Landsbankinn sektaður um 15 milljónir

Fjár­mála­eft­ir­litið og Lands­bank­inn hafa náð sátt í máli þar sem bank­inn braut gegn ákvæðum laga um verð­bréfa­við­skipti. Lands­bank­inn óskaði eftir að ljúka mál­inu í sátt og féllst á að greiða sekt að fjár­hæð 15 millj­ónum króna.

Fjár­mála­eft­ir­litið og Lands­bank­inn hafa gert með sér sam­komu­lag um að ljúka með sátt máli vegna brota bank­ans um verð­bréfa­við­skipti. Með sam­komu­lag­inu við­ur­kennir Lands­bank­inn að hafa brotið gegn lögum um verð­bréfa­við­skipti en bank­anum láð­ist að til­kynna í þremur til­vikum um breyt­ingu á veru­legum hlut atkvæð­is­réttar í Heima­völlum. Lands­bank­inn féllst á að greiða sekt að fjár­hæð 15 millj­ónum. Þetta kemur fram í sátt bank­ans við fjár­mála­eft­ir­litið.

Láðist að tilkynna um viðskiptin

Hinn 21. desember síðastliðinn gerðu Fjármálaeftirlitið og Landsbankinn með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brota Landsbankans um brot á verðbréfa viðskipti. Meginatriði samkomulagsins fela það í sér að Landsbankinn viðurkennir að hafa í tveimur tilvikum brotið gegn 1. mgr. 78. gr. laga um verðbréfaviðskipti, með því að hafa láðst að tilkynna um breytingu á verulegum hlut atkvæðisréttar í Heimavöllum hf. Einnig viðurkennir bankinn að hafa í einu tilviki brotið gegn 1. mgr. 86. gr. sömu laga, með því að hafa láðst að tilkynna um breytingu á verulegum hlut atkvæðisréttar í Heimavöllum hf. innan lögbundins tímafrests.

Þann 31. maí 2018 fór eignarhlutur Landsbankans yfir 5 prósent af útgefnu hlutafé í Heimavöllum hf. án þess að tilkynnt væri um viðskiptin. Jafnframt fór eignarhlutur málsaðila undir 5 prósent af útgefnu hlutafé í Heimavöllum, þann 7. júní 2018, án þess að tilkynnt væri um viðskiptin. Hinn 11. júní 2018 fór eignarhlutur málsaðila yfir 5 prósent af útgefnu hlutafé í Heimavöllum en málsaðili tilkynnti um viðskiptin hinn 27. júní 2018 og láðist því að tilkynna innan tímamarka sem tilgreind eru.

Landsbankinn óskaði eftir að ljúka málinu með sátt

Í sáttinni segir að Landsbankinn óskaði eftir að ljúka málinu í sátt og þá hafi bankinn gripið til ráðstafana til að stuðla að því að atvik sem þessi eigi sér ekki stað á ný. Landsbankinn féllst samkvæmt sáttinni á að greiða sekt að fjárhæð 15.000.000 krónur. Við ákvörðun sektarfjárhæðar var litið til þess að málsaðili tilkynnti Fjármálaeftirlitinu að eigin frumkvæði um öll brotin. Við greiðslu sektarfjárhæðar er málinu lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbréf

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár