Fjármálaeftirlitið segir lífeyrissjóðum að skýra hvort, hvernig og við hvaða aðstæður megi sparka stjórnarmönnum

Ætluð skugga­stjórnun á líf­eyr­is­sjóðum hefur verið mikið til umræðu á síð­ustu árum. Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur ásakað atvinnu­lífið um hana og öfugt.

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skýr­leika skorti í sam­þykktum 13 af 15 líf­eyr­is­sjóða sem það tók til athug­unar um hvort mögu­legt væri að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna og hvernig staðið skyldi að slíkri aft­ur­köllun. Af þeim sökum telur Fjár­mála­eft­ir­litið að ekki sé „fylli­lega tryggt að starf­semi þeirra gæti talist eðli­leg, heil­brigð og traust[...]ef til ágrein­ings kæmi vegna túlk­unar á ákvæðum sam­þykkta líf­eyr­is­sjóð­anna.“

Í ljósi nið­ur­stöð­unnar hefur Fjár­mála­eft­ir­litið farið fram á að umræddir 13 líf­eyr­is­sjóðir taki sam­þykktir sínar til end­ur­skoð­unar á næsta skipu­lagða árs­fundi, þannig að skýrt verði með óyggj­andi hætti hvort, hvernig og við hvaða aðstæður umboð stjórn­ar­manna yrði aft­ur­kallað.

Í fram­hald­inu mun Fjár­mála­eft­ir­litið taka breyttar sam­þykktir líf­eyr­is­sjóð­anna til skoð­unar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt er á vef Seðla­banka Íslands í dag. Þar er ekki til­greint hvaða líf­eyr­is­sjóðir það eru sem þurfa að end­ur­skoða sam­þykktir sínar.

Ásakanir um skuggastjórnun

Forsaga máls­ins er sú að Fjár­mála­eft­ir­litið hefur haft til skoð­unar hvort sam­þykktir líf­eyr­is­sjóða tryggi nægi­lega vel sjálf­stæði þeirra sem skip­aðir eru í stjórn líf­eyr­is­sjóð­anna. Sú skoðun er til komin vegna ákvörð­unar stétt­ar­fé­lags­ins VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, að skipa nýja stjórn­ar­menn í Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna sum­arið 2019. Það var gert eftir að stjórn VR hafði lýst yfir trún­að­ar­bresti gagn­vart stjórn­ar­mönnum félags­ins hjá sjóðnum vegna sam­þykktar stjórnar hans um hækkun breyti­legra vaxta verð­tryggðra sjóð­fé­laga­lána. Sú hækkun reynd­ist síðar hafa verið óheimil sam­kvæmt ákvörðun Neyt­enda­stofu.

Guðrún Haf­steins­dóttir, þáver­andi vara­for­maður stjórnar og núver­andi stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna fyrir hönd Samtaka atvinnu­lífs­ins, sagði við mbl.is í kjöl­farið að hún sæi ekki hvernig Fjár­mála­eft­ir­litið ætl­aði að sitja hjá í mál­inu „því að þarna er ut­an­að­kom­andi aðili far­inn að vasast í ákvörð­unum stjórn­­ar sem að hann hef­ur ekk­ert vald til að gera. Hann hef­ur ekki boð­vald gagn­vart stjórn­­­ar­­mönn­um sem að hann skip­ar í þessa stjórn, það er al­­veg á hrein­u.“

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi ákvörðun VR um að skipta út stjórnarmönnum sínum.
Guðrún Haf­steins­dóttir gagn­rýndi ákvörðun VR um að skipta út stjórn­ar­mönnum sínum.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, setti stöðu­upp­færslu á Facebook 21. júní 2019 þar sem hann svar­aði þessum aðfinnslum og sagði að lengi hafi verið rök­studdur grunur um skugga­stjórnun af hálfu fyrr­ver­andi stjórn­ar­manna úr röðum Samtaka atvinnu­lífs­ins og því væri bros­legt að slíkar ásak­anir kæmu úr röðum þeirra sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi raun­veru­lega þjónað. „Þessi hörðu við­brögð koma ekki á óvart í ljósi þess að krafa okkar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni er að sjóð­irnir starfi með sið­ferð­is­legri sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi og taki hag almenn­ings (allra sjóð­fé­laga) fram­yfir taum­lausa græðgi og þjónkun við fjár­mála­kerf­ið.“

Fjármálaeftirlitið sendir dreifibréf

Fjár­mála­eft­ir­litið brást við og sendi frá sér dreifi­bréf 3. júlí 2019 til allra líf­eyr­is­sjóða þar sem fram kom að aft­ur­köllun á til­nefn­ingu stjórn­ar­manna sjóða vega að sjálf­stæð­i ­stjórn­a þeirra og að aft­ur­köllun á til­nefn­ingu stjórn­ar­manna sjóða, sem byggi á ósætti til­nefn­ing­ar­að­ila við ein­stakar ákvarð­anir stjórn­ar, geti talist til­raun til beinnar íhlut­unar í stjórnun líf­eyr­is­sjóða, sem með óbeinum hætti færir ákvörð­un­ar­valdið frá stjórn líf­eyr­is­sjóða. „Slíkt vegur að sjálf­­­stæði stjórnar og gengur í ber­högg við almenn sjón­­­­­ar­mið um góða stjórn­­­­­ar­hætt­i,“ sagði í dreifi­bréf­inu.

Ragnar Þór brást við bréf­inu með því að segja að inni­hald þess stað­festi að það væri ekk­ert sem banni þeim að skipta út full­trúum í stjórn líf­eyr­is­sjóða.

Þar lá málið um tíma, eða þangað til að hluta­fjár­út­boð var haldið í Icelandair Group í sept­em­ber í fyrra.

Samtök atvinnulífsins senda erindi

Þann 1. júlí 2020 sendi stjórn VR frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún beindi þeim til­mælum til þeirra stjórn­ar­manna sem VR skipar í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna að snið­ganga eða greiða atkvæði gegn þátt­töku í yfir­vof­andi hluta­fjár­út­boði Icelandair. Það var meðal ann­ars gert á grund­velli þess að Icelandair Group hafði sama dag ákveðið að hætta við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og leita eftir samn­ingum við annan samn­ings­að­ila á hinum íslenska vinnu­mark­aði um fram­tíð­ar­kjör örygg­is- og þjón­ustu­liða hjá félag­inu. Öllum flug­freyjum og flug­þjónum yrði sagt upp og þess í stað áttu flug­menn að taka að sér störf örygg­is­liða um borð tíma­bund­ið. Samtök atvinnu­lífs­ins lýstu yfir stuðn­ingi við ákvörðun Icelandair.

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Þessi ákvörðun var síðar aft­ur­kölluð og samn­ingar náð­ust milli deilu­að­ila.

Samtök atvinnu­lífs­ins ákváðu hins vegar að senda erindi til Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands þar sem þess var óskað að það myndi grípa „til taf­ar­lausra aðgerða, umfram almenn til­mæli til hags­muna­að­ila almennt, til að standa vörð um sjálf­stæði sjóðs­ins og hag sjóðs­fé­laga og þannig tryggja að fag­lega verði staðið að fjár­fest­inga­á­kvörð­unum í sam­bandi við hluta­fjár­út­boð Icelandair.“

Skortur á skýrleika

Í sept­em­ber fór hluta­fjár­út­boð Icelandair Group svo fram og félagið náði mark­miði sínu, að safna allt að 23 millj­örðum krónum í nýtt hlutafé. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna tók ekki þátt í útboð­inu. Ákvörðun um það féll á jöfnum atkvæðum.

Í sama mán­uði brást Fjár­mála­eft­ir­litið við beiðni Samtaka atvinnu­lífs­ins og óskaði eftir upp­lýs­ingum frá öllum líf­eyr­is­sjóðum um hvort þeir hefðu lagt mat á sam­þykktir sínar með hlið­sjón af fram­an­greindum sjón­ar­miðum. Í kjöl­far yfir­ferðar á þeim upp­lýs­ingum og sam­þykktum líf­eyr­is­sjóða hóf Fjár­mála­eft­ir­litið athugun á sam­þykktum 15 líf­eyr­is­sjóða.

Þeirri athugun er nú lokið með þeirri nið­ur­stöðu að það skorti á skýr­leika í sam­þykktum 13 líf­eyr­is­sjóða um hvort mögu­legt sé að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna og hvernig staðið skyldi að slíkri aft­ur­köllun.

Það virð­ist því vera að ekk­ert í sam­þykktum sjóð­anna 13 stæði í vegi fyrir því að skipt væri um stjórn­ar­menn, og þess vegna fer Fjár­mála­eft­ir­litið fram á að sjóð­irnir end­ur­skoði sam­þykktir sínar til að skýra það með óyggj­andi hætti „hvort, hvernig og við hvaða aðstæður umboð stjórn­ar­manna yrði aft­ur­kallað“.

Í fram­hald­inu mun Fjár­mála­eft­ir­litið taka breyttar sam­þykktir líf­eyr­is­sjóð­anna til skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár