Reykjavíkurborg ætlar ekki að greiða fyrir aukinn kostnað við Sundabraut

Borg­ar­stjóri hefur hafnað kröfum vega­mála­stjóra um að borgin greiði fyrir mis­mun­inn vegna dýr­ari fram­kvæmdar við Sunda­braut. Nýtt kostn­að­ar­mat þarf að fara fram.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, hefur ítrekað kröfu borg­ar­innar um að svokölluð ytri leið verði valin Sunda­braut. Vega­gerðin hefur lagt til að farin verði svokölluð innri leið yfir Klepps­vík í stað­inn. Borgin ætlar ekki að greiða kostn­að­ar­mis­mun vegna auk­ins kostn­aðar við ytri leið­ina.

Um er að ræða gam­alt þrætu­epli sem komst aftur í umræð­una í vor. Þverun Klepps­víkur er talin verða mik­il­væg sam­göngu­bót í borg­inni og létta álagi af öðrum stofnæðum til og frá og innan Reykja­víkur. Borgin hefur hins vegar alltaf reiknað með því að Sunda­braut verði lögð í göng undir Klepps­vík og þá mun utar en Vega­gerðin telur hag­kvæm­ast.

Fjallað var um allar til­lögur um legu Sunda­brautar í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans í sumar. Þar var mis­mun­andi sjón­ar­miðum velt upp og helstu ásteyt­ing­ar­steinum lýst.

Innri leiðin kostar minna

Samkvæmt því kostn­að­ar­mati sem liggur fyrir þá eru fram­kvæmdir við innri leið Sunda­brautar mun ódýr­ari en ytri leiðin, hvort sem ytri leiðin yrði lögð í stokk undir vík­ina eða á hábrú.

Vega­mála­stjóri hefur þess vegna lagt til að innri leiðin verði fram­kvæmd og hótað því að borgin verði rukkuð um mis­mun­inn ef ytri leiðin verði farin. Jón Gunn­ars­son, ráð­herra sam­göngu­mála, hefur tekið undir þessi sjón­ar­mið vega­mála­stjóra. Formleg til­laga Vega­gerð­ar­innar hefur hins vegar aldrei borist Reykja­vík­ur­borg.

[links]Dagur skrifar í viku­legum pósti sínum sem barst á föstu­dag­inn að borgin hafni þessum hug­myndum. „[S]líkri reglu hefur aldrei verið beitt á Íslandi og miklu nær að setj­ast að einu borði, upp­færa kostn­að­ar­á­ætl­anir og rýna bestu lausnir í þessu mik­il­væga og stóra máli.“

Kostn­að­ar­á­ætl­an­irnar sem enn er stuðst við eru síðan 2004 og þess vegna ljóst að þær áætl­anir séu orðnar úteltar. Í því kostn­að­ar­mati var gert ráð fyrir að innri leiðin myndi kosta 7,3 millj­arða króna, miðað við 11,6 millj­arða króna fyrir ytri leið á hábrú og 13,1 millj­arð króna fyrir sömu leið í jarð­göngum.

Snýst um umferðardreifingu og álag

Ástæða þess að Reykja­vík­ur­borg hefur lagt áherslu á að ytri leiðin verði farin snýr að skipu­lagi borg­ar­innar. Betri dreif­ingu umferðar má ná með ytri leið­inni; Í stað þess að dreifa umferð um þegar umferð­ar­þunga Miklu­braut, verði hægt að veita umferð­inni um Sæbraut­ina í auknum mæli.

Í bréfi Dags borg­ar­stjóra til Hreins Har­alds­sonar vega­mála­stjóra segir einnig að Reykja­vík­ur­borg hafi átt í sam­ráði við íbúa í Laug­ar­dal og Graf­ar­vogi þar sem sátt hafi náðst um að ytri leiðin í göngum væri ákjós­an­leg­ust. „Stefna borg­ar­stjórnar um Sunda­braut í göngum hefur ekki breyst. Formenn íbúa­sam­taka í Graf­ar­vogi og Laug­ar­dal hafa stað­fest að afstaða íbúa­sam­tak­anna sé jafn­framt óbreytt,“ skrifar Dagur í bréfi sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár