Fátt bendir til þess að pólitískt veðmál Vinstri grænna gangi upp

Vinstri græn hafa ekki mælst með minna fylgi frá vor­mán­uðum 2013. Flokk­ur­inn hefur tapað um 55 pró­sent af kjós­endum sínum frá því að sitj­andi rík­is­stjórn var sett á lagg­irnar, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur á sama tíma bætt við sig fylgi.

Vinstri græn sett­ust fyrst í rík­is­stjórn snemma árs 2009, til að taka til eftir banka­hrunið. Eftir kosn­ing­arnar það ár sátu þau þar með Sam­fylk­ing­unni og mynd­uðu fyrstu hreinu tveggja flokka meiri­hluta­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar. Flokk­ur­inn hafði fengið 21,7 pró­sent upp úr kjör­köss­unum í apríl 2009, sem var það mesta sem hann hafði nokkru sinni fengið. Það met stendur enn. Til að setja þann árangur í annað sam­hengi þá fengu Vinstri græn 3.789 færri atkvæði en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í þeim kosn­ingum, og á þeim mun­aði tveimur pró­sentu­stigum.

Þegar komið var að því að kjósa næst, í apríl 2013, var staða önnur. Katrín Jak­obs­dóttir var nýtekin við Vinstri grænum og Stein­grímur J. Sig­fús­son var sestur aftur í stjórn­mála­vagn­inn sem hann átti mestan þátt í að smíða árið 1999, þótt hann ætti enn eftir tvö kjör­tíma­bil þangað til hann lýkur þing­ferli sem teygir sig inn á fimm mis­mun­andi ára­tugi.

Breyt­ing­arnar virt­ust ekki ætla að skila miklu, að minnsta kosti fyrst um sinn. Í könnun MMR sem birt var 14. apríl 2013 mæld­ist fylgi Vinstri grænna 6,7 pró­sent. Afhroð blasti við í kosn­ing­unum tveimur vikum áður en gengið var til þeirra.

Staðan batn­aði á þeim tíma og í síð­ustu könnun MMR fyrir kosn­ing­arnar 2013 mæld­ist fylgið 11,6 pró­sent. Nið­ur­staðan varð á þeim nótum, eða 10,9 pró­sent fylgi. Nú mun­aði hins vegar 13,5 pró­sentu­stigum og tæp­lega 26 þús­und atkvæðum á Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sá forsætisráðherra sem flestir vildu

Flokk­ur­inn náði vopnum sínum í stjórn­ar­and­stöðu og fékk 15,9 pró­sent þegar kosið var haustið 2016. Hann varð næst stærsti flokkur lands­ins í fyrsta sinn þótt mun­ur­inn gagn­vart Sjálf­stæð­is­flokknum væri enn svip­aður, eða um 25 þús­und atkvæði. Þar skiptu per­sónu­legar vin­sældir Katrínar ekki síst miklu máli. Hún var sá stjórn­mála­leið­togi sem flestir lands­menn vildu sjá sem for­sæt­is­ráð­herra. Stuðn­ingur við það, um 40 pró­sent í októ­ber 2016, var langt umfram mælt fylgi Vinstri grænna. 

Margir höfðu bundið miklar vonir við að hún myndi leiða félags­hyggju­öfl aftur til valda. Á meðal þeirra var rit­höf­und­ur­inn Jón Kalman Stef­áns­son sem skrif­aði grein á Kjarnann sem birt­ist í maí 2015. Þar sagði hann meðal ann­ars að vinstra- og miðju­fólk gæti „ann­að­hvort haldið upp­teknum hætti, gengið sundruð til næstu kosn­inga og þannig tryggt áfram­hald­andi mis­skipt­ingu. Eða fylkt okkur á bak við þann eina stjórn­mála­mann sem hefur getu og vin­sældir til að leiða breið­fylk­ingu í anda R-list­ans: Katrínu Jak­obs­dóttur[...]Ef hún hefur áhuga á að hrifsa sam­fé­lagið úr járn­klóm hags­muna, nýfrjáls­hyggju og lýð­skrumara, þá verður hún að stíga fram og sam­eina vinstri– og miðju­menn að baki sér. Og aðrir for­ystu­menn eiga að víkja. Þeir eiga að taka hags­muni þjóðar fram yfir per­sónu­legan metnað og verða ridd­arar í sveit Katrínar Jak­obs­dótt­ur. Hennar tími er ein­fald­lega runn­inn upp. Hvort sem henni líkar betur eða verr.“

Leiðinlegasti tíminn í stjórnmálum

Í þeim kosn­ingum voru sjö flokkar kjörnir á þing, sitj­andi stjórn kol­féll og engin sýni­leg stjórn var í kort­unum. Því þurfti að leita óhefð­bund­inna leiða til að mynda rík­is­stjórn og úr varð stjórn­ar­kreppa sem stóð fram í jan­úar 2017. Við tók erfið stjórn­ar­kreppa enda erfitt að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn.

Í bók­inni Hreyfing rauð og græn – Saga VG 1999-2019 eftir Pétur Hrafn Árnason sagn­fræð­ing, sem kom út fyrir ári i í til­efni af 20 ára afmæli Vinstri grænna, var þetta tíma­bil gert upp. Þar var haft eftir Katrínu að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar sem áttu sér stað eftir kosn­ing­arnar 2016, og dróg­ust í marga mán­uði, hafi verið mjög óvenju­legur tími í íslenskri póli­tík. „Ég myndi segja að hann hafi verið sá leið­in­leg­asti sem ég hef upp­lifað á mínum póli­tíska ferli. Ég eig­in­lega lærði í þessum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum – í eitt skipti fyrir öll – að maður þarf mjög að gæta þess hverjum maður treystir í póli­tík. Þetta er stað­reynd sem stjórn­málin standa frammi fyrir eftir hrunið, traust milli manna er af mjög svo skornum skammti.“

Úr varð að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, sem skipuð var Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð, var mynduð í jan­úar 2017.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar varð skammlíf.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar varð skamm­líf.

Tími Katrínar var ekki runn­inn upp. Hún myndi hins vegar fá nýtt tæki­færi fyrr en flesta grun­aði.

Lands­rétt­ar­málið og Uppreist-æru málið ollu stjórn­inni stór­kost­legum erf­ið­leikum og öllum sem fjöll­uðu um stjórn­mál, eða tóku beinan þátt í þeim, var ljóst að rík­is­stjórnin myndi lík­ast til ekki verða lang­líf. Hún sprakk um miðjan sept­em­ber og boðað var til nýrra kosn­inga.

Í lok októ­ber 2017 var svo kosið í annað sinn á einu ári.

Nafnlausi áróðurinn sem virkaði

Fylgi Vinstri grænna var í hæstu hæðum á þessum tíma. Í könnun MMR mán­uði fyrir kosn­ingar mæld­ist það um 25 pró­sent. Það féll hins vegar hratt á þeim mán­uði. Í áður­nefndri bók sagði Katrín að hún væri nokkuð viss um að nafn­laus áróður, sem var fram­settur af stuðn­ings­mönnum hægri afla með mynd­böndum á Facebook og Youtube þar sem tugir þús­und sáu, hafi skipt þar máli. „Tillögur VG í skatta­málum voru gerðar tor­tryggi­legar og það hafði heil­mikil áhrif. Fylgið féll jafnt og þétt og að lenda í slíkri vörn strax í upp­hafi er þrælerfitt í kosn­inga­bar­áttu.“

Á end­anum fékk flokk­ur­inn 16,9 pró­sent, sem gerði hann að næst stærsta flokki lands­ins. Vinstri græn bættu samt ein­ungis við sig einum þing­manni.

Eftir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við Sam­fylk­ingu, Pírata og Fram­sókn­ar­flokk heima hjá Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sóknar, í Hruna­manna­hreppi var slitið eftir fjóra daga fóru af stað þreif­ingar milli Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks. Í bók­inni segir enda að áhugi innan allra þeirra flokka á slíku sam­starfi hafi verið „verst geymda leynd­ar­málið í póli­tík­inni“ á þeim tíma.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir tók form­lega við völdum í lok nóv­em­ber 2017.

Afhroð í borgarstjórnarkosningum

Tveir þing­menn Vinstri grænna, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, studdu ekki myndun rík­is­stjórn­ar­innar né stjórn­ar­sátt­mál­ann og hafa í dag bæði sagt sig úr flokknum. 

Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið við sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem margir innan Vinstri grænna líta á sem höf­uð­and­stæð­ing flokks­ins í stjórn­málum, var risa­stórt póli­tískt veð­mál.

Flokk­ur­inn kann­aði hvernig sam­starfið væri að mæl­ast fyrir í könnun árið 2018. Þar var leitað álits 2.437 ein­stak­linga úr félaga­skrá Vinstri grænna og 2.979 úr handa­hófs­kenndu úrtaki. Nið­ur­staðan var að ein­ungis 44 pró­sent flokks­manna sem tóku þátt í könn­un­inni voru ánægðir með störf rík­is­stjórn­ar­innar.

Betri mæl­ing fékkst á stöð­una í lok maí 2018, þegar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fóru fram. Nið­ur­staðan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem fylgi Vinstri grænna mæld­ist mest í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna árið áður, var afhroð. Í Reykja­vík, þar sem for­maður flokks­ins býður fram, fékk flokk­ur­inn ein­ungis 2.700 atkvæði, eða 4,6 pró­sent. Í Kópavogi, næst stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, voru atkvæðin 910 og hlut­fallið 5,7 pró­sent. Í Hafn­ar­firði fékk flokk­ur­inn 776 atkvæði eða 6,7 pró­sent.

Steingrímur kveður sviðið

Nú eru rúmir tíu mán­uðir til kosn­inga. Stein­grímur J. Sig­fús­son, sem hefur tryggt að Norð­aust­ur­kjör­dæmi hefur verið sterkt vígi, til­kynnti nýverið að hann ætl­aði að hætta á þingi í aðdrag­anda næstu kosn­inga og því liggur fyrir að nýr odd­viti mun leiða í kjör­dæm­inu. Óli Hall­dórs­son hefur þegar til­kynnt fram­boð í það hlut­verk. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, sem var í öðru sæti á list­anum haustið 2017, sæk­ist líka eftir því hlut­verki. Flestir við­mæl­endur Kjarnans, jafnt innan sem utan Vinstri grænna, eru sam­mála um að Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, sem hefur setið sem þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður frá 2016, sé líka að máta sig við odd­vita­sætið. Hann er frá Siglu­firði og festi nýverið kaup á hús­næði þar, sem gaf þeim get­gátum byr undir báða vængi. Vinstri græn voru næst stærsti flokk­ur­inn þar í síð­ustu kosn­ingum, fengu 88 atkvæðum færri en Sjálf­stæð­is­flokkur og alls 19,9 pró­sent allra greiddra atkvæða. Þar spilar per­sónu­fylgi Stein­gríms, sem hefur á ára­tuga­löngum ferli beitt sér mikið fyrir kjör­dæmið, til dæmis í stór­iðju- og sam­göngu­málum, stóra rullu. Alls óvíst er að spor­göngu­fólk hans nái að við­halda því fylgi.

Steingrímur J. Sigfússon bauð sig fyrst fram til þings árið 1978 og náði fyrst kjöri árið 1983. Hann mun stíga af sviðinu árið 2021.
Stein­grímur J. Sig­fús­son bauð sig fyrst fram til þings árið 1978 og náði fyrst kjöri árið 1983. Hann mun stíga af svið­inu árið 2021.

Vinstri græn eru í ýmis konar öðrum vanda. Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR mæld­ist fylgi flokks­ins ann­ars vegar 7,5 og hins vegar 7,6 pró­sent. Það er minnsta fylgi sem hann hefur mælst með í könn­unum MMR frá því í apríl 2013, eða í sjö og hálft ár. Fylgið er áhyggju­efni fyrir Vinstri græn af nokkrum ástæðum.

Líkt og Kjarninn greindi frá í grein­ingu um miðjan síð­asta mánuð þá hefur stuðn­ingur við Vinstri græn hrunið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í kosn­ing­unum 2017 fengu Vinstri græn til að mynda 21,5 pró­sent atkvæða í Reykja­vík norður, þar sem Katrín Jak­obs­dóttir leiddi list­ann. Það var mesta fylgi sem flokk­ur­inn fékk í nokkru kjör­dæmi.

Greining Kjarnans, sem byggði ann­ars vegar á könn­unum MMR fyrir og eftir síð­ustu kosn­ingar og hins vegar á tveimur könn­unum sem gerðar voru í októ­ber og nóv­em­ber 2020, sýndi að fylgið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er nú tæpur helm­ingur þess sem það var fyrir rúmum þremur árum síðan.

Þá hefur MMR mælt fylgi Vinstri grænna meira í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins fyrir síð­ustu þrjár þing­kosn­ingar, þótt það hafi alltaf verið innan skekkju­marka. Sú nið­ur­staða bendir samt sem áður til þess að fylgi Vinstri grænna sé frekar ofmetið í könn­unum MMR en van­metið.

Enginn tapað meiru en Vinstri græn

Enginn flokkur hefur tapað meira fylgi en Vinstri græn það sem af er kjör­tíma­bili. Alls hafa 9,3 pró­sentu­stig horfið. Ef sú staða sem nú mælist kæmi upp úr kjör­köss­unum yrði það versta nið­ur­staða Vinstri grænna frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1999 og yrði í fyrsta sinn frá árinu 2007 sem flokk­ur­inn fengi ekki yfir tíu pró­sent stuðn­ing í kosn­ingum.

Þegar staðan er borin saman við hina stjórn­ar­flokk­anna tvo er aug­ljóst hver það er sem tapar mestu á þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem stendur að mæl­ast með 1,9 pró­sentu­stigi meira en hann fékk haustið 2017 og með fylgi sitt í hæstu hæðum miðað við síð­ustu ár, þar sem 27,1 pró­sent lands­manna segj­ast styðja flokk­inn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á í miklum erf­ið­leikum og stefnir hrað­byrði á sína verstu nið­ur­stöðu í Íslands­sög­unni, en fylgið mælist nú 3,1 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi og ein­ungis 7,6 pró­sent lands­manna segj­ast ætla að kjósa flokk­inn. Sam­an­lagt hafa þessir tveir flokkar því tapað 1,2 pró­sentu­stigi á sama tíma og Vinstri græn hafa tapað 55 pró­sent af fylgi sínu.

Ógn frá vinstri

Í bók­inni eftir Pétur Hrafn sagn­fræð­ing, sem kom út fyrir ári síðan, var meðal ann­ars reynt að leita skýr­inga á því hvað hefði farið úrskeiðis hjá Vinstri grænum í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, þegar fylgið fór úr 25 pró­sentum í 16,9 pró­sent á mán­uði. Ein skýr­ingin sem þar var viðruð er að Flokkur fólks­ins, sem hafi höfðað til hinna minna meg­andi, hafi náð umtals­verðum árangri á loka­metr­unum sem skil­aði flokknum í fyrsta sinn inn á þing. Fylgi flokks­ins hefði, sam­kvæmt könn­unum, lækkað hjá þeim sem höfðu ein­ungis grunn­skóla­próf en var hærra en hjá nokkrum öðrum flokki hjá þeim sem voru háskóla­mennt­aðir.

Í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018 voru Vinstri græn ekki ein­ungis að glíma við að Flokkur fólks­ins tók til sín atkvæði, sem skil­aði þeim flokki inni borg­ar­full­trúa, heldur líka að komið var rót­tækt afl vinstra megin við Vinstri græn, Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem gekk mun betur að höfða til vinstri­s­inn­aðra kjós­enda.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist nú með fimm pró­sent fylgi sem myndi skila honum með menn á þing. Hafa verður þann fyr­ir­vara að flokk­ur­inn á eftir að kynna stefnu­skrá sína fyrir næstu kosn­ingar og hvaða fólk verður á lista, sem er lík­legra til að auka fylgið frekar en hitt. Sú fylg­is­aukn­ing yrði, að minnsta kosti að hluta, sótt til Vinstri grænna.

Sem stendur virð­ist því sem hið risa­stóra veð­mál flokks­ins, að mynda íhalds­sama rík­is­stjórn með þeim flokkum sem Vinstri græn hafa helst stillt sér upp á móti í póli­tískri orð­ræðu síð­ustu ára, sé alls ekki lík­legt til að ganga upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið undanfarið ár