Staða mála á húsnæðismarkaði er snúin. Óumdeilt er að skortur er á litlum og meðalstórum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu, og þá þykir byggingarkostnaður með lóðaverði vera það hár, að verktakar treysta sér ekki til þess að fara út í nýbyggingar.
Samtök iðnaðarins segja nú vera um 2.400 íbúðir í byggingu en til þess að anna eftirspurn
þyrftu þær að vera 3.000 til 3.600
.
Alvarleg staða getur skapast, ef ekki verður byggt nægilega til að mæta mikilli eftirspurn. Húsnæðisskortur getur þá leitt til mikilla verðhækkana, bæði á fasteigna- og leiguverði. Tíminn vinnur ekki með þeim sem fara með þennan mikilvæga málaflokka, bæði á sveitarstjórnar- og landsmálastigi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir