Deilur athafnamannanna Róberts Wessman og Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem voru viðskiptafélagar í Actavis á árum áður, hafa ekki farið framhjá neinum. Árum saman hafa þeir deilt um nánast allt sem hægt er að rífast um, sem tengist þeirra sameiginlegu viðskiptafortíð.
Í gær var
nýr kafli í þessum deilum
en þá sökuðu þeir hvorn annan um að vera ekki borgunarmenn fyrir skuldum sem þeir, og fyrirtæki sem þeim tengjast, höfðu stofnað til.
Það er ekki gott fullyrða um hvernig þetta horfir við almenningi
, en líklega brosir venjulegt fólk, sem borgar sínar skuldir um hver mánaðarmót, út í annað yfir þessum deilum. Róbert og Björgólfur Thor hafa báðir samið
um skuldir og persónulegar ábyrgðir sem á þeim hvíldu, þar sem upphæðir voru í spilunum
sem duga til þess að reka frekar mörg venjuleg heimili í langan tíma.
Kannski finnst almenningi þetta frekar hallærislegar og þversagnarkenndar deilur fyrir vikið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir