Líkir Seðlabankanum við Stóra bróður í 1984

Heiðar Már Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur og fjár­festir, spyr í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag hvers vegna Seðla­banki Íslands haldi lífs­kjörum almenn­ings niðri. Í grein­inni segir hann bank­ann stöðugt hafa hert á höft­unum frá því að þau voru sett á haustið 2008. „Það má líkja mál­flutn­ingi bank­ans við Stóra bróður í bók­inni 1984 þegar hann herðir höftin en segir það gert til þess að losa þau! Seðla­bank­inn er þannig í dag búinn að festa gjald­mið­il­inn við um 150 krónur á evr­una og tekur allt inn­streymi til sín en leyfir krón­unni ekki að styrkj­ast í takt við auk­inn hag­vöxt,“ segir Heiðar í grein­inni.

„Við þær aðstæður sem nú eru alþjóð­legar, þar sem íslenska hag­kerfið vex langt umfram hið evr­ópska, er frá- leitt að festa gengi gjald­miðl­anna. Seðla­bank­inn reynir svo að hamla þeim þrýst­ingi sem mynd­ast, þegar gengi gjald­mið­ils­ins er of lágt skráð og hag­vöxtur er góður, með því að hækka vexti.“ Heiðar segir að þeir sem fylgst hafi með síð­ustu átján ár viti af sárri reynslu að lágt gengi með háum vöxtum kalli á inn­flæði erlendra spá­kaup­manna.

Seðla­bank­inn hækk­aði í gær stýri­vexti um 0,5 pró­sentur. Heiðar telur að ef Seðla­bank­inn héldi ekki aftur af styrk­ingu krón­unnar með inn­gripum þá þyrfti hann ekki að hækka vext­ina. „Með því myndi hagur almenn­ings á Íslandi batna og hvati erlendra spá­kaup­manna til stöðu­töku í krón­unni minnka að sama skapi. Seðla­banki Íslands ætti nú að standa undir nafni og hætta að hygla erlendum spá­kaup­mönnum á kostnað íslensks almenn­ings,“ segir í lok grein­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár