Mynd: Birgir Þór Harðarson

Svona eru líkur frambjóðenda á að komast á þing

Sitjandi þing­menn, og einn flokks­for­maður, eru í mik­illi hættu á að missa þing­sæti sitt í kom­andi kosn­ingum. Mikil end­ur­nýjun er í kort­unum en alls 27 fram­bjóð­endur sem sitja ekki á þingi eru lík­legir til að ná þing­sæti.

Kjarninn og Baldur Héð­ins­son fram­kvæma kosn­inga­spá í aðdrag­anda hverra kosn­inga. Frá árinu 2014 hefur spáin verið keyrð tví­vegis fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og 2020, og þing­kosn­ingar 2016 og 2017. Hún er því keyrð nú, í aðdrag­anda kosn­inga 2021, í sjö­unda sinn.

Samhliða er keyrð þing­sæta­spá sem byggir á reikni­lík­ani Baldurs. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var í gær­morgun, 15. sept­em­ber. Reikni­líkanið úthlutar svo kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Þeir fram­bjóð­endur sem mæl­ast inni eins og er, alls 63 tals­ins, eru merktir með app­el­sínu­gulum þrí­hyrn­ing.

Þegar lík­indin eru skoðuð er vert að hafa sér­stak­lega í huga að mjög lítil breyt­ing á fylgi Flokks fólks­ins getur gert það að verkum að hann eigi rétt á jöfn­un­ar­sætum og fái þá að lág­marki þrjá þing­menn. Sú breyt­ing myndi breyta mynd­inni mikið. Þá má einnig benda á að í sumum kjör­dæmum er mjög mjótt á munum milli síð­asta fram­bjóð­anda sem nær kjöri og þess sem er næstur inn. Í sumum til­fellum er mun­ur­inn á lík­indum þeirra ein­ungis eitt pró­sentu­stig.

Píratar og Viðreisn ná inn manni í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sam­kvæmt þing­sæta­spánni, þeim Einari Brynj­ólfs­syni sem sat áður á þingi fyrir Pírata frá haust­mán­uðum 2016 og fram að kosn­ingum 2017, og Eiríki Birni Björg­vins­syni, fyrr­ver­andi bæja­stjóra á Akureyri. Viðreisn náði síð­ast inn manni í kjör­dæm­inu í kosn­ing­unum 2016 þegar þáver­andi for­maður flokks­ins, Benedikt Jóhann­es­son, fór fram í kjör­dæm­inu. Sós­í­alista­flokk­ur­inn nær líka inn sam­kvæmt spánni, sem myndi þýða að Haraldur Ingi Har­alds­son gæti verið á leið á þing.

Mið­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin og Vinstri græn tapa einum manni hver frá 2017 en Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur halda sínum tveimur.

Það er þó mjótt á munum. Síðasti maður Fram­sókn­ar­flokks er með 58 pró­sent líkur á að kom­ast inn og full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins 59 pró­sent. Annar maður á lista Vinstri grænna, Jódís Skúla­dóttir, mælist með 52 pró­sent líkur á að kom­ast inn. Það þarf því lítið að breyt­ast til að þing­manna­hópur kjör­dæm­is­ins stokk­ist enn meira upp.

Píratinn Magnús Norðdahl nær inn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og tekur seinna þing­sætið af tveimur sem Mið­flokk­ur­inn náði í kosn­ing­unum 2017 á kostnað Sigurðar Páls Jóns­sonar, sitj­andi þing­manns flokks­ins. Hann á litlar sem engar líkur sem stendur á að ná inn, en þing­sæta­spáin sýnir lík­indi hans til að ná inn miðað við stöðu mála í kosn­inga­spá Kjarnans vera tvö pró­sent.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Framsókn halda sínum tveimur þing­sætum og Vinstri græn og Sam­fylk­ingin sínu eina. Seinni fram­bjóð­andi Fram­sókn­ar­flokks sem mælist inni, Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir, er þó lítið lík­legri en Helga Thorberg, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins, til þess að ná inn í kjör­dæm­inu. Líkur Lilju Rann­veigar eru 44 pró­sent en líkur Helgu 43 pró­sent. Skammt á hæla þeirra kemur Guð­mundur Gunn­ars­son, odd­viti Við­reisnar, með 41 pró­sent líkur.

Tölu­verðar breyt­ingar gætu orðið í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Þar eru Sós­í­alista­flokk­ur­inn að mæl­ast inni, sem þýðir að Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins og helsti tals­maður hans, tekur að óbreyttu sæti á Alþingi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sömu­leiðis að ná inn manni í þessu kjör­dæmi ólíkt því sem gerð­ist 2017. Sá maður er Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, sem tók mikla póli­tíska áhættu á að færa sig á möl­ina úr örygg­inu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Líkur hans á að ná inn mæl­ast nú 72 pró­sent.

Sam­fylk­ingin virð­ist ætla að bæta við sig þing­manni í Reykja­víkur norður sem þýðir að Jóhann Páll Jóhanns­son myndi setj­ast á þing. Píratar ættu að halda sínum tveimur þing­mönnum og með því næði sitj­andi þing­mað­ur­inn Andrés Ingi Jónsson inn fyrir annan flokk en hann náði kjöri fyrir 2017, þegar hann var í fram­boði fyrir Vinstri græna. Viðreisn heldur sínum eina þing­manni.

Þegar nýir ná inn þurfa ein­hverjir að tapa. Og í þetta sinn bendir allt til þess að það séu Vinstri græn, sem tapa einum þing­manni, og Sjálf­stæð­is­flokkur, sem tapar líka einum. Báðir þessir flokkar fengu þrjá þing­menn kjörna í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum. Mesta athygli vekur að miðað við þessa nið­ur­stöðu nær Brynjar Níelsson, sitj­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, ekki inn sam­kvæmt spánni. Það munar þó vart neinu á Brynjari og síð­asta manni sem mælist inni, Stein­unni Þóru Árna­dóttur hjá Vinstri grænum. Og skammt á hæla þeirra kemur sitj­andi þing­maður Við­reisnar, Jón Steindór Valdi­mars­son með 44 pró­sent líkur á þing­sæti.

Flokkur fólks­ins myndi sömu­leiðis tapa eina þing­mann­inum sem hann náði inn 2017, en sá, Ólafur Ísleifs­son, ent­ist þó ekki lengi í flokknum og færði sig til Mið­flokks­ins eftir Klaust­ur­málið svo­kall­aða.

Skipting þing­sæta milli flokka í Reykja­vík suður er eins og í Reykja­vík norður. Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Píratar ættu að halda sínum tveimur þing­mönnum hver og Sam­fylk­ingin ætti að bæta við sig einum, sem þýðir að Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, sem leiddi lista Vinstri grænna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir fjórum árum, næði inn fyrir nýja flokk­inn sinn.

Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mælist með 73 pró­sent líkur á þing­sæti sem ætti að skila henni í höfn aðrar kosn­ing­arnar í röð í kjör­dæmi þar sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur oft átt í erf­ið­leikum. Viðreisn heldur sínum eina þing­manni í kjör­dæm­inu en líkur vara­for­manns flokks­ins, Daða Más Krist­ó­fers­sonar, á því að ná inn eru þó nán­ast þær sömu og annar þing­maður Vinstri grænna, Orra Páls Jóhann­es­sonar, hefur á því að ná kjöri. Líkur Orra Páls mæl­ast 45 pró­sent en Daða 44 pró­sent. Skammt á hæla þeirra kemur Birgir Ármanns­son, sitj­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem er vanur því að eyða kosn­inga­nótt­inni inni og úti af þingi. Líkur Birgis á þing­sæti mæl­ast nú 42 pró­sent.

Stóru tíð­indin úr Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður eru þó sú að þar bendir allt til þess að flokks­for­maður falli af þingi. Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, mælist ein­ungis með 30 pró­sent líkur á að ná þing­sæti.

Í Suð­ur­kjör­dæmi tapar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einum þing­manni að óbreyttu. Nýi odd­vit­inn Guðrún Haf­steins­dóttir og Vil­hjálmur Árnason, sitj­andi þing­maður, ná örugg­lega inn sam­kvæmt þing­sæta­spánni en Ásmundur Frið­riks­son þarf að gefa aðeins í eigi hann að sitja áfram á þingi.

Flokkur fólks­ins tapar líka sínum eina þing­manni þótt Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir sé ekki langt frá því að mæl­ast inni, en 41 pró­sent líkur eru á því að hún nái kjöri.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn heldur sínum tveimur þing­mönnum og Píratar, Sam­fylk­ing og Vinstri græn sínum eina. Það gerir Mið­flokk­ur­inn sömu­leiðis en hag­fræð­ing­ur­inn Erna Bjarna­dóttir, sem situr í öðru sæti á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu og hefur verið áber­andi í aug­lýs­ingum flokks­ins í aðdrag­anda kosn­inga, á ekki nema þriggja pró­senta líkur á því að verða kjörin á þing sem stendur.

Þeir tveir flokkar sem ná inn þing­manni í kjör­dæm­inu, og höfðu ekki slíkan áður, eru Viðreisn og Sós­í­alista­flokkur Íslands.

Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Kraginn svo­kall­aði, er fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins og hefur flesta þing­menn, eða 13 tals­ins. Það hefur lengi verið eitt sterkasta vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, enda heima­kjör­dæmi Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns hans. Flokk­ur­inn fékk fjóra þing­menn kjörna fyrir fjórum árum og miðað við þing­sæta­spánna verður ekki breyt­ing þar á. Allir fjórir sitja nú þegar á þingi en dóm­ar­inn Arnar Þór Jónsson, sem situr í fimmta sæti á lista flokks­ins, á ein­ungis tíu pró­sent líkur á því að ná inn.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, nær örugg­lega inn ásamt sjón­varps­mann­inum fyrr­ver­andi Sigmari Guð­munds­syni miðað við þing­sæta­spánna og heldur báðum sæt­unum sem Viðreisn fékk 2017.

Sam­fylk­ingin og Píratar bæta bæði við sig einu þing­sæti sam­kvæmt spánni sem þýðir að Guð­mundur Andri Thorsson myndi sitja áfram á þingi og Gísli Rafn Ólafsson kæmi nýr þangað inn. Þá næði Sós­í­alista­flokk­ur­inn að óbreyttu inn manni í kjör­dæm­inu.

Mið­flokk­ur­inn myndi tapa sínum manni ef kosið yrði í dag sem þýðir að Karl Gauti Hjalta­son, sem reyndar var kjör­inn á þing fyrir Flokk fólks­ins árið 2017, yrði ekki áfram á þingi. Flokkur fólks­ins myndi sömu­leiðis ekki ná inn og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son falla af þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár