Aðstoðar fyrirtæki í jafnréttismálum

Sóley Tóm­as­dóttir hefur stofnað ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Just. Hún býður upp á kynn­ingar og nám­skeið til að skapa vinnu­að­stæður í fyr­ir­tækjum þar sem öllu starfs­fólki líður vel.

Sóley Tómasdóttir
Sóley Tóm­as­dóttir Telur þörf fyrir sér­fræði­þekk­ingu á sviði jafn­réttis og fjöl­breyti­leika­mála. Býður upp á þjón­ustu til fyr­ir­tækja um hvernig hægt er að laga það sem er að. Mynd: VG

Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, hefur stofnað ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Just úti í Hollandi. Samkvæmt vef­síð­unni mun fyr­ir­tækið bjóða ráð og stuðn­ing til fyr­ir­tækja um hvernig hægt er að fagna fjöl­breyti­leika og forð­ast skað­leg félags­leg norm. „Í raun­inni að búa til fyr­ir­tæki í kringum þá þekk­ingu og reynslu sem ég hef aflað mér í gegnum tíð­ina,“ segir Sóley í sam­tali við Stundina. 

„Ég held og finn að það er mikil þörf fyrir sér­fræði­þekk­ingu á sviði jafn­réttis og fjöl­breyti­leika­mála í fyr­ir­tækjum. Atburðir und­an­far­inna miss­era hafa sýnt það hvað kynja­jafn­rétti varðar en það varðar líka aðra hópa. Ég er í raun bara að bjóða fram aðstoð mína til að fyr­ir­tæki geti skapað vinnu­að­stæður þar sem öllu starfs­fólki líður vel.“

Sóley flutti til Hollands árið 2016 og útskrif­að­ist með masters­gráðu í kynja- og jafn­rétt­is­fræðum við Radboud-háskól­ann í ár. 

Fyr­ir­tækið mun þjón­usta Holland og Ísland til að byrja með og talar Sóley …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár