Ólafur Ragnar hefur ekki ákveðið hvort hann bjóði sig fram - Telur sig ekki vera ómissandi

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, hefur ekki ákveðið hvort hann bjóði sig fram aftur í emb­ættið á næsta ári. Ólafur Ragnar hefur setið sem for­seti frá árinu 1996 og hefur því gegnt emb­ætt­inu í 20 ár þegar yfir­stand­andi kjör­tíma­bili hans lýkur á næsta ári.

For­set­inn var gestur útvarps­þátt­ar­ins Sprengisands í dag. Þar sagð­ist hann finna fyrir því að margir vilji að hann haldi áfram sem for­seti. Það finni hann víða, síð­ast á lands­leik karla­lands­liðs Íslands í gær. „Þegar ég mæti í skóla og ann­ar­staðar er alltaf að koma fólk að mér og segja að ég eigi að halda áfram, það sýnir mér að þetta er í hugum margra.“

Ólafur Ragnar segir að hann muni ræða það við eig­in­konu sína og dætur hvort hann eigi að bjóða sig fram á ný og að sú ákvörðun verði kynnt í nýársávarpi hans. Ástæðan fyrir því hann ákvað að bjóða sig aftur fram árið 2012 hafi verið vegna óska fjölda fólks um að gera það. "Þá var þjóðin að heyja margar örlagaglímur á mörgum sviðum. Þessum glímum er að mörgu leyti lokið. Ég hef aldrei talið mig ómissandi og ef ég tek þá ákvörðun um að hætta vona ég að því verði sýndur fullur skiln­ingur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár