slíkum ávinn­ingi, flytur hann, sendir, geymir, aðstoðar við afhend­ingu hans, leynir honum eða upp­lýs­ingum um upp­runa hans, eðli, stað­setn­ingu eða ráð­stöfun ávinn­ings skuli sæta fang­elsi allt að sex árum.

Þá eru einnig til rann­sóknar meint brot á ákvæðum kafla XXXVI í almennum hegn­ing­ar­lögum, sem fjalla um auðg­un­ar­brot. Við brotum á ákvæðum þess kafla liggur fang­els­is­refs­ing sem getur verið allt að þrjú til sex ár.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem var lagt niður í núver­andi mynd fyrr á þessu ári og varð eftir það deild innan Skatts­ins, er síðan að rann­saka hvort raun­veru­legt eign­ar­hald á allri Sam­herj­a­sam­stæð­unni sé hér­lendis og hvort að ákvörðun um að greiða skatta ann­ars­staðar en hér sé þar með stór­felld skatta­snið­ganga.

Starfaði lengi fyrir Samherja

Jón Óttar starf­aði fyrir Samherja að ýmsum verk­efnum um margra ára skeið. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem nýr upp­lýs­inga­full­trúi sam­stæð­unnar veitti Stund­inni í dag þá starfar hann ekki lengur fyrir Samherja.

Í skaða­bóta­máli sem Samherji höfð­aði gegn Samherja, og lauk í fyrra, gerði fyr­ir­tækið skaða­bóta­kröfu upp á 306 millj­ónir króna. Tæpur helm­ingur þeirrar upp­hæðar, alls 135 millj­ónir króna, var vegna kostn­aðar við störf Jóns Óttars fyrir fyr­ir­tækið. Skaða­bóta­kröf­unni var hafnað og Samherji tap­aði mál­inu í hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Kjarninn greindi frá því í ágúst í fyrra að Jón Óttar hefði allt frá því að umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar um við­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu birt­ist þann 12. nóv­em­ber 2020 verið tíður gestur á Kaffi­fé­lag­inu, kaffi­húsi í miðbæ Reykja­vík­ur, einatt til að hitta á og ná tali af blaða­mann­inum Helga Seljan, einum þeirra sem leiddi umfjöll­un­ina, en þar hitt­ist hópur fólks iðu­lega á morgn­ana til að spjalla um dag­inn og veg­inn.

Kjarninn greindi enn fremur frá því að Jón Óttar hefði ítrekað sent Helga skila­boð, bæði í gegnum SMS og Facebook-­reikn­ing eig­in­konu sinn­ar. Ingi Freyr Vil­hjálms­son, blaða­maður á Stund­inni sem fjallað hefur um Sam­herja, fékk einnig send skila­boð þar sem honum var hótað „um­fjöll­un“.

Þá hefur Jón Óttar komið fram í mynd­böndum sem Samherji lét vinna, þar sem blaða­menn sem fjallað hafa um Samherja hafa verið bornir þungum sökum.

Hann var einnig á meðal þeirra ein­stak­linga sem mynd­uðu hina svoköll­uðu „skæru­liða­deild Samherja“, sem meðal ann­ars safn­aði saman upp­lýs­ingum um blaða­menn, reyndi að gera þá ótrú­verð­uga með ýmsum hætti og jafn­vel van­hæfa til að fjalla áfram um Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár