Mynd: Bára Huld Beck

Hvað verður í næsta efnahagspakka ríkisstjórnarinnar?

Fyrir rúmum þremur vikum kynnti rík­is­stjórnin það sem hún kall­aði stærstu efna­hags­að­gerðir sög­unnar. Fyrir lok þess­arar viku mun hún þurfa að kynna annan aðgerð­ar­pakka sem verður síst umfangs­minni.

Ég segi bara, reynum að koma út úr þessu öllu saman með Ísland í upp­færslu 2.0.“ Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fyrir utan ráð­herra­bú­stað­inn fyrir viku síðan.

Þar var hann að tala um þær efna­hags­legu aðgerðir sem grípa þurfi til vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar hér­lendis, sem fyrir liggur að verða umfangs­meiri en sviðs­myndir gerðu ráð fyrir 21. mars, þegar rík­is­stjórnin kynnti efna­hag­s­pakka sem hún sagði að væri „stærstu ein­stöku efna­hags­að­gerðir sög­unnar“.

„Það er engin spurn­ing að efna­hags­legu áhrifin af því sem er að eiga sér stað eru miklu meiri heldur en við sáum fyrir í upp­hafi mars­mán­aðar,“ sagði Bjarni í við­tal­inu, sem var við Stöð 2, á þriðju­dag í síð­ustu viku. Ef svart­sýn­ustu spár um komur ferða­manna fyrir árið 2020 gangi eftir þá sé verið að horfa á mesta sam­drátt á Íslandi í heila öld.

Í lok viku verður kynntur annar efna­hag­s­pakki til að bregð­ast við ástand­inu eins og það blasir við nú.

En hvað verður í nýja „pakk­anum“? Hvaða áherslur er rík­is­stjórnin að fara að leggja áherslu á þar?

Hverju var lofað síðast?

Aðgerð­irnar sem kynntar voru 21. mars voru margs­konar. Heild­ar­á­hrif þeirra voru sögð vera 230 millj­arðar króna, en beinu nýju fram­lögin vegna hans voru lík­ast til um þriðj­ungur þeirrar upp­hæðar. Sumt þar voru verk­efni sem þegar lágu fyrir, til dæmis í fjár­fest­ingu, önnur mið­uðu að því að fella niður gjöld sem væru hvort eð er ekki að fara að skila sér nema að litlu leyti, eins og afnám gistin­átt­ar­skatts, og sum voru ein­fald­lega tekju­öfl­un­ar­leiðir fyrir rík­is­sjóð, eins og það að heim­ila úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði sem yrði þá skatt­lagður sam­hliða.

Stóru beinu aðgerð­irnar sner­ust um hina svoköll­uðu hluta­bóta­leið, frestun opin­berra gjald­daga, auk­innar fyr­ir­greiðslu fyrir fyr­ir­tæki hjá banka við­kom­andi og því að ráð­ast í fjár­fest­ing­ar­á­tak, aðal­lega í hefð­bundnum innviðum sem útheima margar vinnu­manna­hendur.

Hvernig hafa þær aðgerðir nýst?

Fyrir liggur að sá aðgerð­ar­pakki sem var kynntur í mars hafði fyrst og síð­ast þau áhrif til skamms tíma að gagn­ast fyr­ir­tækjum sem voru að upp­lifa skyndi­legt frost í tekju­öflun og þeim sem ein­fald­lega hafa ekki lengur verk­efni til að leysa fyrir starfs­fólkið sitt.

Það sést best að tæp­lega helm­ingur þeirra um 31 þús­und manns sem fyrir helgi höfðu sótt hafa um hluta­bætur, þar sem Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður greiðir allt að 75 pró­sent af launum þeirra fram til 1. júní, eru ein­stak­lingar sem starfa við far­þega­flutn­inga, í gisti- og veit­inga­þjón­ustu eða annarri ferða­þjón­ustu. Miðað við kostn­að­ar­mat sem unnið var fyrir félags- og barna­mála­ráðu­neytið vegna aðgerð­ar­innar, og Kjarninn hefur undir höndum, mun kostn­aður hins opin­bera vegna þessa verða vel á þriðja tug millj­arða króna fram á núgild­andi tíma­bili.

Aðrar lyk­il­að­gerðir sneru að því að Seðla­banki Íslands afnam svo­kall­aðan sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem stó­r­eykur svig­rúm við­skipta­banka til að lána út fjár­magn. Alls er það við­bót­ar­svig­rúm metið á allt að 350 millj­arða króna. Þá ætl­aði ríkið sér að veita ábyrgðir til lána­stofn­ana sem þær gætu svo nýtt til að veita svokölluð brú­ar­lán á mjög lágum vöxtum. Þegar lög um fram­kvæmd­ina voru sam­þykkt hafði hámark rík­is­á­byrgðar á þessum lánum verið hækkuð upp í 70 pró­sent.

Þessi lán hafa enn ekki komið til fram­kvæmda vegna þess að ekki hefur verið gengið frá sam­komu­lagi milli rík­is­ins og Seðla­bank­ans um þau. Það sam­komu­lag er þó í loka­frá­gangi og stefnt er að því að skrifa undir það á fimmtu­dag.

Aðgerðir fjár­mála­stofn­ana hingað hafa því, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, fyrst og síð­ast snú­ist um að frysta afborg­anir af lánum við­skipta­vina. Stærri fyr­ir­tæki, sem eiga í nánu og miklu sam­starfi við bank­ann sinn eru þar betur sett en lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki sem eru með litla eða jafn­vel enga fyr­ir­greiðslu að jafn­aði, en þurfa á henni að halda nú um stundir til að kom­ast í gegnum það ástand sem skap­ast hefur vegna kór­ónu­veirunnar.

Af hverju þarf meira til?

Sviðs­myndir, jafnt um þróun mála inn­an­lands, en ekki síður heild­rænt í heim­inum, eru mun svart­ari nú en þær voru í lok síð­asta mán­aðar. Helstu útflutn­ings­greinar Íslands: ferða­þjón­usta, sjáv­ar­út­vegur og ál (fram­leitt fyrir íslenska orku sem íslensk fyr­ir­tæki selja) hafa allar orðið fyrir veru­legu höggi vegna gríð­ar­legs sam­dráttar í neyslu og fram­leiðslu út um allan heim og þeim ferða­tak­mörk­unum sem eru í gildi vegna bar­átt­unnar við COVID-19.

Fyrir liggur að ekki verður hægt að reikna með mörgum, ef ein­hverjum, erlendum ferða­mönnum hingað til lands í ár. Ef ferða­tak­mörk­unum verður aflétt á næstu mán­uðum, og ef ferða­menn sýna vilja til að ferð­ast strax í kjöl­farið, mun það verða óvæntur bónus.

Stjórn­völd telja að ef svart­sýn­ustu spár gangi eftir varð­andi komur ferða­manna fyrir þetta ár þá muni Ísland upp­lifa mesta sam­drátt sem landið hefur orðið fyrir í heila öld. Ljóst er að sá sam­dráttur verður mun meiri en sá 4,8 pró­sent sam­dráttur sem Seðla­banki Íslands kynnti sem svört­ustu sviðs­mynd sína á blaða­manna­fundi 25. mars síð­ast­lið­inn.

Alls eru yfir 50 þús­und manns annað hvort atvinnu­laus eða á hluta­bótum, sem er um fjórð­ungur alls íslensks vinnu­mark­aðar. Búist er við því að upp­sögnum muni fjölga til muna í þessum mán­uði.

Líklegt er að fjármála- og efnahagsráðuneyti Bjarna Benediktssonar muni þurfa að hafa aðkomu að samkomulagi milli aðila vinnumarkaðarins, með þau Drífu Snædal og Halldór Benjamín Þorbergsson, í forystu, um tilslakanir til fyrirtækja með eftirgjöf á umsömdum réttindum launþega.
Líklegt er að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar muni þurfa að hafa aðkomu að sam­komu­lagi milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins, með þau Drífu Snædal og Halldór Benjamín Þor­bergs­son, í for­ystu, um til­slak­anir til fyr­ir­tækja með eft­ir­gjöf á umsömdum rétt­indum laun­þega.

Ráðamenn hafa áttað sig á því að það þarf að stór­auka skuldir hins opin­bera til að takast á við fyr­ir­liggj­andi ástand. Vegna þessa hefur Seðla­banki Íslands til að mynda þegar ákveðið að ráð­ast í magn­bundna íhlutun, sem felur í sér heim­ild bank­ans til að kaupa rík­is­skulda­bréf á eft­ir­mark­aði fyrir allt að 150 millj­arða króna. Það er gert til þess að hafa bein áhrif á lang­tíma­kröfur á þau bréf, til lækk­unar. Á manna­máli þýðir þetta að ríkið mun fá lægri vexti á skulda­bréfin sem það þarf að gefa út.

Hvað verður gert næst?

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál fund­aði í gær um næsta aðgerð­ar­pakk­ann og hann verður kynntur í viku­lok. Pakkinn mun taka mið af því hvernig sam­komu­höftum verður aflétt út sum­arið, en í dag var greint frá því að lítið skref verði stigið í þeirri aflétt­ingu 4. maí næst­kom­andi. Enn verða þó ferða­tak­mark­anir til og frá land­inu til 15. maí hið minnsta.

Fyrsti aðgerð­ar­pakk­inn var almennur. Sá pakki sem kemur næst verður með sér­tæk­ari aðgerðum fyrir ákveðnar teg­undir atvinnu­starf­semi. Auk þess má búast við því að í honum verði að finna aðgerðir sem muni nýt­ast heim­ilum lands­ins, til dæmis í hús­næð­is­málum. Þá verða í honum aðgerðir sem hjálpa eiga litlum fyr­ir­tækjum sem þurftu að loka vegna sótt­varn­ar­ráð­staf­ana, ein­yrkjum sem hafa ekki getað sinnt vinnu sinni og náms­mönnum, en stór hluti þeirra mun ekki geta gengið að sum­ar­störfum vísum.

Aðgerð­irnar gætu líka verið inn­legg í við­ræður aðila vinnu­mark­að­ar­ins um að verka­lýðs­hreyf­ingin sam­þykki leiðir til að draga úr kostn­aði fyr­ir­tækja, að minnsta kosti til skamms tíma, undir því yfir­skini að verja störf. Hingað til hafa slíkar við­ræður ekki skilað árangri, en meðal ann­ars hefur verið rætt um að fresta launa­hækk­unum eða að minnka mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði tíma­bundið.

Lítið verður um komur ferðamanna til Íslands á árinu 2020.
Lítið verður um komur ferða­manna til Íslands á árinu 2020.

Hluta­bóta­leiðin verður án efa fram­lengd í ein­hverju formi fram yfir 1. juní. Skilyrði fyrir því hverjir geta nýtt sér hana verða hins vegar aðlöguð að breyttum veru­leika. Til að byrja með voru þau höfð mjög víð, en verða lík­ast til þrengri til fram­tíðar.

Fyr­ir­liggj­andi er að sum fyr­ir­tæki sem settu starfs­fólk á hluta­bót­ar­leið­ina fyrir síð­ustu mán­aða­mót munu ein­fald­lega segja upp fólki fyrir þau næstu, þar sem að leiðin gengur út á að fyr­ir­tækin greiði áfram 25 pró­sent af launum. Ef ekki er lík­indi til þess, sam­kvæmt sviðs­myndum, að fyr­ir­tækin opni aftur t.d. út árið þá munu þau lík­ast til ekki vilja greiða þann kostnað áfram. 

Stjórn­völd munu líka frekar vilja nýta fram­lag sitt til að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi milli atvinnu­rek­enda og laun­þega í að nið­ur­greiða störf hjá fyr­ir­tækjum sem eru líf­væn­leg til lengri tíma.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tal­aði á Alþingi í dag um að leggja þyrfti aukna áherslu á mat­væla­fram­leiðslu hér­lendis og að skoða þyrfti tolla­mál í því sam­hengi, meðal ann­ars aukna toll­vernd. Þá tal­aði hann fyrir því að raf­orku­kostn­aður garð­yrkju­bænda yrði lækk­aður og að hvatt yrði til frek­ari inn­an­lands­neyslu á næstu mán­uðum. Telja verður lík­legt að Sigurður Ingi hafi ekki slegið á þessa strengi nema hann hafi full­vissu um að þessi mál, sem eru póli­tísk afar mik­il­vægt Fram­sókn­ar­flokknum sem er með sterkt bak­land í land­bún­aði, muni rata inn í næsta aðgerð­ar­pakka.

Þá hefur verið í umræð­unni að fara þá leið sem til að mynda hefur verið farin í Danmörku, þar sem stjórn­völd hafa ráð­ist í að greiða út beina styrki til fyr­ir­tækja sem sitja uppi með fastan kostnað á borð við húsa­leigu en geta ekki staðið undir honum. Sú leið eru þó umdeild hér­lendis sem víðar.

Hvað verður gert til framtíðar?

Í munn­legri skýrslu sinni um um áhrif COVID-19 far­ald­­ur­s­ins og um við­brögð stjórn­­­valda við þeim áhrifum á Alþingi í dag sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að í öllum kreppum felist mögu­leikar. „Við höfum tæki­færi til að byggja hér upp á sviði nýsköp­un­ar, rann­sókna og þró­un­ar,“ sagði Katrín og bætti við að mögu­lega myndi far­ald­ur­inn virka eins og „hrað­all fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una“ þar sem vænt­an­legar breyt­ingar myndu ganga yfir hrað­ar.

Í ræðu sinni við sama til­efni sagði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að hann yrði að vera hrein­skil­inn og segja að það yrði ekki hægt að lofa öllum að kom­ast efna­hags­lega skað­lausum úr þessu ástandi. „Það er úti­lok­að.“ Bjarni hefur áður talað á sömu nótum og for­sæt­is­ráð­herra gerði í dag og sagt að Ísland ætti að gera ráð­staf­anir til að und­ir­búa mikla sókn þegar ástand­inu lýkur. Þær ráð­staf­anir eigi að tryggja meiri afköst, fram­leiðni og sam­keppn­is­hæfni lands­ins.

Við­mæl­endur Kjarnans eru flestir sam­mála um að í því felist meðal ann­ars að gripið verði til umfangs­meiri aðgerða til að styðja við ýmis­konar nýsköpun. Við­mæl­endur Kjarnans í atvinnu­líf­inu segja að á meðal til­lagna sem rætt hafi verið um við stjórn­völd séu að fyr­ir­liggj­andi úrræði á borð við hluta­bóta­leið­ina og frestun á skatt­greiðslum verði látin ná yfir sprota­fyr­ir­tæki og að end­ur­greiðslur, til dæmis vegna rann­sóknar og þró­unar, verði hækk­aðar veru­lega.

Til­gang­ur­inn verður að styðja við starf­semi sem getur verið arð­bær til fram­búðar, þótt hún sé það ekki endi­lega í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár