Almenningur enn leyndur upplýsingum um fríðindakostnað þingmanna

Akst­urs­málið svo­kall­aða verður enn og aftur til umfjöll­unar á fundi for­sætis­nefndar sem fram fer í dag. Fyrri svör og aðgerðir nefnd­ar­innar hafa ekki þótt nægj­an­leg. Skýr krafa er um að allt verði upp­lýst, langt aftur í tím­ann.

Alþing­is­menn njóta þeirrar sér­stöðu að þeir þurfa að ákveða sín á milli hvort rann­saka eigi þá fyrir brot í starfi. Þeir eru ekki með neina eig­in­lega yfir­menn, nema auð­vitað almenn­ing sem fær að segja skoðun sína á þeim í kosn­ingum. Mikið reynir á þá stöðu um þessar mundir vegna akst­urs­máls­ins svo­kall­aða, þar sem hluti þing­manna liggur undir grun um að hafa mis­notað sér end­ur­greiðslu­kerfi vegna akst­urs eigin bif­reiða til að fá mjög háar og skatt­frjálsar end­ur­greiðslur fyrir akstur sem erfitt er að rök­styðja að teng­ist beint þing­manna­störfum.

Valdið til að opin­bera þessar upp­lýs­ingar liggur hjá for­sætis­nefnd, sem í sitja for­seti Alþingis og vara­for­setar þess. Nefndin hefur það hlut­verk að skipu­leggja þing­haldið, hefur umsjón með alþjóða­sam­starfi, fjallar um fjár­hags­á­ætl­anir þings­ins og setur almennar reglur um rekstur þings­ins og stjórn­sýslu. Það er því í hennar verka­hring að breyta reglum sem eru óljósar eða hafa verið mis­not­aðar. Og það er líka í hennar verka­hring að ákveða hversu mikið almenn­ingur fær að vita um þá meintu mis­notkun og þá sem bera ábyrgð á henni.

Árum saman hafa fjöl­miðlar spurst fyrir um akst­urs­kostnað Alþing­is­manna. Aldrei hefur þótt til­hlýði­legt að upp­lýsa um hann.

Tvær fyrirspurnir

Í fyrra lagði Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, fram fyr­ir­spurn um málið. Í svari þáver­andi for­seta Alþing­is, Unnar Brár Kon­ráðs­dótt­ur, við fyr­ir­spurn­inni, sem var birt í byrjun nóv­em­ber, kom fram að frá byrjun árs 2013 og til loka árs 2016 hafi þing­menn fengið greiddar 163 millj­ónir króna vegna akst­urs eigin bif­reiða. Talan var ekk­ert frekar sund­ur­greidd og Björn Leví lagði því fram aðra fyr­ir­spurn í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Svar við þeirri fyr­ir­spurn barst 8. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þótt það svar hafi verið fjarri því tæm­andi varp­aði það meira ljósi á mögu­lega sjálftöku þing­manna en fyrri svör höfðu nokkru sinni gert.

Þar sagði meðal ann­ars að sá þing­maður sem fékk hæstu árlegu end­ur­greiðsl­una vegna akst­urs­kostn­aðar í fyrra hafi fengið sam­tals rúm­lega 4,6 millj­ónir króna end­ur­greidd­ar. Það þýddi að þing­mað­ur­inn fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­ur­greiðslu úr rík­is­sjóði vegna keyrslu sinn­ar. Í svörum for­seta var greint frá greiðslum til þeirra tíu þing­manna sem fengu hæstu end­ur­greiðsl­urnar vegna akst­urs á und­an­förnum árum. Nöfn þeirra voru hins vegar ekki birt né er greint frá því hvaða kjör­dæmi þing­menn­irnir til­heyra, þar sem það er talið fara nærri per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ing­um.

Þessar upp­lýs­ingar sýndu svart á hvítu að pottur væri brot­inn. Augljóst væri að það stæð­ist illa skoðun að þing­maður væri að keyra 47.644 kíló­metra á einu ári ein­ungis vegna vinnu sinnar sem þing­maður. Þess utan var sýnt fram á það með útreikn­ingum frá Félagi íslenskra bif­reið­ar­eig­enda að rekstr­ar­kostn­aður bif­reiðar sem keyrð er þá vega­lengd er ein­ungis um tvær millj­ónir króna, ekki 4,6 millj­ónir króna. Af þeim tölum var ljóst að þing­menn gátu hagn­ast umtals­vert umfram kostnað af því að fá end­ur­greiðslur vegna akst­urs.

Í kjöl­farið hefur það verið krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs verði gerðar opin­berar og að þær verði per­sónu­grein­an­legar. Nú er auk þess krafa um að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna verði gerðar opin­berar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um er að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla. Allt ætti að koma upp á borðið.

Einn þeirra sem legið hefur undir ámæli vegna þeirra greiðslna er Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sem er með skráð lög­heim­ili í Norð­aust­ur­kjör­dæmi en hefur búið í Breið­holti í þrjá ára­tugi. Stein­grímur fær 134 þús­und krónur á mán­uði í dval­ar­kostnað frá Alþingi á mán­uði, sam­kvæmt frétt DV. Umræddar greiðslur eru skatt­frjálsar.

Ákveðið að breyta reglunum

For­sætis­nefnd fund­aði tví­vegis um málið í síð­ustu viku, fyrst á mánu­dag og svo aftur á mið­viku­dag. Eftir síð­ari fund­inn var send út yfir­lýs­ing frá Stein­grími þess efnis að upp­lýs­ingar um þing­far­ar­kostnað þing­manna verði fram­vegis birtar á sér­stakri vef­síðu. Þær upp­lýs­ingar verði mið­aðar við 1. jan­úar 2018 og upp­færðar mán­að­ar­lega.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur lagt fram fyrirspurnir um aksturskostnað þingmanna. Þær fyrirspurnir hafa opinberað vandkvæði á því fyrirkomulagi sem er í gildi.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur lagt fram fyr­ir­spurnir um akst­urs­kostnað þing­manna. Þær fyr­ir­spurnir hafa opin­berað vand­kvæði á því fyr­ir­komu­lagi sem er í gildi.

Þess utan voru sam­þykktar sam­hljóða breyt­ingar á reglum um þing­far­ar­kostn­að. Í þeim fel­ast þrjár efn­is­breyt­ing­ar. Þær breyt­ingar voru birtar á vef Alþingis á föstu­dag.

Í fyrsta lagi verða ákvæði um bíla­leigu­bíla skýr­ari, einkum fyrir þá þing­menn sem falla undir svo­kall­aðan heim­an­akst­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­lega um þing­tím­ann. Það eru þing­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­ur­nesjum, Vest­ur­landi, Árnes­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­reið­um, sem kemur til end­ur­greiðslu, verður bund­inn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kíló­metra­fjölda skal skrif­stofa Alþingis láta umræddum þing­manni í té bíla­leigu­bíl. Í til­kynn­ingu um breyt­ing­arnar segir að þessi mörk hámarks­akst­urs á eigin bif­reið geti þó komið til end­ur­skoð­unar á grund­velli verð­þró­unar eða útboðs, en for­sætis­nefnd skuli þá sam­þykkja slíka breyt­ingu. „Óski alþing­is­maður eigi að síður að nota eigin bif­reið falla greiðslur niður þegar 15.000 km-mark­inu er náð, svo og heim­ild til að nota bíla­leigu­bíl. Alþingi greiðir allan rekstr­ar­kostnað bíla­leigu­bif­reiðar, en skrif­stofan getur sett nán­ari vinnu­reglur um hann.“

Ný máls­grein er svo bætt inn í reglur for­sætis­nefndar um til­högun á greiðslu ferða­kostn­aðar. Samkvæmt henni skal þing­maður sem fær greiddan ferða­kostnað eða end­ur­greiddan kostnað „ávallt greina frá til­efni ferðar í akst­urs­bók, svo sem heim­ferð, fundi, sam­komu o.s.frv. Enn fremur skulu fylgja með önnur stað­fest­ing­ar­gögn, svo sem aug­lýs­ing um fund, fund­ar­boð, tölvu­póstur og annað slíkt, og getur skrif­stofan sett nán­ari vinnu­reglur um þau.“

Önnur ný máls­grein sem bæt­ist við regl­urnar segir að skrif­stofa Alþingis skuli láta alþing­is­manni, sem notar bíla­leigu­bif­reið, í té almenna skil­mála um notkun hennar, þar á meðal um skrán­ingu akst­urs, tíma­bund­inn akstur ann­arra við sér­stakar aðstæður, tak­mörkuð einka­af­not og um trygg­ingar. „Í slíkum skil­málum má ákveða að þing­maður end­ur­greiði allt að 5% af kostn­aði vegna til­fallandi óskráðra einka­af­nota. Önnur einka­af­not skal skrá og koma þau til frá­dráttar á reikn­ingi.“

Enn leynd yfir eldri upplýsingum

Allar ofan­greindar breyt­ingar virka til fram­tíðar og eiga að koma í veg fyrir það að þing­menn geti mis­notað sér end­ur­greiðslu­kerfi þings­ins sem mat­ar­holur.

Þær taka hins vegar ekk­ert á meintri sjálftöku fjölda þing­manna á und­an­förnum árum þar sem end­ur­greiðslur vegna akst­urs eigin bif­reiða hafa hlaupið á tugum millj­óna króna. Grófasta dæmið, Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fékk, líkt og áður sagði, 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar í fyrra, eða 385 þús­und krónur á mán­uði. Allar greiðsl­urnar eru skatt­frjálsar. Ásmundur hefur geng­ist við því að hafa kraf­ist end­ur­greiðslu fyrir keyrslu sem tengd­ist próf­kjörs­bar­áttu hans og þátta­gerð fyrir sjón­varps­stöð­ina ÍNN, sem nú er gjald­þrota.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er sá sem keyrir mest allra þingmanna á eigin bíl. Og sá sem fær langhæstu endurgreiðslur vegna þess.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá sem keyrir mest allra þing­manna á eigin bíl. Og sá sem fær lang­hæstu end­ur­greiðslur vegna þess.

Kjarninn spurði alla lands­byggð­ar­þing­menn um keyrslu þeirra á und­an­förnum árum og við þá fyr­ir­spurn upp­ljóstrað­ist að Vil­hjálmur Árnason, annar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var í öðru sæti yfir þá sem fengu hæstu end­ur­greiðsl­urnar. Hann fékk um þrjár og hálfa milljón króna end­ur­greiddar í fyrra, eða 288 þús­und krónur á mán­uði skatt­frjálst. Hinir þrír á topp tíu list­anum sem hafa opin­berað keyrslu sína eru Oddný Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ingar, Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, og Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks. Þau eru öll með end­ur­greiðslur sem eru undir 2,5 millj­ónum króna á ári og í neðri hluta topp tíu list­ans. Enn vantar því ansi mörg nöfn á topp tíu list­ann.

Fundað í dag um hvað almenningur fær að vita

Kjarninn hefur í tvær vikur reynt að fá upp­lýs­ingar frá for­sætis­nefnd Alþingis um hversu háar greiðslur hver og einn þing­maður hefur fengið í end­ur­greiðslu fyrir útlagðan kostnað vegna akst­urs á árunum 2013-2017. Í þeirri fyr­ir­spurn hefur einnig verið farið fram á að til­greint sé hversu marga kíló­metra þeir keyrðu á hverju ári fyrir sig.

Í ítrek­aðri fyr­ir­spurn, sem send var fyrir helgi, var auk þess farið fram á að fá allar upp­lýs­ingar um annan greiddan þing­fara­kostnað, t.d. vegna hús­næð­is­kostn­aðar, flug­ferða og bíla­leigu­bíla, fyrir sama tíma­bil. Þá hefur verið farið fram á að fá tæm­andi upp­lýs­ingar um hvernig eft­ir­liti með akst­urs­kostn­aði þing­manna, og öðrum þing­fara­kostn­aði, sé háttað og hvort það sé til að mynda. kannað með ein­hverjum hætti hvort að kröfur þeirra um end­ur­greiðslu fyrir útlagðan kostnað séu réttar. Þá hefur verið farið fram á að fá upp­lýs­ingar um hver sinni því eft­ir­liti.

Í fyr­ir­spurn Kjarnans hefur eft­ir­far­andi einnig verið tekið fram: „Augljóst er að fjöl­miðlar geta ekki sinnt aðhalds­hlut­verki sínu ef umræddar upp­lýs­ingar fást ekki afhentar. Ótækt er að beita fyrir sig þeim rökum að rík­ari hags­munir séu fólgnir í því að veita ekki per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar og láta sem að sá frið­helg­is­réttur ein­stakra þing­manna sé rík­ari en réttur almenn­ings, vinnu­veit­anda þing­manna, til þess að fá upp­lýs­ingar um með­ferð á opin­beru fé.“

Í svari sem Stein­grímur sendi Kjarn­anum á föstu­dag kom fram að þessi mál verði á dag­skrá næsta fundar for­sætis­nefndar. Hann fer fram í dag og hefst klukkan 11:45.

Tilhæfulausir reikningar eru fjársvik

Af hverju er mik­il­vægt að þessar upp­lýs­ingar komi allar fram? Augljósa ástæðan er sú að grunur er um að ein­hverjir þing­menn hafi orðið upp­vísir af sjálftöku á fé. Fyrir tæpum tveimur vikum ræddi Frétta­blaðið akst­urs­mál þing­manna við Jón Þór Óla­son, sér­fræð­ing í refsirétti. Þar sagði hann: „Ef maður fram­vísar til­hæfu­lausum reikn­ingum og er að búa eitt­hvað til í því skyni að auðg­ast sjálf­ur, þá er maður að blekkja þann sem á að greiða reikn­ing­inn. Leiði slíkur reikn­ingur til greiðslu er blekk­ingin búin að ná árangri og sá sem sér um útgreiðsl­una er í villu. Það eru fjár­svik.”

Sam­kvæmt reglum um akst­urs­greiðslur til þing­manna á að end­ur­greiða kostn­að­inn þegar þeir eru að sinna starfi sínu sem þing­menn. Sér­stak­lega er til­greint í regl­unum að greiðsl­urnar séu vegna funda sem þing­menn­irnir eru boð­að­ir. Ef þing­menn hafa látið skatt­greið­endur greiða fyrir mun meiri keyrslu en þeim er ætlað að standa kostnað af fyrir þing­menn verður að rann­saka það.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, ræddi þessa stöðu í Silfrinu um liðna helgi. Þar sagði hún m.a.: „Nú er rök­studdur grunur uppi um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almanna­fé. Og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rann­sókn í þeim efn­um.“ Þar sagð­ist hún aðeins muna eftir einu til­felli þar sem rann­sókn hafi verið sett af stað á spill­ing­ar­máli stjórn­mála­manns á Íslandi og það hafi verið mál Árna Johnsen en hann var árið 2003 dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir fjár­drátt og umboðs­svik í opin­beru starfi, mútu­þægni og rangar skýrslur til yfir­valda.

Það ætti að skýr­ast síðar í dag hvort og þá hvernig þing­heimur ætlar að stíga næsta skref í að opin­bera og rann­saka fríð­inda­greiðslur til þing­manna þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár