Spá tveimur milljónum erlendra ferðamanna árið 2018

Grein­ing­ar­deild Arion banka spáir því að ferða­mönnum muni fjölga um 27,5 pró­sent í ár, miðað við árið í fyrra, og heild­ar­fjöldi verði rúm­lega 1,2 millj­ónir. Á næsta ári fjölgi þeim í 1,5 millj­ónir og á árunum 2017 og 2018, muni þeim fjölga um 500 þús­und og verða um tvær millj­ónir á árinu 2018.

Þetta kemur fram í spá bank­ans um gang mála í ferða­þjón­ustu. Gríð­ar­lega mik­ill vöxtur hefur verið í ferða­þjón­ustu á síð­ustu árum. Fjölg­unin var 20,7 pró­sent árið 2013 miðað við árið á undan, 24,1 pró­sent árið 2014 og sam­kvæmt spá verður hún 27,5 pró­sent á þessu ári, eins og áður sagði.

Því er spáð að hlut­falls­lega verði fjölg­unin mest á háanna­tíma hvers árs, sem er frá júní til sept­em­ber. Þrátt fyrir mikla sókn ferða­manna utan háanna­tíma, frá því sem var, þá hefur sókn ferða­manna haldið áfram að vera mest yfir sum­ar­mán­uð­ina, enda er sá tími algeng­asti frí­tími fólk um heim allan.

Tekið er fram að spáin taki mið af for­sendum sem töl­verð óvissa er um. Þar á meðal er hvernig vinnu­mark­að­ur­inn muni bregð­ast við auk­inni sókn erlendra ferð­manna hingað til lands, en gera má ráð fyrir að þús­undir starfa verði til í ferða­þjón­ustu, gangi spáin um fjölg­un­ina eftir.

[caption id="attachment_40147" align="alignnone" width="330"] Mynd: Arion banki.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár