Landsbankinn gefur út skuldabréf í evrum upp á 43 milljarða króna

Lands­bank­inn hf. hefur í dag gefið út skulda­bréf að fjár­hæð 300 millj­ónir evra, eða sem nemur um 43 millj­örðum króna. Skulda­bréfin eru til þriggja ára, bera fasta þrjú pró­sent vexti og voru seld á kjörum sem jafn­gilda 295 punkta álagi (2,95 pró­sent) ofan á milli­banka­vexti í evrum. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum.

Í sept­em­ber 2015 réð Lands­bank­inn fjár­fest­ing­ar­bank­ana Citi, Deutsche Bank og J.P. Morgan til þess und­ir­búa ofan­greinda útgáfu. Fjár­festa­fundir fóru fram dag­ana 21. – 25. sept­em­ber 2015 í Kaup­manna­höfn, Osló, Helsinki, Stokk­hólmi og London. Skulda­bréfin voru seld til fag­fjár­festa og bár­ust til­boð fyrir 470 millj­ónir evra frá tæp­lega 60 fjár­festum. Skulda­bréfin eru gefin út undir ein millj­arðs evra Euro Medium Term Note (EMTN) skulda­bréfara­mma Lands­bank­ans og verða bréfin skráð í kaup­höll­ina á Írlandi.

Lands­bank­inn mun nýta and­virði útgáf­unnar til þess að fyr­ir­fram­greiða veð­tryggð skulda­bréf í erlendum gjald­miðlum sem eru á gjald­daga í októ­ber 2016 og að hluta skulda­bréf sem eru á gjald­daga í októ­ber 2018, sbr. frétta­til­kynn­ingu bank­ans frá 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, að því er segir í til­kynn­ingu.

„Lands­bank­inn mun áfram vinna að því að breikka og styrkja fjár­mögnun bank­ans í erlendum gjald­miðlum, meðal ann­ars í þeim til­gangi að end­ur­fjár­magna útistand­andi veð­tryggð skulda­bréf bank­ans á hag­stæð­ari kjörum. Í fram­haldi af útgáf­unni í dag, en með fyr­ir­vara um að slita­stjórn LBI hf. ljúki nauða­samn­ingi með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags, mun Lands­bank­inn jafn­framt greiða upp eft­ir­stöðvar 2018 gjald­daga veð­tryggðra skulda­bréfa bank­ans í erlendum gjald­miðlum, sam­tals að jafn­virði um 22 millj­arðar króna. LBI hf. mun frá sama tíma ávaxta sömu fjár­hæð í erlendum gjald­miðlum með bundnum inn­lánum til októ­ber 2018 hjá Lands­bank­anum, á kjörum sem sam­svara 1,50% álagi ofan á milli­banka­vexti,“ segir í til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum.

Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í til­kynn­ingu að útgáfan breikki fjár­mögnun og styrki Lands­bank­ann. „Útgáfan í dag er ánægju­legur áfangi og afar mik­il­væg fyrir Lands­bank­ann enda breikkar hún og styrkir veru­lega fjár­mögnun bank­ans í erlendri mynt. Aðgangur Lands­bank­ans að erlendum fjár­magns­mörk­uðum byggir m.a. á sterkri fjár­hags­stöðu bank­ans sem end­ur­spegl­ast í því að í sumar hækk­aði alþjóð­lega láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækið Standard & Poor’s láns­hæf­is­ein­kunn Lands­bank­ans í BBB-, og er ein­kunnin jafn­framt með jákvæðum horfum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár