Mynd: Forlagið

Norskur fjallamaður skrifar íslensku hrunsöguna

Svein Harald Øygard hefur skrifað bók um hrun og upp­risu Íslands. Hún ber þess merki að hann er maður sem er laus við hlekki sér­hags­muna sem ger­endur í þeirri sögu bera með sér á hverjum degi, og litar frá­sagnir þeirra af því sem gerð­ist.

Það var líka gott að vera útlend­ingur. Þá þurfti ég ekki að verja neina útgáfu sög­unnar.“ Þetta segir Norð­mað­ur­inn Svein Harald Øygard, sem um tíma var seðla­banka­stjóri á Íslandi, í bók sinni „Í víg­línu íslenskra fjár­mála“ sem kom nýverið út á íslensku.

Í þess­ari stuttu setn­ingu nær hann að skýra út af hverju það var nauð­syn­legt að ein­hver utan­að­kom­andi, ein­hver sem átti ekki neinna hags­muna að gæta á Íslandi, hafi tekið að sér það verk að skrifa sögu íslenska hruns­ins og end­ur­reisn­ar­innar.

Øygard er með­vit­aður um þessa sögu og því reynir hann eftir fremsta megni að segja sög­una óper­sónu­lega. Að láta hana ekki snú­ast um per­sónur og leik­endur heldur þær ákvarð­anir sem voru teknar og þær afleið­ingar sem þær höfðu. Hann býr líka til ímynd­aðan Íslend­ing, Guðmund Þór, sem lendir í nán­ast öllum áföllum sem hrunið leiddi af sér. Um er að ræða til­raun höf­undar til að sýna fram á hversu víð­tæk áhrifin voru á venju­legt fólk. Hún gengur stundum ágæt­lega, en verður stundum of ýkt.

Það að Øygard hafi um nokk­urra mán­aða skeið verið þátt­tak­andi í atburða­rásinni hér­lendis vinnur með honum vegna þess að á þeim tíma hafði hann aðgang að ótrú­legu magni frum­gagna, og gat gert sér grein fyrir við hverja hann þyrfti að tala til að dýpka sög­una. Við vinnslu bók­ar­innar tók hann ríf­lega 90 við­töl, mörg hver við mjög hátt­sett fólk í alþjóð­legu fjár­mála­kerfi, sem varpa nýju ljósi á margt sem átti sér stað bæði fyrir og eftir hrun.

Á meðal þeirra sem hann ræðir við eru erlendir seðla­banka­stjórar, erlendir ráða­menn og íslenskir ráð­herrar, jafnt núver­andi og fyrr­ver­andi. Øygard átti líka sam­töl við stofn­endur, starfs­menn og lyk­il­ráð­gjafa þeirra fjár­fest­ing­ar­sjóða, oft kall­aðir hrægamma­sjóðir, sem hingað komu í kippum eftir hrunið til að hagn­ast á íslenska harm­inum. Lyk­il­fólk í Seðla­banka Íslands ræddi einnig við hann, meðal ann­ars Már Guð­munds­son og Lilja D. Alfreðs­dóttir, sem nú er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra en var á árum áður í stóru hlut­verki innan þeirrar stofn­unar. Davíð Oddsson hafn­aði hins vegar að veita eft­ir­manni sínum við­tal.

Til­gangur Øygard með bók­inni var að „lýsa stóru mynd­inni og þeim kröftum sem heltóku lítið land í upp­hafi 21. ald­ar­innar, einnig þeirri inn­sýn sem það veitir í heim­inn nú og til fram­tíðar.“

Það tekst honum prýði­lega.

Fjallamaður upp úr hatti

Øygard var settur seðla­banka­stjóri eftir að Davíð Oddsson var lát­inn yfir­gefa seðla­bank­ann í kjöl­far laga­breyt­inga. Til­gang­ur­inn með skipun hans var að gefa rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur svig­rúm til að ráða seðla­banka­stjóra til fram­tíðar sem myndi ekki njóta góðs af því í umsókn­ar­ferl­inu að hafa gegnt starf­inu tíma­bundið. Enginn gæti gert til­kall til emb­ætt­is­ins. Því var sú óvenju­lega leið farin að sækja Norðmann sem hafði árin á undan aðal­lega starfað fyrir alþjóð­lega ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McKinsey&Co en hafði auk þess verið skrif­stofu­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í Noregi um tíma á tíunda ára­tugnum. Dregin eins og „kan­ína upp úr hatti“, eins og höf­und­ur­inn lýsir því sjálfur í bók­inni.

Þegar Øygard var skip­aður var mikið lagt upp úr því, hjá þröngum hópi í kringum Davíð Oddsson, að mála hann upp sem ein­hvers­konar fáráð. Davíð sjálfur sagði í ræðu á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks 2009 að Øygard væri „svo lítt þekktur að jafn­vel leit­ar­vél Google finnur hann ekki.“ Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, sem hefur ára­tugum saman sam­tvinnað það að vera pró­fessor í stjórn­mála­fræði og að vera í linnu­lausu klapp­stýru­hlut­verki fyrir áður­nefndan Davíð, hélt þessum mál­stað á lofti síðar. Øygard rekur þetta og vitnar í ummæli um sig sem Hannes lét ítrekað falla, meðal ann­ars á blogg­síðu sinni, sem eru svona: „Maðurinn kom af fjöllum. Hann vissi ekki hvað þetta var.“ Í stað þess að taka þessi orð óstinnt upp þá leikur Øygard sér með þau. Það sem eftir lifir bók­ar­innar lýsir hann sjálfum sér iðu­lega sem fjalla­mann­inum.

Mismunandi sjónarhorn

Líkt og áður sagði er eitt helsta mark­mið Øygard að varpa ljósi á það sem gerð­ist á Íslandi, frá sjón­ar­horni ann­arra sem urðu fyrir áhrifum af því en Íslend­ingar. Frá sjón­ar­horni þeirra sem höfðu fjár­fest hér­lendis og tapað, þeirra sem stýrðu alþjóð­legum seðla­bönkum sem höfðu veru­legar áhyggjur af ógæti­legri hegðun íslensku bank­anna, þeirra sem urðu fyrir tjóni af þeirri ógæti­legu hegðun og þeirra sem græddu á öllu saman.

Greining hans, byggð á ítar­legri rann­sókn­ar­vinnu þar sem nið­ur­staðan var ekki fyr­ir­fram gefin, á því á hverju ákvörð­un­ar­taka um að hjálpa Íslandi ekki meira en raun bar vitni á mis­mun­andi tímum í þessu ferli er trú­verðug og vel rök­studd.

Hannes Hólmsteinn Gissurarsson, og hans greiningar á hrunsögunni, er augljós skotspónn í bók Øygard.
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­arsson, og hans grein­ingar á hrun­sög­unni, er aug­ljós skot­spónn í bók Øygard.

Í stuttu máli er hún þessi: Íslenskir banka­menn fóru offari og þegar ljóst var að þeir áttu sér ekki til­veru­grund­völl nýttu þeir sér fjöl­mörg vafasöm tæki­færi til að halda sér á floti, en gerðu end­an­lega hrunið um leið verra en það hefði þurft að vera. Þeir mis­not­uðu stöðu sína til að verða sér úti um laust fé hjá seðla­bönkum í Lúx­em­borg og Evr­ópu­sam­band­inu, þeir söfn­uðu inn­lánum alþjóð­lega á allt of háum vöxtum í sama til­gangi og svo nýttu þeir sér ást­ar­bréfa­hringrás­ina til að ná sér í allt það fé sem hægt var að ná sér í hjá íslenska seðla­bank­anum.

Og eng­inn hér­lendis vildi hlusta á varn­ar­orð útlend­ing­anna.

Sparisjóðurinn sem vildi skrifstofu í New York

Það er margt kostu­legt, en um leið sorg­legt, sem höf­und­ur­inn lýsir í bók­inni sem hann hefur eftir við­mæl­endum eða kemur úr gögnum sem hann hefur kom­ist yfir.

Øygard ræðir meðal ann­ars hlut­verk Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta, í útrásinni og tekur sem dæmi ræðu sem hann hélt í London 3. maí 2005 þar sem hann var, oftar sem áður, að útskýra yfir­burði íslensku útrás­armann­anna. Ólafur nefndi í þeirri ræðu heilar þrettán ástæður fyrir vel­gengni Íslend­inga, sem létu þá skera sig úr gagn­vart öðrum. Þar nefndi hann sex fyr­ir­tæki sem blómstr­uðu máli sínu til stuðn­ings: Baug, Avion, Actavis, Össur, Kaupþing og Bakkavör. „Af þessum sex fyr­ir­tækjum áttu tvö eftir að verða gjald­þrota, tvö geng­ust undir end­ur­skipu­lagn­ingu og eitt þeirra er erfitt að rekja. Aðeins eitt af þessum sex er enn þann dag í dag öfl­ugt og frum­legt iðn­fyr­ir­tæki,“ segir Øygard í bók­inni. Þetta eina fyr­ir­tæki er Össur.

Hann nefnir líka að norski Olíu­sjóð­ur­inn, stærsti fjár­fest­ing­ar­sjóður heims, hafi áttað sig á stöð­unni á Íslandi mjög snemma. Strax í byrjun árs 2006 fór hann að kaupa skulda­trygg­ingar á íslensku bank­anna vegna þess að hann áleit að það væri eina vit­ræna fjár­fest­inga­tæki­færið í þeim. Þ.e. að veðja á að þeir myndu lenda í veru­legum van­skilum.

Øygard segir að íslensk stjórn­völd hafi ekki boðið for­svars­mönnum sjóðs­ins til lands­ins til að ræða ítar­legar grein­ingar þegar þetta átti sér stað, heldur réð­ust á sjóð­inn í ræðu og riti. Halldór Ásgríms­son, sem var for­sæt­is­ráð­herra á þessum tíma, sagði að gjörn­ing­ur­inn væri brot á sam­nor­rænum varn­ar­samn­ingi gegn ójafn­vægi í fjár­málum, auk þess sem þetta væri ekki til marks um góða sam­búð grann­þjóða.

Øygard greinir frá því að í nóv­em­ber 2007, þegar öllum sem horfðu á efna­hags­reikn­inga íslensku bank­anna af skyn­semi var ljóst að þeir þyrftu að draga veru­lega saman seglin til að lág­marka tjónið sem þeir gætu ollið, hafi öll fram­kvæmda­stjórn Glitnis, um 50 manns, fundað á golf­vell­inum Turn­berry í Skotlandi, sem í dag er í eigu Donald Trump. „Þar var kynnt áætlun um að tvö­falda efna­hags­reikn­ing Glitnis. Sagt er að nokkrir við­staddir hafi sagt skilið við bank­ann skömmu síðar. Þetta hafi verið einum of mikið af því góða.“

Vit­neskjan var líka til staðar innan íslensku stjórn­sýsl­unnar, þótt ekki hafi verið gripið til réttu ákvarð­ana til að dempa stöð­una. Í bók­inni er meðal ann­ars haft eftir starfs­manni Seðla­banka Íslands sem segir frá því að strax í jan­úar 2008 hafi starfs­fólkið byrja á þeim sið að skála í lok hverrar vinnu­viku. „Skál, við lifðum af enn eina vik­una.“

En eitt skýrasta dæmið sem Øygard nefnir um sjúk­dóms­ein­kenni á íslenska fjár­mála­kerf­inu sem hefði átt að vera öllum sýni­legt, var þegar að Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík, sú hörmu­lega rekna fjár­mála­stofnun, ætl­aði að opna útibú í New York til að taka þátt í útrás­ar­veisl­unni.

Varð flökurt vegna upplýsinga um banka

Í ljósi þess að þónokkur athygli hefur verið á þeim fjár­mála­glæpum sem framdir voru í aðdrag­anda hruns­ins, bæði í fjöl­miðlum og bóka­skrifum, er ágætt að Øygard sé ekki mikið að dvelja við þá þætti. Það þýðir ekki að hann dragi úr alvar­leika þeirra, enda bendir hann til að mynda á að í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis hafi verið sýnt fram á hversu kerf­is­bundin þau brot voru. Lyk­il­at­riðið í þeirri svika­myllu var fjár­mögnun eigin bréfa, sem margir mark­aðs­mis­notk­un­ar­dómar hafa fallið vegna á und­an­förnum árum, og er eins­dæmi í heims­sög­unni.

Hann greinir þó líka frá því að þegar hann tók við sem seðla­banka­stjóri hafi hann farið fram á það að full­trúi Seðla­bank­ans í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins upp­lýsti hann um ganga mála við skoðun á bönk­unum þremur. „Það voru fréttir um tengsla­netið, um lán til tengdra aðila og önnur mál. Þegar ég sá skýrsl­una um Lands­bank­ann varð ég að fara afsíðis. Mér var orðið svo flök­urt.“

Að hans mati eru ein afdrifa­rík­ustu mis­tökin sem áttu sér stað þau að banna ekki skuld­setn­ingu í öðrum gjald­miðlum en íslensku krón­unni. Þá dylst engum sem les að honum ofbýður það hvernig bank­arnir hög­uðu sér í stöðu­tökum gegn krón­unni.

Öllum hefði átt að vera ljóst að íslenska krónan var ofmetin, en samt héldu bank­arnir áfram að dæla út þessum lánum til heim­ila og fyr­ir­tækja allt fram á það síð­asta. Þegar allt hrundi voru 84 pró­sent bíla­lána til að mynda í erlendum gjald­miðlum.

Bank­arnir þrír voru þá löngu farnir að verja sig fyrir óum­flýj­an­legri lækkun. Kaupþing árið 2005, Lands­bank­inn um haustið 2007 og Glitnir í árs­lok 2007. „Bank­arnir höfðu allir keypt erlendan gjald­miðil fyr­ir­fram, með öðrum orðum höfðu þeir aðgang að erlendum gjald­miðli á fyrir fram ákveðnu verði ein­hvern tíma í fram­tíð­inni. Nú skyldi grætt ef íslenska krónan veikt­ist.“

Vert er að taka fram að ekk­ert af þessu reynd­ist ólög­legt. Það mátti bara fella krón­una með handafli, láta við­skipta­vini sína taka tapið en græða mis­kunn­ar­laust sjálfur á því. Fyrir banka var þetta hins vegar bara piss í skó­inn, þar sem aug­ljóst var að van­skil þeirra við­skipta­vina sem tóku á sig tapið myndu aukast mikið sam­hliða.

Umsáturskenningin

Eitt helsta hrá­efnið í frá­sögn þeirra sem báru ábyrgð á annað hvort bönkum, eft­ir­lits­stofn­unum eða rík­is­stjórn í hrun­inu, þegar þeir hafa reynt að end­ur­skrifa sögu þess síð­ast­lið­inn ára­tug, er að benda á að vondir útlend­ingar hafi svikið okkur. Þetta er oft kallað umsát­urs­kenn­ingin, en í henni felst að ekk­ert sér­ís­lenskt hafi verið við það ástand sem skap­að­ist á Íslandi og olli hrun­inu. Að geisað hafi alþjóð­legt fár­viðri á fjár­mála­mörk­uðum og að Ísland hafi ein­fald­lega verið fórn­ar­lamb þess. Erlend ríki og seðla­bankar hafi neitað að rétta Íslandi hjálp­ar­hönd og þess í stað brugðið fæti fyrir litla eyþjóð.

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fól meira að segja áður­nefndum Hann­esi Hólm­steini Giss­ur­ar­syni, sem átt hefur í við­skipta­sam­bandi við nokkra fyrr­ver­andi lyk­il­starfs- og stjórn­ar­menn hrun­banka við rekstur bóka­út­gáfu sem gefur meðal ann­ars út bækur um þeirra útgáfu af sögu síð­ustu ára, að gera skýrslu um helstu erlendu áhrifa­þætti banka­hruns­ins. Fyrir það fékk hann greitt tíu millj­ónir króna af skatt­fé. Skýrslan tók mörg ár í vinnslu.

Nið­ur­staða hans, sem byggði að mestu á við­tölum við helstu ger­endur í bönk­unum og stjórn­sýsl­unni fyrir hrun, var að íslensku bank­arnir hefðu í raun ekk­ert verið lak­ari en aðrir bankar, að Seðla­banki Íslands, og sér­stak­lega Davíð Odds­son, hafi verið hróp­andi í eyði­mörk­inni og séð allt sem miður fór fyr­ir, og að erlend ríki hafi hagað sér rudda­lega og með óbil­gjörnum hætti gagn­vart Íslandi á ögur­stundu. Hægt hefði verið að bjarga íslenska banka­kerf­inu ef banda­ríski seðla­bank­inn hefði rétt Íslandi hjálp­ar­hönd í formi gjald­eyr­is­skipta­samn­ings.

Fótunum kippt undan skýrslu Hannesar

Til marks um hversu illa unnin skýrsla Hannesar var, og hversu aug­ljós til­gangur hennar til að kom­ast að fyr­ir­fram­gef­inni nið­ur­stöðu var, þá er Davíð Odds­son nefndur 163 sinnum í skýrsl­unni og Icesave 211 sinn­um. Kaup íslensku bank­anna á eigin bréfum með eigin pen­ingum og for­dæma­lausir dómar vegna þeirra eru nefnd einu sinni.

Øygard kippir fót­unum algjör­lega undan þess­ari illa ígrund­uðu, og bein­línis röngu, kenn­ingu með fjöl­mörgum við­tölum við hátt­setta erlenda aðila sem voru beinir þátt­tak­endur í atburða­rásinni.

Í bók­inni er meðal ann­ars rakið stöðu­mat Svía gagn­vart Íslandi. Þar er haft eftir Anders Borg, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, sem sagði: „Við bjuggum til lista í árs­lok 2006 og árs­byrjun 2007 yfir löndin þar sem hættan var mest. Ísland, Lettland og Írland voru efst á blaði.“ Stefan Ingves, þá seðla­banka­stjóri Sví­þjóðar, segir í bók­inni að hans banki hafi farið að hafa áhyggjur á sama tíma. „Þetta hlaut að enda með ósköpum. Ég fór að senda æ fleiri sér­fræð­inga til Íslands. Þeir skoð­uðu höf­uð­stól og eign­ar­hald bank­anna en þeir gátu ekki útskýrt hvaðan þeim bær­ist fjár­magn til þess að halda áfram að vaxa.“ Hann minn­ist þess svo þegar hann dró Davíð Oddsson afsíðis þegar hann var í heim­sókn á Íslandi árið 2006 og sagði: „Það er eitt­hvað að bönk­unum hjá ykkur. Við höfum nokkra reynslu af svona málum. Við lentum í kreppu. Hringdu hvenær sem er og þá getum við rætt málið[...]Hann hringdi aldrei til þess að biðja um hjálp.“ Þess í stað voru nær allar aðgerðir hins opin­bera og íslenska seðla­bank­ans sem olía á eld­inn.

Skakkt númer, hringdu í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Í skýrslu Hannesar, sem skatt­greið­endur greiddu fyrir, er ein helsta álykt­unin sú að banda­rísk stjórn­völd hefðu neitað Íslandi um fyr­ir­greiðslu vegna þess „að Ísland var ekki lengur hern­að­ar­lega mik­il­vægt í þeirra augum.“ Þessi ályktun er jörðuð í bók Øygard af Timothy Geithner, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri New York og síðar fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna.

Timothy Geithner varð fjármálaráðherra Bandaríkjanna í ríkisstjórn Barack Obama.
Timothy Geithner varð fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna í rík­is­stjórn Barack Obama.

Í sam­tali við höf­und­inn segir hann að íslenskir bankar hafi ein­fald­lega ekki verið neitt sér­stak­lega virkir í Banda­ríkj­unum fyrir hrun og höfðu ekki verið að taka lán í Banda­ríkja­dölum. Þess vegna var ekki til staðar ótti um smit frá íslensku bönk­unum inn í banda­ríska kerfið. Fókusinn hafi verið á þau ríki þar sem bankar voru að fjár­magna sig í Banda­ríkja­dölum. Fleiri lönd, eins og Tyrkland, hafi heldur ekki fengið boð um hjálp á þessum tíma.

Þegar Íslend­ingar ósk­uðu eftir gjald­miðla­skipta­samn­ingi eftir hrunið hafi það verið skoðað og Ísland greint af sér­fræð­ingum banda­ríska seðla­bank­ans. Geitner segir að beiðnin hafi verið tekin alvar­lega, en nið­ur­staða grein­ing­ar­innar hafi verið sú að íslenska banka­kerfið hafi verið allt of stórt miðað við þjóð­ar­tekjur og gjald­eyr­is­skipta­samn­ingur myndi ekki bæta ástand lands­ins sem neinu næmi. Yfir­maður hjá banda­ríska seðla­bank­anum bætti við í sam­tali við höf­und­inn að tengsl eig­enda íslensku bank­anna, sem teiknuð voru upp í grein­ing­unni, hafi verið „eitt­hvað flókn­asta kerfi sem ég hef nokkurn tíma séð.“

„Segja má að ef ein­hver hringir frá ríki þar sem banka­kerfið nemur nífaldri vergri lands­fram­leiðslu og fer fram á gjald­eyr­is­skipti sé lík­lega aðeins eitt svar sem kemur til greina,“ segir Geithner í bók­inni. „Því miður, skakkt númer. Hringdu í Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn.“

Sam­an­dregið þá er haft eftir hverjum hátt­settum aðil­anum á fætur öðrum innan lyk­il­stofn­ana erlendra ríkja að við­vör­un­ar­merkin á Íslandi hafi átt að vera öllum sýni­leg. Það voru því ekki óbil­gjarnir útlenskir seðla­bankar eða útlensk stjórn­völd sem skópu íslenska ástandið, heldur aðrir.

„Að því er varðar aðdrag­anda krepp­unnar keppa mats­stofn­anir og end­ur­skoð­endur um fyrsta sætið í synda­sela­keppn­inni við banka­menn, stjórn­völd og eft­ir­lits­að­ila,“ segir Øygard.

Stjórn­völd stóðu ekki undir vænt­ingum og spilltu ekki gleð­inni, eft­ir­lits­stofn­anir gerðu ekk­ert þegar við­vör­un­ar­ljósin voru aug­ljós, end­ur­skoð­endur brugð­ust skyldum sínum og stimpl­uðu aug­ljós­lega röng upp­gjör sem raun­veru­leg. Mats­fyr­ir­tækin hengdu svo háar mats­hæf­is­ein­kunnir utan um háls­inn á bönkum sem áttu ekk­ert erindi í að fá slíkar. „Kerfið hrundi vegna þess að það brast í grund­vall­ar­at­riðum. Bank­arnir huns­uðu grunn­reglur góðra og skyn­sam­legra starfs­hátta í bönkum. Fjár­mála­eft­ir­litið sá ekki grund­vall­ar­bresti í kerf­inu. Ýmist var ekki varað við áhættu eða stjórn­völd sinntu ekki við­vör­unum. Flestir vildu að bank­arnir héldu áfram að vaxa yfir­gengi­lega og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að þeir héldu því áfram.“

Hrósar endurreisninni

Øygard er mun jákvæð­ari þegar kemur að álykt­unum sínum um hvernig end­ur­reisn Íslands hafi tek­ist. Sér­stak­lega fjallar hann umtals­vert um end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins og segir að hún hafi verið eitt helsta afrekið sem var framið hér­lendis. Þá hrósar hann rík­is­stjórn­inni sem tók við völdum snemma árs 2009, sem og öllum rík­is­stjórnum sem setið hafa síðan, fyrir að „takast á hendur það ógeð­fellda verk að fá sam­þykktar erf­iðar ákvarð­anir til þess að koma land­inu aftur í gang.“

Hann rekur líka í löngu máli hversu ein­stök áætlun Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á Íslandi hafi verið í öllu sögu­legu sam­hengi. Hér hafi verið veittur slaki til að fara milli­veg nið­ur­skurðar og þess að verja lyk­il­stoðir vel­ferð­ar­kerf­is­ins, allt innan strangra fjár­magns­hafta. Nið­ur­staðan hafi orðið sú að Ísland hafi breytt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum meira en hann breytti Íslandi.

Sam­an­dregið þá eru þorri þeirra álykt­ana sem Øygard dregur í bók­inni réttar. Banka­menn­irnir, eft­ir­lits­að­il­arnir og stjórn­völd brugð­ust. Almenn­ingur sat uppi með afleið­ing­arnar. Flestar stóru ákvarð­an­irnar sem teknar voru til að bregð­ast við þessu ástandi: Neyð­ar­laga­setn­ingin, upp­setn­ing hafta, afnám sól­ar­lags­á­kvæð­is­ins gagn­vart kröfu­höfum og samn­ing­arnir við þá árið 2015 hafi allt verið réttar ákvarð­anir sem höfðu feiki­lega jákvæð áhrif fyrir íslenskt sam­fé­lag. Eftir standi land sem er komið í ótrú­lega góða efna­hags­lega stöðu ára­tug eftir að risa­vaxið fjár­mála­kerfið, og afar veikur örgjald­mið­ill, hrundi yfir það.

Hann er líka næmur á að greina það sem ekki hefur tek­ist að laga. Seint í bók­inni stendur: „Hrekk­laus maður gæti ímyndað sér að nú, rúmum tíu árum eftir hrunið, hefði orðið til ein­hvers konar sátt í sam­fé­lag­inu um það sem hefði orsakað hrunið, hvar rætur þess lágu, hvað setti það í gang, og hver bar ábyrgð á því. Því er ekki að heilsa. Jafnvel í íslenskum vina­hópi getur umræðan um nýlega atburði í sögu Íslands leitt í ljós mis­mun­andi skoð­anir.[...]Enn þann dag í dag eru margir sem koma við sögu, banka­menn og stjórn­mála­menn, að ráða til sín sagn­fræð­inga til að segja sögur sínar og móta frá­sagnir af atburðum. Ýmsir greiða þeir þeim sjálfir eða skatt­greið­endur eru látnir blæða. Aðrir skrifa bara bækur.“

Ofan­greind bar­átta um sög­una, þar sem ger­endur berj­ast um að segja svart vera hvítt og blautt þurrt, er lyk­il­breyta í því að traust milli almenn­ings og stofn­ana sam­fé­lags­ins hvarf og er enn horfið.

Það blasir við aðkomu­mann­inum, fjalla­mann­inum, Øygard og ætti að blasa við okkur öllum.

Það er mik­ils virði að maður sem er ekki samdauna öllu sem hér hefur gerst síð­ustu tæpu tvo ára­tugi, sem var ekki í MR eða við­skipta­fræði með neinum sem telst til ger­enda hruns­ins eða er náskyldur ein­hverjum sem tók mögu­lega röð rangra ákvarð­ana sem leiddu hörm­ungar, og svo upp­risu, yfir litla örþjóð á eyju í miðju Ball­ar­hafi, hafi tekið sér það fyrir að rann­saka, greina og skrifa sögu sem þessa.

Baráttan um sög­una þurfti á því að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið undanfarið ár