Hættu að vera dólgur í umferðinni

Ásdís Olsen kennir fólki núvit­und eða mind­ful­ness. Sjálf til­eink­aði hún sér þessa tækni eftir að hafa fengið kvíða­kast og leitað á bráða­mót­töku. Núvitund skapar hug­arró og gerir fólk fært að njóta augna­bliks­ins. Aðferðin hefur bjargað fólki úr sál­ar­háska og gert fólk að umburð­ar­lynd­ari öku­mönnum.

Handleiðsla
Hand­leiðsla Ásdís Olsen hjálpar fólki að ná jafn­vægi í líf­inu með því að kenna því núvit­und. Aðferðin hefur hjálpað fjöl­mörgum til að öðl­ast hug­arró. Sjálf bjarg­aði hún sér frá kvíða með því að nota mind­ful­ness. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég hélt að ég væri að deyja og var send með sjúkra­bíl á braða­mót­töku,“ segir Ásdís Olsen, um aðdrag­anda þess að hún sneri sér að núvit­und, eða mind­ful­ness.

Án þess að vera með­vituð um það var Ásdís með und­ir­liggj­andi kvíða sem braust fram. „Það reynd­ist ekk­ert vera að mér lík­am­lega heldur var hug­ur­inn að leika mig grátt. Ég starf­aði sem háskóla­kenn­ari á þessum tíma, með lífs­leikni sem sér­grein en var síður en svo lífs­leikin. Ég vissi í raun ekki hvernig hug­ur­inn starfar, hvað stýrir upp­lifun minni, líðan og við­brögðum. Með því að læra núvit­und rann upp fyrir mér ljós og það er óhætt að segja að núvit­und hafi gjör­breytti líðan minni og lífi,“ segir Ásdís Olsen sem starfar nú við að kenna Íslend­ingum núvit­und, eða „mind­ful­ness“, til að finna hug­arró og sátt með sjálf­vit­und, kom­ast í jafn­vægi og öðl­ast lífs­ham­ingju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár