Fasteignagjald hækkað um 3,5 milljarða á síðustu þremur árum

Á tíma­bil­inu 2013-2016 hafa árleg fast­eigna­gjöld á atvinnu­hús­næði hækkað um 3,5 millj­arða. Stjórn Félags atvinnu­rek­enda hyggst stefna Reykja­vík­ur­borg ef hún lækkar ekki álagn­ing­ar­pró­sentu fast­eigna­gjalda.

Ólafur Stephensen, formaður Félags atvinnurekenda
Ólafur Steph­en­sen, for­maður Félags atvinnu­rek­enda Mynd: G JOHANNESSON 354-5689220 89

Árleg fast­eigna­gjöld á atvinnu­hús­næði hækk­uðu um 3,5 millj­arða á tíma­bil­inu 2013-2016. Gera má ráð fyrir því að Félag atvinnu­rek­enda stefni Reykja­vík­ur­borg fyrir órök­studda beit­ingu á heim­ild til að hækka fast­eigna­gjaldið.

Stjórn Félags atvinnu­rek­enda hefur sent frá sér ályktun þar sem hún hvetur til lækk­unar álagn­ing­ar­pró­sentu fast­eigna­gjalda á atvinnu­hús­næði til mót­vægis við gíf­ur­legar hækk­anir á fast­eigna­mati. Á vef Þjóð­skrár kemur fram að búist sé við því að heild­ar­mat fast­eigna á Íslandi muni hækka um 13,8% frá yfir­stand­andi ári, þar af muni atvinnu­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækka um 10%. Frá árinu 2013 hefur fast­eigna­gjald á atvinnu­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 55%, en meiri­hluti íslenskra fyr­ir­tækja er stað­settur þar.

[adspot]Félag atvinnu­rek­enda telur fast­eigna­gjöld vera óheppi­lega skatt­heimtu á fyr­ir­tæki, þar sem hún er óháð afkomu. Hækkanir á fast­eigna­verði og þar með fast­eigna­mati eru ekki bein­tengd afkomu fyr­ir­tækja, en stuðla að auk­inni skatt­byrði þeirra.

Fast­eigna­gjald á atvinnu­hús­næði er 1,32% af fast­eigna­mati, en sveit­ar­fé­lögum er heim­ilt að hækka það upp í 1,65%. Flest sveit­ar­fé­lögin nýta sér þessa heim­ild, árið 2016 voru Vest­manna­eyja­bær og Sel­tjarn­ar­nes­kaup­staður einu sveit­ar­fé­lögin þar sem hún var ekki nýtt. Í ályktun sinni segir Félag atvinnu­rek­enda frá því að send hafi verið beiðni til allra sveita­fé­laga um rök­stuðn­ing fyrir beit­ingu álags­ins, en að engin efn­is­legur rök­stuðn­ingur hafi komið fram. Einnig kemur fram að félagið hygg­ist stefna Reykja­vík­ur­borg þess efnis síðar í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið undanfarið ár