Mynd: EPA

Þarf að gera Bandaríkin frábær á ný eða þarf að byggja betur upp aftur?

Atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum er umtals­vert og störfum í land­inu hefur fækkað á síð­ustu árum. Gripið hefur verið til mjög kostn­að­ar­samra efna­hag­s­pakka sem hafa gert það að verkum að hall­inn á rík­is­sjóði lands­ins er nú meiri en hann hefur verið í ára­tugi.

Eftir rúma viku verður kosið um næsta for­seta Banda­ríkj­anna. Þar berj­ast tveir menn á átt­ræð­is­aldri, for­set­inn Donald Trump og fyrr­ver­andi vara­for­set­inn Joe Biden, um að sitja í Hvíta hús­inu næstu fjögur árin.

Hár aldur, miðað við enn starf­andi ein­stak­linga, er lík­lega það eina sem menn­irnir tveir eiga sam­eig­in­legt. Þeir eru nán­ast ósam­mála um allt annað.

Kannanir benda til þess að Biden sé mun lík­legri til að sigra. Þegar þær eru vigtaðar þá mælist hann með tæp­lega tíu pró­sent for­skot á lands­vísu og nokkuð meit­lað í stein að Biden mun fá fleiri atkvæði, alveg eins og Hillary Clinton fékk 2016. Það ræður þó ekki úrslitum, heldur hvor þeirra nær í yfir 270 kjör­menn. Til þess að ná þangað þarf að vinna nokkur sveiflu­ríki, sér­stak­lega í Mið­vest­ur­ríkj­unum og Suðrinu. Þótt Biden mælist með for­ystu í þeim öllum sem stendur þá hefur Trump sýnt það að hann er ólík­inda­tól sem á ótrú­lega trygga fylg­is­menn. Hann stóð uppi sem sig­ur­veg­ari 2016 þegar nán­ast eng­inn spáði honum sigri og það er sann­ar­lega ekki úti­lokað að hann geti gert það aftur.

Sá sem verður for­seti Banda­ríkj­anna næstu árin stendur frammi fyrir marg­hátt­uðum erf­iðum áskor­unum. Það þarf til að mynda að berj­ast við heims­far­aldur kór­ónu­veiru, takast á við kerf­is­bundið kyn­þátta­hatur, ákveða stefnu í loft­lags­málum, móta hlut­verk Banda­ríkj­anna í alþjóð­legu sam­hengi og sam­eina sundraða þjóð.

En það fyrsta sem for­set­inn þarf að gera er að takast á við dýpstu efna­hag­skreppu sem Banda­ríkin, og heim­ur­inn allur, hafa ratað í í rúm­lega öld.

Biden hefur áður leitt efnahagsbata

Þegar Barack Obama tók við sem for­seti Banda­ríkj­anna í byrjun árs 2009 stóð heim­ur­inn frammi fyrir dýpstu kreppu sinni frá þriðja ára­tug tutt­ug­ustu ald­ar­innar. Ástæðan var það sem vana­lega er kallað banka­hrunið á Íslandi, alþjóð­leg fjár­málakreppa sem skall á haustið 2008.

Joe Biden var vara­for­seti Obama, og hann fékk það hlut­verk að leiða áætlun rík­is­stjórnar hans til að hífa Banda­ríkin upp úr þeirri efna­hags­legu holu sem þau voru komin í.

Í áætl­un­inni, sem fékk nafnið „The Recovery Act“, fólst að eyða átti rúm­lega 800 millj­örðum dala í marg­háttuð verk­efni sem höfðu það mark­mið að örva banda­ríska efna­hags­kerfið.

Áætlunin heppn­að­ist ágæt­lega og var að uppi­stöðu án hnökra. Obama og Biden voru þrátt fyrir það gagn­rýndir úr báðum áttum. Sam­flokks­menn þeirra í Demókra­ta­flokknum vildu fá stærri örv­un­ar­pakka, og Repúblikanar töldu áætl­un­ina hafa verið og sós­íal­íska.

Barack Obama tók við stjórnartaumunum í Bandaríkjunum í miðri efnahagslægð.
Barack Obama tók við stjórn­ar­taumunum í Banda­ríkj­unum í miðri efna­hagslægð.

Á grund­velli „The Recovery Act“ tók við hægur en stöð­ugur efna­hags­bati. Alls urðu til 12 millj­ónir nýrra starfa í stjórn­ar­tíð Obama og úr varð lengsta sam­fellda hag­vaxt­ar­skeið í sögu Banda­ríkj­anna, sem teygði sig vel inn á Trump-tím­ann. Hag­vöxt­ur­inn var hins vegar ekki stór­kost­legur og aðrir for­setar hafa sann­ar­lega séð fleiri störf verða til á meðan að þeir sátu í Hvíta hús­inu, sér­stak­lega Ronald Reagan (16,3 millj­ónir) og Bill Clinton (22,7 millj­ónir).

Batinn hélt áfram í tíð forsetatíð Trump

Trump er að öllu leyti ein­stakur for­seti í sögu Banda­ríkj­anna. Hann lætur sann­leik­ann og stað­reyndir sjaldn­ast þvæl­ast mikið fyrir þeim sögu­þræði sem hann vill selja fylg­is­mönnum sínum. Áherslur hans í efna­hags­málum eru þar engin und­an­tekn­ing.

Í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna 2016 lét Trump sífellt í það skína að allt væri í kalda kolum í efna­hags­málum þjóðar sinnar. Hann sagð­ist ætla að búa til rosa­leg­ustu efna­hags­upp­sveiflu sem Banda­ríkin hefðu nokkru sinni upp­lifað og „gera Banda­ríkin frá­bær á ný“.

Í dag segir Trump ítrekað að þetta mark­mið hafi náðst, fram að því að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á. Það er þó í besta falli hálf­sann­leikur.

Hag­vöxtur var að með­al­tali 2,3 pró­sent á ári síð­ustu þrjú árin sem Obama var for­seti, og um 2,5 pró­sent á fyrstu þremur árunum sem Trump gegndi emb­ætt­inu. Í for­seta­tíð Trump fór atvinnu­leysi hins vegar niður í 3,5 pró­sent í febr­úar síð­ast­liðnum, sem er lægsta hlut­fall sem mælst hefur í 50 ár.

Sá ávinn­ingur sem náðst hafi á und­an­förnum árum, hver svo sem bar ábyrgð á honum, hvarf svo hratt í mars og apríl þegar far­ald­ur­inn skall á af fullum þunga.

Þrátt fyrir að efna­hag­ur­inn í Banda­ríkj­unum hafi náð ákveð­inni við­spyrnu síð­ustu mán­uði er staðan enn sú að störfum í land­inu hefur fækkað um fjórar millj­ónir frá því að Trump tók við. Enginn for­seti hefur séð við­líka sam­drátt í störfum eiga sér stað frá lokum seinni heims­styrj­aldar. Raunar er eini for­set­inn fyrir utan Trump sem hefur séð störfum fækka á heilu kjör­tíma­bil á meðan að hann sat í emb­ætti George W. Bush, en á síð­ara kjör­tíma­bili hans fækk­aði störfum um 605 þús­und.

Trump stóð við margt

En hverju lof­aði Trump? og hefur hann staðið við eitt­hvað af því? Svarið við síð­ari spurn­ing­unni er bæði já og nei.

Trump lof­aði að lækka skatta, og það gerði hann. Skatta­lækk­un­ar­pakk­inn sem sam­þykktur var í des­em­ber 2017 er sá stærsti síðan að Ronald Reagan sat á for­seta­stóli. Hann gagn­að­ist efna­meiri Banda­ríkja­mönnum mest, enda fólst meðal ann­ars í honum að fyr­ir­tækja­skattur var lækk­aður úr 35 í 21 pró­sent. En hann hafði líka áhrif á aðra tekju­hópa, enda voru flest hinna sjö tekju­skatts­þrepa lækkuð. Sú lækkun er þó tíma­bundin, og á að renna út 2025, á meðan að lækk­unin á fyr­ir­tækja­skatti er var­an­leg.

Hann lof­aði líka að auka útgjöld til hers­ins, og stóð við það. Slík aðgerð er í senn varn­ar­mála­að­gerð og efna­hags­leg, vegna þess að her­inn tryggir fjölda manns störf í Banda­ríkj­unum og tryggir fjöl­mörgum banda­rískum fyr­ir­tækjum risa­stóra verk­taka­samn­inga vegna smíða á tækjum og tólum fyrir hann. Eitt af því sem Trump lét gera var að hækka laun her­manna, sem skilar því að kaup­máttur þeirra ætti að aukast og þar af leið­andi auka líkur á meiri einka­neyslu.

Stuðningsmenn Trump eru mjög tryggir og reynslan frá 2016 sýnir að það á alls ekki að útiloka að hann geti náð að sigra á ný þótt að kannanir bendi til þess að hann eigi litla sem enga möguleika.
Stuðn­ings­menn Trump eru mjög tryggir og reynslan frá 2016 sýnir að það á alls ekki að úti­loka að hann geti náð að sigra á ný þótt að kann­anir bendi til þess að hann eigi litla sem enga mögu­leika.

For­set­inn sór líka að segja upp ýmsum alþjóð­legum við­skipta­samn­ingum sem hann taldi óhag­stæða fyrir Banda­ríkin. Það hefur hann gert að hluta. Trump rifti frí­versl­un­ar­samn­ingi Banda­ríkj­anna við ell­efu lönd við Kyrrahaf (TTP) og kom því til leiðar að end­ur­samið var um hið svo­kall­aða NAFTA-frí­versl­un­ar­sam­komu­lag Norður-Amer­íku­ríkj­anna þriggja, Banda­ríkj­anna, Mexíkó og Kanada. Þá er ótalið tolla­stríðin sem hann stofn­aði til við Kína og hót­aði að fara í við Evrópu. Til­gang­ur­inn var að flytja störf, sér­stak­lega fram­leiðslu­störf, aftur til ákveð­inna svæða í Banda­ríkj­unum sem spil­uðu lyk­il­rullu í kosn­inga­sigri hans fyrir fjórum árum. Þau hafa hins vegar ekki skilað sér eins og Trump lof­aði þrátt fyrir öll lætin.

En hann stóð ekki við allt

Eitt helsta lof­orð Trump var að hann ætl­aði að eyða hall­anum á alrík­is­sjóðnum. Þar átti hann ekki við að stefnan væri að skila af sér halla­lausum fjár­lögum, heldur líka að eyða þeim halla sem þegar var upp­safn­aður. Þetta ætl­aði Trump að gera með því að nýta samn­inga­tækni sína, sem hann telur að sé á heims­mæli­kvarða, og með því að reka alríkið eins og fyr­ir­tæki.

Þetta hefur, vægt til orða tekið, ekki gengið eftir.

Það er nefni­lega dýrt að lækka skatta jafn skarpt og Trump gerði á sama tíma og útgjöld til hern­að­ar­mála voru stór­aukin. Þegar Trump tók við í jan­úar 2017 var hall­inn á rík­is­sjóði 19,9 billjónir dala. Í yfir­stand­andi mán­uði var hann kom­inn upp í 27 billjónir dali. Hallinn hefur því auk­ist um næstum 36 pró­sent á tæpum fjórum árum.

Skuldir banda­ríska alrík­is­ins eru nú 136 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Til sam­an­burðar má nefna vegna þess mikla halla sem verður á rekstri rík­is­sjóðs Íslands á árunum 2020 og 2021 er búist við að skuldir hins opin­bera fari úr því að vera 28 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í lok síð­asta árs í 48 pró­sent í lok árs 2021. Gert er ráð fyrir að skulda­söfn­unin stöðv­ist við 59 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árið 2025 og taki svo að lækka í kjöl­farið.

Biden vill hækka skatta og stuðla að orkuskiptum

Þær leiðir sem Biden og Trump vilja feta til að takast á við stöð­una í efna­hags­málum verði þeir kosnir í byrjun nóv­em­ber eru afar ólíkar. Aðgerð­ar­pakki Biden kall­ast „Byggjum betur upp aftur“ (e. Build back better). Biden vill auka fjár­fest­ingu í vörum sem fram­leiddar eru í Banda­ríkj­unum með því að setja um 400 millj­arða dali í inn­kaup á slíkum vörum og auka fram­lög í rann­sóknir og þróun um 300 millj­arða dali. Þetta á að búa til fimm millj­ónir nýrra starfa. Stór hluti fjár­mun­anna á að rata í græn fjár­fest­inga­verk­efni og því talar aðgerðin við áherslur Biden í loft­lags­málum. Hann ætlar líka að búa til umtals­verða skatta­lega hvata til ýta á orku­skipti og þannig hvetja fyr­ir­tæki til að nýta frekar nýja og hreinni orku­gjafa í stað jarð­efna­elds­neytis.

Biden vill líka hækka lág­marks­laun upp í 15 dali á klukku­stund, tryggja öllum greiðslur í veik­inda­leyfi og koma á tólf vikna fæð­ing­ar­or­lofi.

Þá vill hann vinda ofan af skatta­hækk­unum Trump á fyr­ir­tæki frá 2017 og hækka fyr­ir­tækja­skatt­inn úr 21 í 28 pró­sent. Það er hluti af skatta­pakka hans sem á að skila alrík­inu fjórum billjónum dala í nýjar árlegar tekjur. Þessu ætlar Biden að ná án þess að hækka beint skatta á íbúa lands­ins sem eru með undir 400 þús­und dali, eða 55,6 millj­ónir króna, í árlega tekjur. Það þýðir að skattar eiga ekki að hækka á þau heim­ili sem eru með 4,6 millj­ónir íslenskra króna í mán­að­ar­tekjur eða minna.

Trump vill gera meira af því sama

Efna­hags­að­gerð­ar­pakki Trump er í grófum dráttum sá að halda kúrs. Hann lagði slag­orðið „Höldum Banda­ríkj­unum frá­bærum“ (e. Keep America great) á hill­una eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og er að not­ast aftur við það sem kom honum í for­seta­stól­inn, „Gerum Banda­ríkin frá­bær á ný“ (e. Make America great again).

Trump seg­ist geta búið til tíu millj­ónir starfa á tíu mán­uðum og á sama tíma fjölgað smærri fyr­ir­tækjum um eina millj­ónum. Þetta ætlar hann að gera með því að lækka skatta enn meira og veita fyr­ir­tækjum auk þess skattaí­viln­anir fyrir að fram­leiða vörur inn­an­lands. Skatta­af­slátt­unum verður sér­stak­lega beint að fyr­ir­tækjum sem eru nú með umtals­verða starf­semi í Kína, sér­stak­lega í lyfja­iðn­að­inum eða í hátækni­geirum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið undanfarið ár