Eysteinn, Hanna, Heiðar Már og Róberti Ingi hlutu nýsköpunarverðlaunin

Nýsköp­un­ar­verð­laun for­seta Íslands voru afhent í dag.

Nýsköp­un­ar­verð­laun for­seta Íslands voru afhent við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í dag. Eysteinn Gunn­laugs­son, meist­ara­nemi í tölv­un­ar­fræði við Kungliga Tekniska hög­skolan í Svíþjóð, Hanna Ragn­ars­dóttir, nemi við tölv­un­ar­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík, Heiðar Már Þrá­ins­son, nemi á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands og Róbert Ingi Huld­ars­son, nemi á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands hlutu verð­launin fyrir verk­efnið Þróun á algrími til að finna örvökur í sof­andi ein­stak­lingum með því að skoða önnur líf­merki en heila­rit og sann­prófun á aðferð til að greina orsakir kæfisvefns með stóru gagna­safni.

Leið­bein­endur þeirra voru Halla Helga­dóttir og Jón Skírnir Ágústs­son, yfir­menn á rann­sókn­ar­sviði Nox Medical.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, afhenti fjór­menn­ing­unum verð­launin.

Í til­kynn­ingu segir að verk­efnið hafi falið í sér þróun á nýrri sjálf­virkri grein­ing­ar­að­ferð, sem bygg­ist á gervi­greind, til að finna örvökur í svefni. „Örvökur eru stutt tíma­bil í svefni sem ein­kenn­ast af breyt­ingu í heila­virkni, og er grein­ing þeirra mik­il­væg til að meta svefn­gæði og svefn­tengda sjúk­dóma. Í hefð­bund­inni svefn­rann­sókn eru tekin upp ýmis líf­merki og eru þau greind af sér­fræð­ingi til að finna meðal ann­ars örvökur. Þetta ferli er bæði tíma­frekt og óná­kvæmt og eru því sjálf­virkar grein­ingar afar mik­il­vægar til að spara tíma og auka nákvæmni. Sjálf­virk grein­ing á örvökum er sér­stak­lega erfið þar sem ein­kenni örvaka geta verið ólík milli ein­stak­linga og tölu­vert ósam­ræmi er í grein­ingum sér­fræð­inga. Einnig eru örvökur stuttir atburðir og lít­ill hluti af heildar svefni, sem gerir gervi­greindar aðferðum erfitt fyrir að læra ein­kenni þeirra. Ein­hverjar rann­sóknir hafa verið gerðar á sjálf­virkri grein­ingu örvaka með mis­góðum árangri, en vanda­málið er í raun enn illa leyst. Því til stuðn­ings má nefna að PhysioNet, sem sér um að halda árlegar keppnir í gagna­vinnslu, ákvað að verk­efni keppn­innar í ár væri sjálf­virk grein­ing á örvökum, en verk­efnin sem eru valin eru alltaf klínískt mik­il­væg og ann­að­hvort óleyst eða tor­leyst. Sjálf­virka grein­ing­ar­að­ferðin okkar felur í sér að vinna úr líf­merkjum, svo sem önd­un­ar­merkjum og heila­línu­riti, og reikna úr þeim ýmsa töl­fræði­lega eig­in­leika. End­ur­tækt gervi­tauga­net var þróað og þjálfað til þess að spá fyrir um örvöku­svæði út frá útreikn­uðu ein­kenn­unum. Algrímið var þróað og prófað á tveimur gagna­söfnum, ann­ars vegar opnu gagna­safni frá Physionet, og hins vegar á gagna­safni frá Nox Medical. Nið­ur­stöður voru hvetj­andi, en aðferðin okkar lenti í öðru sæti í alþjóð­legu PhysioNet keppn­inni, en meðal kepp­enda voru lið frá helstu háskólum heims, sem og fyr­ir­tækjum eins og Philips. Algrímið virkar einnig vel á gögn Nox Medical, nákvæmni sjálf­virku grein­ing­ar­innar er sam­bæri­leg og nákvæmni milli sér­fræð­inga, en sjálf­virka aðferðin skilar nið­ur­stöðum mun hraðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Nýsköp­un­ar­verð­laun for­seta Íslands eru veitt árlega þeim náms­mönnum sem hafa unnið fram­úr­skar­andi starf við úrlausn verk­efnis sem styrkt var af Nýsköp­un­ar­sjóði náms­manna sum­arið áður. Verð­launin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í tuttug­asta og fjórða sinn.

Fjögur önnur verk­efni hlutu við­ur­kenn­ingu.

Áhættu­reiknir fyrir bráðar end­ur­inn­lagnir sjúk­linga á legu­deildir geðsviðs Land­spít­ala

Verk­efnið var unnið af Brynjólfi Gauta Jónssyni nema á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands og Þórarni Jón­munds­syni, nema við raun­vís­inda­deild Háskóla Íslands. Leið­bein­endur voru Ragnar Pétur Ólafsson, dós­ent á heil­brigð­is­vís­inda­sviði Háskóla Íslands, Sigrún Helga Lund, töl­fræð­ingur hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og Thor Aspelund, pró­fessor á heil­brigð­is­vís­inda­sviði Háskóla Íslands.

Hlutverk heila­himnumast­frumna í mígreni

Verk­efnið var unnið af Valgerði Jakobínu Hjalta­lín, nema á verk- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands. Leið­bein­andi var Pétur Henry Petersen, dós­ent á heil­brigð­isi­vís­inda­sviði Háskóla Íslands.

Hug­bún­aður til aðstoðar við röðun skurð­að­gerða

Verk­efnið var unnið af Andra Páli Alfreðs­syni, Gunnari Kol­beins­syni og Helga Hilm­ars­syni nemum á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands. Leið­bein­endur voru Rögn­valdur Jóhann Sæmunds­son, dós­ent á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands, Tómas Philip Rún­ars­son, pró­fessor á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands og Vigdís Hall­gríms­dóttir, verk­efn­is­stjóri á aðgerða­sviði Land­spítla - háskóla­sjúkra­húsi.

Nýjar leiðir í inn­nleið­ing­ar­ferli stefnu­mót­unar við efl­ingu máls og læsis á frí­stunda­heim­ilum

Verk­efnið var unnið af Fatou N’dure Baboudóttur og Tinnu Björk Helga­dóttur, nem­endum á félags­vís­inda­sviði Háskóla Íslands, í sam­starfi við og með stuðn­ingi skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar. Umsjón­ar­maður verk­efn­is­ins var Margrét S. Björns­dóttir, aðjúnkt við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands.

Verð­launin í ár eru Urban Nomad vegg­hill­urnar eftir Jón Helga Hólm­geirs­son vöru­hönnuð. Jón Helgi útskrif­að­ist sem vöru­hönn­uður úr Lista­há­skóla Íslands 2012 og með meistara­gráðu í sam­skipta­hönnun frá Malmö Uni­versity 2015. Jón Helgi hefur frá útskrift unnið að fjöl­mörgum hönn­un­ar­tengdum verk­efnum fyrir fyr­ir­tæki eins og IKEA, Bility og Hring eftir Hring. Hönnun hans hefur verið sýnd á sýn­ingum í Stokk­hólmi, Berlín og París auk þess sem umfjöllun hefur birst í tíma­ritum á borð við Wired, Frame og Elle Decor. Jón Helgi starfar nú sem yfir­hönn­uður frum­kvöðla­fyr­ir­tæk­isis Genki Instru­ments auk þess sem að vinna að nýrri hönnun fyrir FÓLK.

„FÓLK er nýtt hönn­un­ar­fyr­ir­tæki sem starfar á mörkum hönn­unar og sjálf­bærni. Markmið FÓLKs er að þróa vörur sem ýta undir sjálf­bær­ari lífstíl í sam­tali og sam­starfi við hönn­uði. Með hönnun má þróa lausnir sem stuðla að betri og líf­væn­legri heims­mynd á margan hátt og mik­il­vægt er að sam­talið vari frá upp­hafi lífs­fer­ils vör­unnar til enda. Samstarf Jóns Helga og FÓLKs er dæmi um það,“ segir í til­kynn­ingu.

FÓLK og Jón Helgi Hólm­geirs­son vöru­hönn­uður hófu sam­starf um hönnun Urban Nomad vegg­hill­anna. Í upp­hafi sam­starfs­ins var lagt upp með að hanna vöru sem færi eftir við­miðum um sjálf­bærni í hönnun (e. ‘susta­ina­ble design principles’). Samfélag okkar breyt­ist hratt og hönnun og vöru­þróun veita ein­stakt tæki­færi til að svara marg­vís­legum breyt­ingum. URBAN NOMAD vegg­hillur og fylgi­hlutir eru ekki síst hann­aðar með þarfir nýrra kyn­slóða í huga, menntað ungt fólk býr í stór­borgum, á færri fer­metrum en áður og flytja oftar innan borga eða milli landa og er umhugað um umhverf­is­mál. Mark­miðið með Urban Nomad vör­unum er að skapa vörur sem eru umhverfis- og sam­fé­lags­vænar og henta þeim hópi fólks sem færir sig oft úr stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár