Helmingi fleiri fasteignir auglýstar til sölu árið 2018

Fast­eignum á sölu­skrá fjölg­aði um 47 pró­sent í fyrra. Mest var aukn­ingin í fram­boði á fast­eignum í fjöl­býli en einnig í sér­býli. Árið 2018 var með­al­verð fjöl­býlis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rúmar 44 millj­ónir og með­al­verð sér­býlis 78 millj­ónir.

Árið 2018 voru rúm­lega 24 þús­und fast­eignir aug­lýstar til sölu á land­inu öllu en það er 47 pró­sent aukn­ing á milli ára en árið 2017 voru rúm­lega 16 þús­und fast­eignir birtar nýjar inn á fast­eigna­sölu­vefi. Það er því ljóst að fram­boð fast­eigna til sölu jókst mikið á nýliðnu ári, á sama tíma og sölu­tími hélst nokkurn veg­inn óbreyttur. Mikil aukn­ing hefur orðið á fram­boði íbúða í fjöl­býl­is­húsum en tæp­lega 60 pró­sent aukn­ing var á nýjum aug­lýs­ingum fast­eigna í fjöl­býli í fyrra. Framboð ann­arra teg­unda hús­næðis fór einnig vax­andi á fast­eigna­mark­aðnum í fyrra en 30 pró­sent aukn­ing var í fjölda aug­lýstra sér­býla á milli ára. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Vaxandi áhugi á fasteignakaupum

Ef bor­inn er sam­an meðal­fjöldi net­flett­inga á hverja nýja fast­eigna­aug­lýs­ingu yfir tíma­bilið 2014 til 2018 kem­ur í ljós að hann fór stig­vax­andi á ár­un­um 2014 til 2017. Hver fast­eign var skoðuð að með­al­tali 550 sinn­um árið 2014 en flett­ing­um á hverri fast­eign sem til sölu var fjölg­aði þar til árið 2017 þegar smellt var að með­al­tali rúm­lega 1.000 sinn­um á hverja fast­eigna­aug­lýs­ingu sem kom ný inn það árið.

Með­al­sölu­tími fast­eigna var um 120 dagar árið 2014, hann jókst svo upp í 150 daga að með­al­tali árið 2015 en lækk­aði svo niður í tæp­lega 100 daga árið 2017. Það má því gera ráð fyrir því að vax­andi áhugi hafi orðið á fast­eigna­kaupum hafi auk­ist síðan 2015, þar sem flett­ingum fjölg­aði á sama tíma og sölu­tími stytt­ist.[adspot]

Á nýliðnu ári dróst fjöldi flett­inga á hverja fast­eign þó ögn saman en hver fast­eign var skoðuð 870 sinnum. Aftur á móti ef horft er til heild­ar­fjölda flett­inga fast­eigna­aug­lýs­inga á net­inu voru þær alls um 21 milljón tals­ins á árinu 2018 sam­an­borið við tæp­lega 17 millj­ónir flett­inga fast­eigna­aug­lýs­inga árið 2017 og 14 millj­ónir árið 2016. Sölutími á höf­uð­borg­ar­svæð­inu breytt­ist lítið árið 2018 frá fyrra ári. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fór með­al­sölu­tími fast­eigna hins­vegar lækk­andi á nýliðnu ári líkt og þró­unin hefur verið allt frá árinu 2015. Til að mynda var tím­inn sem það tók að selja íbúð í fjöl­býli utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um 100 dagar árið 2018 sam­an­borið við um 270 daga árið 2015.

Oftast smellt á auglýsingar í 108 og 104

Á árinu 2018 voru flestar aug­lýstar fast­eignir í miðbæ Reykja­víkur, þar á eftir í Hlíðunum, og síðan Kór­a­hverf­inu í Kópavogi og Garðabæ. Ef horft er til hverfa­skipt­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir póst­núm­erum kemur fram að oft­ast er smellt á hverja aug­lýs­ingu vegna fast­eigna í hverf­unum 108 Reykja­vík og 104 Reykja­vík ef tekið er mið af með­al­fjölda flett­inga. Að með­al­tali voru virkar fast­eigna­aug­lýs­ingar skoð­aðar um 1.200 sinnum í þeim hverfum í fyrra. 

Ef horft er til lands­ins alls kemur í ljós að á nokkrum svæðum eru fast­eigna­aug­lýs­ingar að með­al­tali skoð­aðar oftar en í nokkru hverfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Að með­al­tali var hver aug­lýst fast­eign í dreif­býli í kringum Akureyri skoðuð tæp­lega 1.600 sinnum á árinu 2018 en líkt en þó var fram­boð aug­lýstra fast­eigna þar heldur tak­markað eða innan við 100 eignir. Einnig var hver aug­lýst fast­eign skoðuð að með­al­tali oftar á Akranesi og Akureyri utan Glerár en í nokkru af hverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Leiguverð hækkaði um 8,3 prósent en íbúðaverð um 6,2 prósent

Árið 2018 var í fyrsta skipti síðan 2013 þar sem leigu­verð hækk­aði meira en íbúða­verð milli ára. Leigu­verð hækk­aði um 8,3 pró­sent milli ára á sama tíma og íbúða­verð hækk­aði um 6,2 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Íbúða­verð hafði hækkað um 19 pró­sent milli ára á sama tíma árið 2017 og leigu­verð hækk­aði um 12 pró­sent.

Í skýrsl­unni kemur fram að leigj­endur búa að jafn­aði í minni íbúðum en hús­næð­is­eig­endur og þeir eru færri á hverju heim­ili að með­al­tali. Núver­andi hús­næði leigj­enda er að með­al­tali 78 fer­metrar að stærð sam­an­borið við 142 fer­metra meðal hús­næð­is­eig­enda. Að með­al­tali búa 2,4 ein­stak­lingar á hverju heim­ili leigj­enda sam­an­borið við 2,9 á hverju heim­ili hús­næð­is­eig­enda. Samkvæmt könnun sem Íbúða­lán­sjóður stóð fyrir á dög­unum telja 38 pró­sent leigj­enda hús­næðið sem þeir búa í vera of lítið sam­an­borið við 16 pró­sent hús­næð­is­eig­enda.

Meðalverð sérbýlis rúmlega 78 milljónir króna

Sé litið til síð­ustu tveggja ára hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem gefin er út af Þjóðskrá Íslands hækkað um ríf­lega 20 pró­sennt. Með­al­verð fjöl­býlis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á árinu 2018 sam­kvæmt verð­sjá Þjóð­skrár Íslands var rúmar 44 millj­ónir króna og með­al­verð sér­býlis rúm­lega 78 millj­ónir króna.

Tekjur fólks hafa ekki haldið í við þessar hækk­anir á fast­eigna­mark­aði en launa­vísi­tala sem reiknuð er á lands­vísu og gefin út af Hagstofu Íslands hækk­aði aðeins um 13,3 pró­sent milli des­em­ber 2016 og des­em­ber 2018. 

Lántakendur þurfa hafa meira eigið fé á milli handanna

Þróunin und­an­farna mán­uði og ár hefur verið sú að þrír stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir, LSR, Gildi og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, hafa allir lækkað hámarks­veð­hlut­fall sitt úr 75 pró­sentum niður í 70 pró­sent.Lægstu vextir á verð­tryggðum lánum hafa lækkað und­an­farið en vextir óverð­tryggðra lána höfðu hækkað eilítið síð­ast­liðið haust og því eykst mun­ur­inn á greiðslu­byrði verð­tryggðra og óverð­tryggðra lána enn meira. Þessi breyttu skil­yrði leiða því til þess að lán­tak­endur þurfa að hafa meira eigið fé á milli hand­anna til þess að kaupa sér íbúð eða taka við­bót­ar­lán á hærri vaxta­kjörum.

Í skýrsl­unni segir að aðili sem tók 75 pró­sent lán hjá einum af stærstu líf­eyr­is­sjóð­unum til þess að kaupa sér íbúð á með­al­verði fjöl­býlis árið 2018, sem var eins og áður sagði 44 millj­ónir, þurfti fyrir þessa veð­hlut­falls­lækkun að eiga um 11,1 milljón en hann þarf nú að eiga 13,3 millj­ónir eða fjár­magna kaupin með dýr­ara láni. Taki hann við­bót­ar­lán er mán­að­ar­leg greiðslu­byrði af óverð­tryggðu láni og láni með jöfnum afborg­unum hærra en af verð­tryggðu jafn­greiðslu­láni auk þess sem láns­tím­inn er styttri. Það leiðir til þess að erf­ið­ara er fyrir lán­tak­endur að stand­ast greiðslu­mat þar sem hærri mán­að­ar­legar greiðslur þýða að við­kom­andi þarf að hafa hærri tekjur.

7.000 íbúðir í byggingu

Um 7.000 íbúðir eru þessa dag­ana í bygg­ingu hér á landi sam­kvæmt skýrsl­unni. Af þess­um 7.000 íbúðum eru ríf­lega 5.000 íbúðir í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Næst á eft­ir höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru flest­ar íbúðir í bygg­ingu á Suður­nesj­um eða um 634 tals­ins.

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að alls var 1,5 millj­örðum króna úthlutað úr rík­is­sjóði til fjár­mögn­unar á 267 leigu­í­búðum fyrir tekju- og eigna­minni leigj­endur eða aðra félags­hópa í síð­ari úthlutun árs­ins 2018. Alls hefur stofn­fram­lögum verið úthlutað sex sinnum frá 2016 til 2018, sam­tals um 9 millj­örðum króna, til upp­bygg­ingar eða kaupa á tæp­lega 1.700 íbúðum. Markmið með veit­ingu stofn­fram­laga er að bæta hús­næð­is­ör­yggi efna­minni fjöl­skyldna og ein­stak­linga með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi íbúð­ar­hús­næði til leigu, að því er segir í skýrslu íbúða­lána­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár