Mun hagstæðara að kaupa en að leigja síðustu átta ár

Kaupverð á lít­illi íbúð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað mun meira en leigu­verð á lít­illi íbúð á sama svæði á síð­ustu átta árum. Þrátt fyrir það hefur verið mun óhag­stæð­ara að leigja á tíma­bil­inu en að kaupa, sam­kvæmt hag­fræði­deild Lands­bank­ans.

Á síð­ustu átta árum hefur kaup­verð hækkað mun meira en leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Leigu­verð 2ja her­bergja íbúða hefur hækkað um 75 pró­sent frá árinu 2011 sé litið til árs­með­al­tala. Á sama tíma hefur kaup­verð lít­illa íbúða hækkað á sama svæði um 106 pró­sent. Þrátt fyrir það er þó enn óhag­stæð­ara að leigja, sam­kvæmt hag­fræði­deild Lands­bank­ans.

Hlut­fallið á milli leigu­verðs og kaup­verðs er stundum notað sem vís­bend­ing um hvort sé hag­stæð­ara að leigja hús­næði eða kaupa það. Sé þessi aðferð við­höfð við leigu á 2ja her­bergja íbúð í Reykja­vík og kaup á svip­aðri íbúð á tíma­bil­inu 2011 til 2018 er nið­ur­staðan að leiga á íbúð hefur verið mun óhag­stæð­ari kostur.

Leiguverð hækkað mun minna

Leigu­verð hefur hækkað um 9 pró­sent á síð­ustu 12 mán­uðum á sama tíma og kaup­verð fjöl­býlis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 4,8 pró­sent, sem er í fyrsta sinn frá 2011 sem leigu­verð hækkar meira en íbúða­verð. Frá upp­hafi árs 2011 fram til jan­úar 2019 hefur leigu­verð 2ja her­bergja íbúða hækkað um 85 pró­sent, en tölu­verðar sveiflur eru innan hvers árs. Sé litið á breyt­ingu milli árs­með­al­tala 2011 og 2018 hefur leigu­verð þess­ara íbúða hækkað um 75 pró­sent. Á sama tíma hefur kaup­verð lít­illa íbúða, 40 til 70 fer­metrar, á sama svæði hækkað um 106 pró­sent. Leigu­verð og kaup­verð fylgd­ust að árin 2011 og 2012, en síðan hefur kaup­verðið hækk­aði meira á hverju ári fyrir þessa teg­und íbúða.

Hagstæðara að kaupa en að leigja á síðustu árum

Hlut­fallið á milli leigu­verðs og kaup­verðs er stundum notað sem gróf vís­bend­ing um hvort hag­stæð­ara sé að leigja hús­næði en að kaupa það. Þá er kostn­aði við 12 mán­aða leigu íbúðar á fer­metra deilt upp í kaup­verð sams­konar íbúðar á fer­metra. Í grein­ingu Lands­bank­ans segir að hér sé að sjálf­sögðu ekki um nákvæm vís­indi að ræða, en reglan er sú að ef nið­ur­staðan er 15 eða lægri sé yfir­leitt hag­stæð­ara að kaupa. Sé nið­ur­staðan á bil­inu 16 til 20 fylgir meiri áhætta kaupum. Sé nið­ur­staðan komin yfir 20 er talið mun hag­stæð­ara að leigja en kaupa.

Sé þessi aðferð notuð til bera saman leigu á 2ja her­bergja íbúð í Reykja­vík og kaup á svip­aðri íbúð á tíma­bil­inu er nið­ur­staðan sú að leiga íbúðar hefur verið mun óhag­stæð­ari kostur á síð­ustu átta árum. Í upp­hafi tíma­bils­ins, árið 2011, var hlut­fallið rúm­lega 13 en var svo komið upp í tæp­lega 16 á síð­asta ári. Nið­ur­stað Lands­bank­ans er því sú að kaup hafi verið hag­stæð­ari á þessu tíma­bil en þó til­tölu­lega óhag­stæð­ari seinni hluta tíma­bils­ins.

Næstum sama ávöxtun hjá einstaklingum og fyrirtækjum

Í grein­ing­unni er einnig hin hliðin á leigu­mark­að­inum skoðuð eða afkoman af starf­sem­inni hjá þeim sem leigja út. Leigu­mark­að­ur­inn hér landi ger­breytt­ist með inn­komu leigu­fyr­ir­tækja á síð­ustu árum, en því hefur verið haldað fram að það hafi stuðlað að meiri hækkun leigu­verðs en ella.

Þjóðskrá gefur árlega út tölur um ávöxtun húsa­leigu þar sem hægt er að greina á milli þess hvort leigu­sali sé fyr­ir­tæki eða ein­stak­lingur. Sé litið á ávöxtun af útleigu 2ja her­bergja íbúða í vest­ur­hluta Reykja­víkur má sjá að hún hefur næstum verið sú sama hjá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum frá 2011 til árs­ins 2018. Þó hefur ávöxtun fyr­ir­tækj­anna verið eilítið hærri síð­ustu 3 ár eftir að hafa verið lægri næstu þrjú ár þar á undan. Með­al­á­vöxtun ein­stak­linga af útleigu var 6,8 pró­sent á öllu tíma­bil­inu og 6,9 pró­sent hjá fyr­ir­tækj­unum. Með­al­verð­bólga á þessu tíma­bili var 2,9 pró­sent sem þýðir að raun­á­vöxtun af starf­sem­inni hafi verið í kringum 4 pró­sent. Tekið er þó fram að arð­semi af því að eiga og leigja út leigu­hús­næði ein­skorð­ast ekki ein­ungis við leigu­tekjur heldur einnig hækkun á fast­eigna­verði. Fast­eigna­verð hefur haft til­hneig­ingu til að hækka umfram verð­bólgu sé litið yfir lengri tíma

Í grein­ingu hag­fræði­deild­ar­innar kemur fram að þessar ávöxt­un­ar­tölur eru ákveðin ein­földun þar sem það eigi eftir að taka til­lit til margra kostn­að­ar­liða. Það er því ekki talið að ávöxtun við útleigu á hús­næði sé meiri en í annarri atvinnu­starf­semi hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár