Verðbólga 1,4 prósent - Hækkun húsnæðisverðs vekur verðbólgudrauginn

Verð­bólga á árs­grund­velli mælist nú 1,4 pró­sent, sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun.

Vísitala neyslu­verðs miðuð við verð­lag í apríl 2015 er 427,0 stig (maí 1988=100) og hækk­aði um 0,14% frá fyrri mán­uði. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis er 395,6 stig og hækk­aði um 0,05% frá mars, að því er segir

Kostn­aður vegna lið­ar­ins hús­næði, hiti og raf­magn hækk­aði um 0,43% (áhrif á vísi­töl­una 0,12%). Munar þar einna mest um hækkun hús­næðis að und­an­förnu, sem hefur verið skörp og þannig hækkað verð­bólg­una.

Vísi­talan án hús­næðis hefur lækkað um 0,1%. Und­an­farna þrjá mán­uði hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 1,8% sem jafn­gildir 7,6% verð­bólgu á ári (6,7% verð­bólgu fyrir vísi­töl­una án hús­næðis).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár