Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar - Brottför

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Brottför


Ég á von á barni. Það voru frétt­irnar sem ég tók með mér á túr­inn. Ég á ekk­ert svo­leiðis fyrir. Ég er him­in­lif­andi og dauð­skelk­aður.

Við lögðum í hann um fjögur að morgni. Eins og venju­lega voru menn ýmist mjög lítið eða ósofnir. Á Leifs­stöð tók svo við þetta venju­lega streð, að tékka inn heila þung­arokks­hljóm­sveit. Tals­verðum til­fær­ingum og 385 kílóum af far­angri síðar sett­umst við svo upp í flug­vél­ina. Sumir sváfu, þar á meðal ég sem náði því í svona 40 mín­útur. Þá var ég þó búinn að horfa á kvik­mynd­ina Hross í oss. Ég er enn að melta hvort mér fannst hún full­komið kjaftæði eða full­komin meist­ara­snilld. Í það minnsta kemur ekk­ert annað en þetta tvennt til greina. Ég mynda mér betri skoðun á þessu fljót­lega. Við flugum til München og lentum þar um hádeg­is­bil. Þar sótti bíl­stjór­inn okkur.

Robert bíl­stjóri er vinur okkar. Hann keyrði okkur allan Evrópu-túr­inn í fyrra og þannig kynnt­umst við honum. Robert er Tékki, á okkar reki í aldri og eitt það almesta ljúf­menni sem hægt er að hugsa sér. Hann hafði ekki hugsað sér að taka þennan túr með okkur, hann er orð­inn svo­lítið þreyttur á djobb­inu. Þegar nær dró höfðum við sam­band við hann og þá féllst hann á að taka hálfan túr­inn. Þegar enn nær dró lét hann okkur vita að hann skyldi keyra hann allan, fyrst þetta værum nú við. Auðvitað eru það örugg­lega svo­lítið upp­færð sann­indi, en þó er það svo að okkur er óskap­lega vel til vina, og að vera fastur á svona túr með fólki sem þér líkar ekki við er ekk­ert grín. Að hafa þennan snill­ing við stýrið er alger­lega ómet­an­legt því hann er ekki aðeins skemmti­legur og vel gef­inn, hann er líka besti bíl­stjóri í vetr­ar­braut­inni. Við verðum á ferð­inni í tæp­lega 50 daga og slík ferð með bíl­stjóra sem þú treystir ekki er hreint ógeð, sér í lagi þar sem við sofum í kojum í bílnum og ferð­umst á meðan. Á ferðum sínum hittir maður oft svefn­vana þung­arokk­ara sem hvíl­ast ekki vegna þess að bíl­stjór­inn er fáviti, keyrir harka­lega og illa, og eins er erfitt að festa svefn á fleygi­ferð eftir mis­jöfnum vegum ef maður finnur til van­traust. Ég gæti skrifað rit­gerð um Robert. Kannski geri ég það bara. Seinna.

Bíllinn sem við erum á er mjög áþekkur þeim sem við vorum á í fyrra. Fremst er bíl­stjór­inn (döh), þar fyrir aftan eru átta sæti, fjögur á hlið í hægra megin, og tvö og tvö með borði á milli vinstra megin. Þar fyrir aftan er örlítil eld­hús­að­staða, kaffima­sk­ína, örbylgju­öfn og kælir. Beint á móti er neyð­ar­kló­sett sem ber að nota sem minnst. Í fyrra var ekk­ert kló­sett. Þá pissuðum við í þartil­gerðar þvag­flöskur, nema reyndar ég og Þrási sem héldum bara í okkur. Aftast í bílnum eru svo koj­urnar, níu tals­ins, þrjár aft­ast sem liggja þvert og þrjár og þrjár með­fram sitt­hvorri hlið­inni. Aftan í bílnum hangir svo þokka­leg kerra sem geymir tæki og tól og boli og diska og far­angur og alls­konar. Þessi lýs­ing hljómar auð­vitað eins og hér sé á ferð­inni risa­stór rúta en það nú ekk­ert þannig, því þetta er bara svona ferkar stór kálfur sem búið er að breyta. Það var gert í Tyrk­landi og Robert er ekk­ert nema pass­lega ánægður með þá aðgerð. Þetta er samt ágætis bíll og hér líður okkur vel. Sem er gott, því hér verðum við næstu 6-7 vik­urnar.

Ég fékk end­an­legar stað­fest­ingar um vænt­an­legt barn fljót­lega eftir að við lögðum af stað frá flug­vell­inum og var hylltur í kjöl­farið. Í München fórum við á veit­inga­stað hvar ég pant­aði mér steik og rauð­vín. Eftir það fékk ég mér vindil. Og svo duttum við eig­in­lega bara í það. Við hlust­uðum á tón­list og stopp­uðum í vega­sjoppum, keyptum okkur vistir og vín og héldum áfram. Stefnan var sett á Feneyjar. Klukkan sirka 11 að stað­ar­tíma (við erum klukku­tíma á undan Íslandi) logn­að­ist ég út af í koj­unni minni, sæll og glaður með á að giska 250 sam­ofnar hugs­anir í koll­inum. Þá hafði ég reyndar þegar notað neyð­ar­kló­settið einu sinni, sem er baga­legt því ég var búinn að rífa svo mikið kjaft og berja mér á brjóst að ég gæti haldið í mér enda­laust. Ég piss­aði ekk­ert á síð­asta túr. Núna tók mig svona 5 tíma að gef­ast upp.

Robert stopp­aði í nótt til að leggja sig. Ég var sof­andi og man ekki nákvæm­lega hvenær, en ég rumskaði stuttu eftir að hann lagði i hann aftur. Þá var klukkan kannski hálf8. Eins og fyrr segir settum við stefnu á Feneyjar, en þar spilum við reyndar alls ekki í kvöld. Fyrsta giggið er í Treviso núna á eftir, en þar sem Feneyjar eru ekki nema í 45 kíló­metra fjar­lægð tókum við þá ákvörðun að túrist­ast smá þar. Og það var alveg ljóm­andi. Við röltum og sigldum og átum og skoð­uðum svo vit­an­lega þessa fárán­legu borg. Það verður nú seint sagt að þetta sé praktískt. Ég er ekk­ert hissa á því að mal­bik sé vin­sælla til gatna­gerðar en vatn, en þetta er auð­vitað sér­stakt og skemmti­legt. Ég bjóst samt við meiru held ég. Túrism­inn er alger­lega að sliga borg­ina, líkt og heim­inn allan. Ég sá engan syngj­andi gondóla­ræð­ara og skran­búð­irnar eru voða frá­hrind­andi. En jájá, þetta er mjög töff og göngut­úr­inn mjög hressandi.

Núna sitjum við í bílnum á leið til Treviso. Nú tekur við að hitta fólk, end­ur­nýja kynni við suma og kynn­ast öðrum. Það er alltaf smá spenna svona í upp­hafi túrs en það er nú yfir­leitt skemmti­legt. Ég pant­aði fána fyrir ferð­ina, svo­kallað Back Drop, sem við hengjum fyrir aftan okkur meðan við spilum. Ég var auð­vitað með allt niðrum mig tíma­lega og lét því fram­leið­and­ann senda fán­ann beint á tón­leika­stað­inn í Treviso. Af reynslu get ég sagt að Ítalinn er ekki ábyggi­leg­asta skepna jarð­ar­innar. Það er því aðeins fiðr­ingur í mér með þetta. Ef fán­inn finnst ekki erum við pínu fokkt.

Hólí kræst, ég er að verða pabbi.

Meist­ara­leg dags­ins: Barn

Sköll dags­ins: Flug­vellir og far­angur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár