Íslenska landsliðið verður í FIFA 18 tölvuleiknum

Tölvu­leikjaunn­endur geta spilað með íslenska lands­lið­inu í nýjasta FIFA-leiknum.

Hægt verður að leika íslenska karla­lands­lið­inu í knatt­spyrnu í nýj­ustu útgáfu FIFA-tölvu­leikj­anna. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt lið er til boða í þessum vin­sælasta íþrótta­tölvu­leik í heimi.

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) greindi frá þessu í frétta­til­kynn­ingu í dag. Þar segir að samn­ingar hafi náðst milli EA SPORTS, fram­leið­anda leikj­anna, og KSÍ. Nýjasta útgáfa leiks­ins, FIFA 18, kemur í versl­anir 29. sept­em­ber næst­kom­andi.

„Ég er mjög ánægður með þessa nið­ur­stöðu,“ er haft eftir Guðna Bergs­syni, for­manni KSÍ, í frétta­til­kynn­ing­unni. Hann seg­ist telja þetta vera góð tíð­indi fyrir alla þá sem spila leik­inn hér á landi „og í raun um allan heim“. „Mér finnst þetta jákvætt mark­aðs­lega fyrir íslenskan fót­bolta, gaman fyrir okkar stuðn­ings­menn og einnig leik­menn­ina sjálfa.“

Mikil óánægja braust út meðal fót­boltaunn­enda og tölvu­leikja­spil­ara í kjöl­far Evr­ópu­meist­ara­móts­ins í fyrra þegar fréttir bár­ust af því að KSÍ hafi hafnað til­boði frá EA SPORTS um að lands­liðið yrði í boði í FIFA 17. Þá var Geir Þor­steins­son for­maður KSÍ en hann sagði upp­hæð­ina sem boðin var fyrir notkunn­rétt­inda og sér­leyfa íslenska lands­liðs­ins of lág.

„Þetta var mjög lág upp­hæð frá fyr­ir­tæki sem græðir á tá og fingri er mér sagt. Við komum með gagntil­boð en það var ekki áhugi fyrir því,“ sagði Geir í sam­tali við Vísi í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár