Fyrri einkavæðing bankanna: Þegar franskur stórbanki reyndist óþekktur þýskur banki

Síðari einka­væð­ing rík­is­banka hófst í fyrra, þegar byrjað var að selja hluti í Íslands­banka. Því ferli var svo haldið áfram í mars þegar umdeilt lokað útboð fór fram. Síðasta einka­væð­ing fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu hófst skömmu fyrir ald­ar­mót.

Fjórum dögum eftir að einka­væð­ing­ar­nefnd ákvað að selja Samson-hópi Björg­ólfs­feðga hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, þann 13. sept­em­ber 2002, snéri nefndin sér að því að hefja und­ir­bún­ing á sölu á Bún­að­ar­bank­anum.

Íslenska ríkið hafði lengi lagt mikla áherslu á að eitt af helstu mark­miðum einka­væð­ingar bank­anna væri að fá erlenda fjár­mála­stofnun til að koma inn sem eig­andi að íslenskum banka. Þar sem hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum hafði verið seldur til Samson, sem aug­ljós­lega var ekki erlendur banki, þá þótti ljóst að æski­legt væri að bjóð­endur í Bún­að­ar­bank­ann væru með slíkan með­fjár­festi í fartesk­inu.

Á end­anum átti S-hóp­ur­inn hæsta boðið í bank­ann. Í mati breska bank­ans HSBC, ráð­gjafa íslenska rík­is­ins í ferl­inu, á S-hópnum kom hins vegar fram að hann hefði áhyggjur af miklum kross­eigna­tengslum milli þeirra sem komu að fjár­fest­ing­ar­hópnum því það gerði bank­anum erfitt fyrir að meta raun­veru­lega stöðu hans. Þá kom einnig fram að þeir aðilar sem mynd­uðu S-hóp­inn höfðu verið í miklum lána­við­skiptum við Bún­að­ar­bank­ann. Samtals námu lán til þeirra 4,3 millj­örðum króna, eða 2,9 pró­sentum af heild­ar­út­lánum bank­ans um mitt ár 2002. Við mat á þekk­ingu og reynslu S-hóps­ins var sér­stak­lega tekið til­lit til aðkomu erlendrar fjár­mála­stofn­unar og þess tengsla­nets sem myndi fylgja slíkri aðkomu. Hinir sem skip­uðu hóp­inn vissu enda ekki neitt um banka­starf­semi.

S-hóp­ur­inn lét í það skína í upp­lýs­inga­gjöf sinni til einka­væð­ing­ar­nefndar að Sociéte Générale, franskur risa­banki, ætl­aði að kaupa hlut rík­is­ins með hópnum. Þeim skila­boðum var fyrst komið á fram­færi við ráð­gjafa nefnd­ar­innar seint í októ­ber eða snemma í nóv­em­ber 2002. Engum datt hins vegar í hug að hringja í, eða senda fax til, Sociéte Générale og spyrja hvort málið væri raun­veru­lega þannig.

Sociéte Générale varð Hauck & Auf­häuser

Meint aðkoma Sociéte Générale virð­ist á end­anum hafa ráðið úrslitum um það að einka­væð­ing­ar­nefnd ákvað að mæla með því við ráð­herra­nefnd um einka­væð­ingu, á fundi sínum 4. nóv­em­ber 2002, að S-hóp­ur­inn fengi að kaupa hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum.

Skrifað var undir ramma­sam­komu­lag um kaup hóps­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­anum 15. nóv­em­ber 2002.

Í fund­ar­gerð einka­væð­ing­ar­nefndar sem dag­sett er 12. des­em­ber 2002 segir að gert yrði ráð fyrir því að „aðild Soc.Gen yrði stað­fest morg­un­inn eftir.“ Það gerð­ist hins vegar ekki og þess í stað til­kynntu for­svars­menn S-hóps­ins einka­væð­ing­ar­nefnd að erlendi aðil­inn sem átti aðild að hópnum yrði ekki kynntur fyrr en skrifað yrði undir kaup­samn­ing­inn.

Á fundi sínum þennan dag, 13. des­em­ber, ræddi einka­væð­ing­ar­nefnd um hvernig ætti að bregð­ast við þess­ari beiðni. Í fund­ar­gerð er bókað að „nefndin taldi nauð­syn­legt að vita hverjir væru vænt­an­legir fjár­festar m.t.t. mark­miða rík­is­ins með söl­unni.“ Greini­legt var á við­brögð­unum að þessi afstaða kom nefnd­ar­mönnum í opna skjöldu og sam­kvæmt fund­ar­gerð­inni var meðal ann­ars rætt um hvort hætta ætti við ferlið. Það var hins vegar ekki gert. Frekar var ákveðið að ganga að ótrú­legum kröfum Ólafs Ólafs­sonar og félaga hans um að það kæmi rík­inu ekk­ert við fyr­ir­fram hver væri að kaupa banka af því.

Næsti fundur einka­væð­ing­ar­nefndar var ekki hald­inn fyrr en 6. jan­úar 2003, 24 dögum síðar og tíu dögum áður en gengið var form­lega frá kaupum S-hóps­ins á ráð­andi hlut í Bún­að­ar­bank­anum.

Þann 9. jan­úar, viku áður en skrifað var undir samn­ing um kaup S-hóps­ins á 45,8 pró­sent hlut hans í Bún­að­ar­bank­anum á 11,4 millj­arða króna, var þeim sem sátu í einka­væð­ing­ar­nefnd í fyrsta sinn gerð grein fyrir því hver erlendi fjár­festir­inn var sem ætl­aði að fjár­festa með hópnum. Það reynd­ist alls ekki vera franski stór­bank­inn Sociéte Générale, heldur þýskur einka­banki að nafni Hauck & Auf­häuser. Sá hafði um 70 pró­sent tekna sinna af þókn­unum og stóð ekki í neinni sýni­legri fjár­fest­inga­starf­semi. Bankinn hafði auk þess átt afleitt rekstr­arár 2002 þar sem hann tap­aði pen­ingum. Samt var Hauck & Auf­häuser mættur til Íslands til að eign­ast ráð­andi hlut í íslenskum við­skipta­banka.

Forsíða Morgunblaðsins eftir að gengið hafði verið frá sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Mynd: Skjáskot/Morgunblaðið
Forsíða Morg­un­blaðs­ins eftir að gengið hafði verið frá sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Mynd: Skjáskot/Morg­un­blaðið

Kaup­samn­ingur um sölu á ráð­andi hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum var und­ir­rit­aður 16. jan­úar 2003 í höf­uð­stöðvum hans. Í frétta­til­kynn­ingu sem S-hóp­ur­inn sendi frá sér vegna kaupanna sagði að það væru „mikil tíð­indi að traust­ur, erlendur banki taki þátt í að fjár­festa í íslenskri fjár­mála­stofn­un“. Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá Hauck & Auf­häuser og ráð­gjaf­anum Mich­ael Sautter frá Société Générale sagði að nokkrar ástæður lægju að baki „þeirri ákvörðun eig­enda Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers að fjár­festa í Bún­að­ar­bank­an­um. Á meðal þeirra: Bún­að­ar­bank­inn væri „væn­leg fjár­fest­ing.“

Tók fjórtán ár að fá svör

Eftir stóð þjóð og reyndi að átta sig á hvað hefði gerst. Enginn á Íslandi hafði heyrt um þennan þýska banka áður. Yahoo og Alta Vista, ráð­andi leit­ar­vélar þess tíma, skil­uðu engum upp­lýs­ingum og sumir efuð­ust bein­línis um hvort bank­inn væri raun­veru­legur.

Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­häuser keypti hlut í Bún­að­ar­bank­anum var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­arra aðila innan S-hóps­ins.

Það áttu eftir að líða rúm fjórtán ár frá því að skrifað var undir kaup­samn­ing­inn þar til að opin­berað var hvað hefði raun­veru­lega átt sér stað. Sú opin­berum varð ótrú­legri en nokkurn hefði getað grunað.

Þegar einka­væð­ing bank­anna stóð yfir var lít­ill fjár­fest­ing­ar­banki far­inn að gera sig mjög gild­andi á Íslandi. Hann hét Kaupþing og hann sam­ein­að­ist Bún­að­ar­bank­anum í apríl 2003, tæpum þremur mán­uðum eftir að ríkið seldi hlut sinn í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins. Sam­hliða tóku stjórn­endur Kaup­þings öll völd í hinum sam­ein­aða banka.

Takmarki var náð. Líkt og Sigurjón Þ. Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, sagði við rann­sókn­ar­nefnd Alþingis þá fengu Kaup­þings­menn það sem þeir þurftu við sam­ein­ing­una; „láns­hæf­is­mat og við­skipta­banka­grunn á Íslandi."

Allt frá upp­hafi heyrð­ust efa­semd­araddir um að allt væri eins og af var látið í söl­unni á Bún­að­ar­bank­an­um. Margir efuð­ust um að Hauck & Auf­häuser væri raun­veru­legur eig­andi sem hefði haft áhuga á að fjár­festa á Íslandi og enn fleiri fannst í meira lagi sér­kenni­legt hvað það tók stuttan tíma fyrir S-hóp­inn að renna Bún­að­ar­bank­anum saman við Kaup­þing.

Þessi umræða fór mjög í taug­arnar á Ólafi Ólafs­syni og Kaup­þings­mönnum. Þeir neit­uðu því ítrekað opin­ber­lega að Hauck & Auf­häuser hefði verið leppur og að fyrir hefði legið ein­hvers­konar sam­komu­lag um að sam­eina Bún­að­ar­bank­ann við Kaupþing fyr­ir­fram.

Ein áhrifa­mesta sagan af þessu er frá­sögn Björg­ólfs Guð­munds­sonar fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþingis í jan­úar 2010. Þar sagði Björgólfur að það hefði verið „óskap­lega mikið hat­ur“ milli Bún­að­ar­bank­ans/­Kaup­þings og Lands­banka Íslands, sem hann hefði aldrei skil­ið. Skýr­ingin hafi verið sú að Kaup­þings­menn töldu að aðilar innan Lands­bank­ans hefðu komið því í umræð­una að til­boð Hauck & Auf­häuser hefði verið ein­hvers konar „falstil­boð frá Þýska­land­i“.

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbanka Íslands.
Björgólfur Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­maður banka­ráðs Lands­banka Íslands.

Síðan sagði Björgólf­ur: „Ég man bara eftir því að ég var kall­aður til ákveð­ins aðila, hann hund­skamm­aði mig fyrir að vera að leggja þá í ein­elti, þessa góðu drengi, Ólaf Ólafs­son og félaga út af þessu máli í Þýska­landi, þetta væri allt hreint og klárt og þetta var nú Hall­dór Ásgríms­son sem að gerði það.“ Hall­dór Ásgríms­son var á þessum árum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, utan­rík­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra á árunum 2004 til 2006. Hann lést árið 2015.

Björgólfur sagði við nefnd­ina að honum hefði brugðið mikið við þetta. „Ég man ég sagði við hann [Hall­dór Ásgríms­son]: Heyrðu, má ég skrifa þetta eftir þér? Af því að hann var, þetta var nú mánu­dagur kl. 9, erfið helgi og ég fékk miklar skammir fyrir það að ég stæði fyrir ein­hverjum miklum áróðri, eða við, um þann hóp sem hefði keypt Bún­að­ar­bank­ann að það væri hvergi allt greitt með erlendu fjár­magni. Ég hafði ekki hug­mynd um það.“

Aðspurður sagði Björgólfur að þessi fundur hafi lík­lega átt sér stað árið 2004. Hann sagði að Hall­dór hefði sagt að „þeir [væru] alltaf að kvarta í sig yfir að við[...]hefðum haldið uppi áróðri að[...]þessi þýski banki væri bara falskt identity.[...]„Þessi tengsl, það voru rosa­leg fram­sókn­ar­tengsl þarna inni, alveg ótrú­leg. Ég veit ekk­ert um flokkapóli­tík eða neitt en þetta var, virt­ist vera, Ólafur Ólafs­son virt­ist hafa alltaf beinan aðgang að Hall­dóri og ein­hvern veg­inn, og var alltaf að magna upp ein­hver leið­ind­i.“

Tók fjórtán ár að fá sannleikann fram

Sú tor­tryggni sem var til staðar gagn­vart ferl­inu leiddi til þess að Rík­is­end­ur­skoðun var látin vinna skýrslu um einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja árið 2003. Nið­ur­staðan var sú að „íslensk stjórn­völd hafi í meg­in­at­riðum náð helstu mark­miðum sínum með einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja á árunum 1998-2003.“ Engar athuga­semdir voru gerðar við það hvernig staðið var að sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins í skýrsl­unni.

Í júní 2016, rúmum þrettán árum eftir að skrifað var undir kaupin á Bún­að­ar­bank­anum, dró loks til tíð­inda í þessu málið þegar Tryggvi Gunn­ars­sonar, umboðs­maður Alþingis, sendi upp úr þurru bréf til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Í bréf­inu lagi Tryggvi til að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd til að kom­ast til botns í aðkomu þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003. Þetta ætti að gera vegna þess að Tryggvi hefði nýjar upp­lýs­ingar sem byggðu á ábend­ingum um hver raun­veru­leg þátt­taka þýska bank­ans var. Á til­lögu Tryggva var fall­ist.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son var skip­aður í rann­sókn­ar­nefnd­ina og réð til sín einn starfs­mann, sak­sóknar­ann Finn Þór Vil­hjálms­son. Þeir rann­sök­uðu málið um nokk­urra mán­aða skeið. Þann 29. mars 2017 héldu þeir blaða­manna­fund og birtu 189 blað­síðna skýrslu um nið­ur­stöður sín­ar. Í henni var opin­ber­aður blekk­ing­ar­leikur sem reynd­ist enn ótrú­legri og marg­slungn­ari en flestir ætl­uðu.

Kjartan Bjarni Björgvinsson afhendir Unni Brá Konráðsdóttur, þáverandi forseta Alþingis, skýrslu rannsóknarnefndarinnar vorið 2017.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son afhendir Unni Brá Kon­ráðs­dóttur, þáver­andi for­seta Alþingis, skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar vorið 2017.

Fléttu sem í fólst að hópur manna stóð að gerð leyni­legra bak­samn­inga við Hauck & Auf­häuser um hlut­inn í Bún­að­ar­bank­anum sem látið var í skína að þýski bank­inn hefði keypt.

Hauck & Auf­häuser leppaði eignarhaldið

Bak­samn­ing­arnir fólu í sér að þýski bank­inn var í reynd aðeins að nafn­inu til meðal kaup­enda að hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Eign­ar­haldið var aðeins til mála­mynda og tíma­bundið. Aðrir aðilar fjár­mögn­uðu í reynd, báru alla áhættu og áttu alla hagn­að­von af þessum við­skiptum sem gerð voru í nafni Hauck & Auf­häuser. Þýska bank­anum var tryggt algjört skað­leysi af þátt­töku sinn í við­skipt­unum og fjár­hags­legir hags­munir hans tak­mörk­uð­ust við umsamda þóknun sem kveðið var á um í bak­samn­ing­unum.

Sá aðili sem bar alla áhætt­una af við­skipt­unum var Kaup­þing. Þegar fléttan var gerð upp hafði Kaup­þing sam­ein­ast Bún­að­ar­bank­an­um.

Þannig lá fyrir að hið keypta bar áhætt­una af fléttu utan um kaup á sér.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sagði að fyr­ir­huguð, en leyni­leg, sam­ein­ing Kaup­þings og Bún­að­ar­bank­ans hafi legið fyrir í októ­ber 2002. Þá hafi verið haldnir fundir í þáver­andi skrif­stofu­hús­næði eign­ar­halds­fé­lags­ins Sunds ehf. í svo­nefndum litla turni Kringl­unnar. Þau fund­ar­höld áttu sér því stað nokkrum vikum áður en að ákveðið var að ganga til samn­inga við S-hóp­inn um kaup á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum og mán­uðum áður en að skrifað var undir kaup­samn­ing­inn. Kaup­þings var hins vegar hvergi getið í til­boði S-hóps­ins.

Ólafur Ólafsson þegar hann kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2017.
Ólafur Ólafsson þegar hann kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd 2017.

Það blasti líka við að erlendur aðili var nauð­syn­legur til að til­boð­inu yrði tekið.

Í skýrsl­unni sem Kjartan og Finnur unnu var opin­berað, líkt og marga hafði grunað, að aðkoma Société Générale var hluti af blekk­ing­ar­leik. Aldrei stóð til að bank­inn myndi kaupa hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Tveir starfs­menn Þýska­lands­arms bank­ans, sem störf­uðu fyrir Ólaf Ólafsson í mál­inu, höfðu aldrei neina heim­ild til að skuld­binda slíkan stór­banka í kaup á við­skipta­banka á Íslandi. Menn­irnir voru ein­fald­lega að sinna ráð­gjöf og spil­uðu þar með í leik Ólafs.

Fyrir ómakið fengu þeir um 300 millj­ónir króna í þóknun.

Rann­sókn­ar­skýrslan varp­aði ljósi á, með óyggj­andi hætti, að Hauck & Auf­häuser hefði aldrei verið alvöru kaup­andi að hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Aðkoma hans var blekk­ing. Raun­veru­leik­inn var sá að Kaupþing hafði fjár­magn­aði kaupin að fullu, að baki lágu bak­samn­ingar sem tryggðu Hauck & Auf­häuser fullt skað­leysi, þókn­ana­tekjur upp á eina milljón evra fyrir að leppa og sölu­rétt á hlutnum eftir að þýski lepp­bank­inn var búinn að halda á honum í tæp tvö ár. Sem hann síðan nýtti sér.

Hagnaður sem lenti í aflandsfélögum

Til við­bótar lá fyrir í flétt­unni, sem var kölluð „Puffin“, að hagn­aður sem gæti skap­ast hjá réttum eig­enda hlut­ar­ins, aflands­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, myndi renna til tveggja aflands­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag.

Annað þeirra aflands­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­arða króna á flétt­unni.

Hitt félagið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu. Þessar fjár­hæðir voru greiddar út til þeirra snemma árs 2006. Á núvirði er sam­eig­in­legur hagn­aður félag­anna tveggja rúm­lega 11 millj­arðar króna.

Í nið­ur­stöðu­hluta skýrslu Kjartans og Finns segir: „Í íslensku laga­máli nær hug­takið blekk­ing almennt til þess að vekja, styrkja eða hag­nýta sér ranga eða óljósa hug­mynd manns um ein­hver atvik. Telja verður raunar að almennur skiln­ingur á þessu hug­taki sé í meg­in­at­riðum á sömu lund. rann­sókn­ar­nefnd Alþingis telur að þau gögn sem rakin hafa verið og birt í þess­ari skýrslu, og þau atvik sem umrædd gögn varpa skýru og ótví­ræðu ljósi á, sýni fram á svo ekki verði um villst að íslensk stjórn­völd hafi á sínum tíma verið blekkt um aðkomu Hauck & Auf­häuser að þeirri einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands hf. sem lokið var með kaup­samn­ingi 16. jan­úar 2003. Á sama hátt varpar skýrsla þessi að mati nefnd­ar­innar skýru og ótví­ræðu ljósi á hverjir stóðu að þeirri blekk­ingu, komu henni fram og héldu svo við æ síðan, ýmist með því að leyna vit­neskju sinni um raun­veru­lega aðkomu Hauck & Auf­häuser eða halda öðru fram gegn betri vit­und.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár