Óræð yfirlýsing Ólafs Ragnars - var hann að tilkynna brotthvarf sitt?

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, gaf út óræða yfir­lýs­ingu um fram­hald sitt á for­seta­stóli í ræðu sinni við þing­setn­ingu í dag.

Ólafur Ragnar sagði í ræð­unni „þegar ég nú, sam­kvæmt umboð­inu sem þjóðin fól mér, set Alþingi í síð­asta sinn flyt ég þing­inu í senn djúpa virð­ingu mína og ein­lægar þakkir.“ Margir hafa litið svo á að með þessu sé Ólafur Ragnar að boða að hann bjóði sig ekki fram þegar for­seta­kosn­ingar fara fram næsta sumar.

For­set­inn segir hins vegar að hann sé að setja Alþingi í síð­asta sinn „sam­kvæmt umboð­inu sem þjóðin fól“ honum. Slíkt umboð gæti hann end­ur­nýjað ef hann byði sig fram á ný.

Sagðist ætla að tilkynna í nýársávarpi


Ólafur Ragnar sagði í við­tali við Sölva Tryggva­son á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut í lok júlí að hann hefði ekki ákveðið hvort hann hygð­ist bjóða sig fram til emb­ættis for­seta á næsta ári eða ekki, og að hann myndi til­kynna um fram­boð sitt í nýársávarpi sínu um kom­andi ára­mót.

Áður hafði hann sagt í við­tali við Eyjuna á Stöð 2 í nóv­em­ber í fyrra að það væri hefð fyrir því að for­seta lands­ins til­kynntu um hvort þeir hygð­ust hætta eða ekki í nýársávarpi eða við þing­setn­ingu. Enn fyrr, eða í júní í fyrra, sagði hann í við­tali við tíma­ritið Monocle að hann myndi ekki bjóða sig fram. Þá sagði hann samt líka að hann hefði ekki ætlað að bjóða sig fram árið 2010, en svo hafi hann verið hvattur til þess í und­ir­skrifta­söfnun.

Ólafur Ragnar verður búinn að vera for­seti í 20 ár þegar kosn­ing­arnar fara fram á næsta ári, eða fimm kjör­tíma­bil.

Hér að neðan má horfa og hlusta á ræðu for­set­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár