Páll Jóhann greiðir ekki atkvæði um kvótasetningu á makríl

Páll Jóhann Pálsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hyggst ekki greiða atkvæði um frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um kvóta­setn­ingu á mak­ríl vegna tengsla sinna við útgerð­ar­fé­lagið Vísi í Grinda­vík, þar sem eig­in­kona hans er meðal hlut­hafa.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Páli Jóhanni, sem hann sendi frá sér nú rétt í þessu.

Til­kynn­ingin fer hér eftir í heild sinni.

„Vegna umræðu um fyr­ir­hug­aða kvóta­setn­ingu á mak­ríl vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Á næstu vikum verða atkvæði greidd á Alþingi um frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um kvóta­setn­ingu á mak­ríl. Vegna tengsla minna við fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi mun ég sitja hjá við afgreiðslu máls­ins, líkt og ég hef gert við afgreiðslu ann­arra mála af sama toga.

Í störfum mínum á Alþingi hef ég ekki dregið fjöður yfir þá stað­reynd, að tengsl mín við sjáv­ar­út­veg­inn eru tölu­verð. Ég hef verið til sjós, starfað við sjáv­ar­út­veg í landi og á 5% hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Vísi hf., eins og fram kemur í hags­muna­skrán­ingu á vef Alþingis. Því til við­bótar er eig­in­kona mín eig­andi og fram­kvæmda­stjóri smá­báta­út­gerð­ar­innar Marvers ehf. Þau tengsl eru ekki til­greind í hags­muna­skrán­ingu, enda er í henni ekki gert ráð fyrir skrán­ingu á eigum maka þing­manna né gef­inn mögu­leiki á að bæta við auka athuga­semdum í þeirri skrán­ingu.

Vegna ofan­greindra tengsla hef ég ekki greitt atkvæði í atkvæða­greiðslum þings­ins um kvóta­mál, veiði­leyfa- eða veiði­gjalda­mál. Hins vegar hef ég áskilið mér rétt til að taka þátt í umræðu um þessa grund­vall­arat­vinnu­grein þjóð­ar­innar, enda er mik­il­vægt að sjón­ar­mið þeirra sem þekkja vel til grein­ar­innar heyr­ist.

Það er mik­il­vægt að á Alþingi komi fram ólík sjón­ar­mið um mik­il­væg mál, enda vilja allir þing­menn vinna þjóð­inni gagn. Sjálfur hef ég lýst yfir efa­semdum um ágæti þess að hlut­deild­ar­setja hand­færa­veiðar smá­báta á mak­ríl (sjá t.d. hér). Sú skoðun mín breytir ekki þeirri stað­reynd, að ég mun sitja hjá þegar atkvæði verða greidd um málið.“

Virð­ing­ar­fyllst,
Páll Jóhann Pálsson

alþing­is­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár