Hörð lending

Upp­gang­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni hefur verið ævin­týri lík­astur á und­an­förnum árum. Óhætt er að tala um að gengið hafi verið hratt um gleð­innar dyr í grein­inni. Víða er nú hag­ræð­ing í kort­unum og útlit fyrir sam­drátt í komu ferða­manna til lands­ins.

Í nóv­em­ber 2011 stofn­aði Skúli Mogensen WOW air. Seint í þeim mán­uði opn­aði Jóna Lovísa Jóns­dóttir, prestur og fit­ness­meist­ari, miða­sölu­vef fyr­ir­tæk­is­ins og 31. maí 2012 fór það í jóm­frú­ar­flug sitt til Parísar. Strax í byrjun var ljóst að Skúli Mogensen, mað­ur­inn á bak­við WOW air og eini eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, ætl­aði sér að fara óhefð­bundnar leiðir. Ástæða þess að hann fékk Jónu Lovísu til að hefja starf­sem­ina var sú að Skúli vildi brjóta upp þá hefð að ráða­menn væru fengnir til slíkra verka. WOW air hefði viljað leitað til ein­hvers sem hefði dugnað, kjark og þor til að ögra sjálfum sér og við­teknum venjum. Það yrði líka leið­ar­ljós WOW air í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Starf­semi sem lauk í gær­morgun með gjald­þroti.

Á þessum tíma var efna­hagur lands­ins byrj­aður að taka kröft­ug­lega við sér eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og dramat­ískan tíma í þjóð­líf­inu, ekki síst eftir að eld­gos hófst í Eyja­fjalla­jökli í apríl 2010 og olli gíf­ur­lega kostn­að­ar­samri röskun á flugi í Evrópu, vegna ösk­unnar sem fauk yfir álf­una. Ísland var á þessum tíma sífellt í fréttum og á sjón­varps­skjám, og lík­lega hefur landið aldrei fengið aðra eins aug­lýs­ingu á erlendum vett­vangi, þó margir hafi verið æfir vegna þess hve mikil áhrif gosið hafði á flug­um­ferð.

Gos og betri tíð

Það eru margir sem rekja upp­hafið að miklum upp­gangi í íslenskri ferða­þjón­ustu sér­stak­lega til þessa atburðar, án þess að það sé hægt að full­yrða mikið um hversu stóran þátt hann átti í því að kveikja áhuga fólks erlendis á Íslandi. Hvað sem það var sem kveikti neist­ann, þá upp­hófst tíma­bil í ferða­þjón­ust­unni sem var með ólík­indum grósku­mikið.

WOW air varð til við upp­haf þess tíma­bils og varð líka nokk­urs konar birt­ing­ar­mynd þess upp­gangar sem átti sér stað. Rekst­ur­inn var erf­iður til að byrja með og á fyrstu þremur rekstr­ar­árum sínum tap­aði WOW air sam­tals 1,7 millj­örðum króna. Á árinu 2015 varð hins vegar við­snún­ingur þegar WOW air hagn­að­ist um 1,1 millj­arð króna. Í við­tali við fréttir Stöðvar 2, þegar þessi nið­ur­staða lá fyrir, sagði Skúli að „í öllum mínum sam­skiptum við reynslu­bolta að utan þá hafa þeir verið mjög imponeraðir nán­ast frá fyrsta degi með það sem við höfum verið að gera. Það hefur ávallt verið hvatn­ingin frekar heldur en að hlusta á svart­sýn­is­röflið á Ísland­i.“

Í lok árs 2016 var Skúli svo val­inn við­skipta­maður árs­ins, eftir að hafa lent í öðru sæti árið 2015. Hann virt­ist vera að finna nýja leið til þess að takast á við hinn gam­al­gróna flug­rekstr­ar­heim og lét hafa eftir sér í erlendum fjöl­miðlum í upp­hafi árs 2017 að hann sæi fyrir sér að það yrði ókeypis að fljúga í fram­tíð­inni. Tekj­urnar myndu frá sölu á hót­elgist­ingu, leigu á bílum og annarri auka­þjón­ustu.

Og WOW air var ekki hætt. Fyr­ir­tækið skil­aði met­hagn­aði árið 2016, alls 4,3 millj­örðum króna. Skúli fór í við­tal við Björn Inga Hrafns­son í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni, sem er ekki lengur til, snemma árs 2017. Þar ræddu þeir meðal ann­ars það mark­mið WOW air að verða stærra en Icelandair. Skúli sagði að það væru veru­legar líkur á því að WOW air yrði með fleiri far­þegar strax árið eftir. WOW air var þá að und­ir­búa að taka inn breið­þotur í starf­semi sína og fljúga lengri flug­leggi, sem hafði ekki verið hluti af kjarna­starf­semi WOW air fram að þeim tíma.

Gosið í Eyjafjallajökli vakti heimsathygli á Íslandi. Sem reyndist mikil landkynning.
Gosið í Eyja­fjalla­jökli vakti heims­at­hygli á Íslandi. Sem reynd­ist mikil land­kynn­ing.

Í við­tal­inu sagði Skúli að hann hefði „látið það líka flakka að það er ágætt að stefna að því að verða Íslands­meist­ari en ég hef miklu meiri áhuga á að verða heims­meist­ari. Þess vegna er ég að horfa á Norwegian með þeirra 155 vélar og þeir verða með 178 vélar á næsta ári. Þannig að þegar við erum að bera okkur saman við önnur flug­fé­lög þá erum við að horfa á fremstu lággjalda­fé­lögin í heim­inum og læra af þeim og skoða hvernig þau eru að vaxa og hvaða ákvarð­anir þau eru að taka. Fyrir vikið erum við að fara erlendis líka. Það er afleið­ing af því, að við erum að verða stærri en Icelandair, en það er ekk­ert mark­mið í sjálfu sér.“

Samdráttur í kortunum

Nú er WOW air farið á haus­inn. Og framundan er sam­dráttur í ferða­þjón­ustu, miðað við árið í fyrra, sem var þó eftir sem áður enn eitt metárið í geir­anum. Um 2,5 millj­ónir ferða­manna heim­sóttu landið miðað við 2,3 millj­ónir 2017. Gjald­eyr­is­tekjur sem erlendir ferða­menn færa þjóð­ar­bú­inu ár hvert eru metnar á yfir 500 millj­arða, miðað við stöðu mála eins og hún var í fyrra. Engin atvinnu­grein kemst nærri ferða­þjón­ust­unni, hvað þetta varðar, og er hún nú orðin mikið burð­ar­virki í hag­kerf­inu. Stærsta stoðin undir íslenska efna­hags­kerf­inu.

Ef horft er aftur til árs­ins 2010 þá voru gestir árlega 450 þús­und og gjald­eyr­is­tekjur vegna ferða­þjón­ustu aðeins um 20 pró­sent af því sem þær eru nú. Það er ekki aðeins mikil fjölgun sem hefur skipt máli heldur einnig mikil grósku í upp­bygg­ingu ýmissar þjón­ustu, svo sem veit­inga- og gisti­þjón­ustu.

Það er til marks um miklar breyt­ingar á und­an­förnum árum, hversu mikið lands­mönnum hefur fjölgað.

Hinn 1. jan­úar 2010 bjuggu 317.600 á Íslandi en 1. jan­úar á þessu ári var fjöld­inn kom­inn upp í 356 þús­und. Á þessum átta ára tíma hefur lands­mönnum því fjölgað um tæp­lega 40 þús­und manns. Þar af hefur vinnu­mark­að­ur­inn stækkað um 20 þús­und ein­stak­linga og telur hann nú um 203 þús­und.

Í tölum Hagstofu Íslands hefur mátt sjá að stór hluti nýrra starfa hefur verið í ýmsum störfum innan ferða­þjón­ust­unnar og bygg­ing­ar­iðn­aði. Um 75 pró­sent nýrra skatt­greið­enda á und­an­förnum árum hafa verið inn­flytj­endur, sem hafa komið hingað til lands til að vinna hin ýmsu störf, ekki síst innan ferða­þjón­ust­unnar. Að þessu leyti má segja að upp­gangs­tím­inn í ferða­þjón­ust­unni hafi ekki aðeins styrkt hag­kerfið, almennt, heldur ekki síður haft víð­tæk sam­fé­lags­leg áhrif þar sem hlutur inn­flytj­enda af heild­ar­fjölda hefur vaxið hratt.

Of dökk mynd?

Vaxt­ar­verkir fylgja gjarnan hraðri upp­bygg­ingu í heilum atvinnu­greinum og það hefur verið raunin með ferða­þjón­ust­una. Sér­stak­lega hafa verka­lýðs­fé­lög og stétt­ar­fé­lög kvartað undan því að sá mikli straumur erlendra starfs­manna sem komið hafi til lands­ins á und­an­förnum árum, hafi verið það mik­ill að ekki hafi tek­ist að passa upp á að fólkið njóti rétt­inda sem það á að njóta.

Þetta hefur meðal ann­ars verið meðal þess sem fólk í for­svari fyrir stétt­ar­fé­lögin hefur nefnt að sé mik­il­vægt að upp­ræta með öllu. Í þeim hörðu kjara­við­ræðum og verk­falls­að­gerðum hafa spjótin ekki síst beinst að ferða­þjón­ust­unni, og útlit fyrir að þær aðgerðir haldi áfram. Þannig hefur óánægja með lág laun ekki síst vera hjá starfs­fólki ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja.

Þrátt fyrir að nýj­ustu tölur bendi til þess að sam­dráttur verði í komu ferða­manna til lands­ins á þessu ári, þá er ekki þar með sagt að alvar­leg staða sé komin upp. Ferða­manna­fjöld­inn gæti orðið svip­aður á þessu ári og hann var á árunum 2017 og 2018. Erf­ið­leikar hjá flug­fé­lögum geta sett strik í reikn­ing­inn.

WOW tapar dauðastríðinu

Þeir erf­ið­leikar hafa verið að gerj­ast í tvö ár. Mikil og skörp hækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu, áfram­hald­andi styrk­ing krón­unnar og gríð­ar­lega hörð sam­keppni gerði öllum sem kepptu á mark­aðnum erfitt fyrir strax árið 2017.

Áhrifin á WOW air voru mikil. Fyr­ir­tækið tap­aði 2,4 millj­örðum króna á árinu 2017 og um mitt ár 2018 átti fyr­ir­tækið of lítið eigið fé til að takast á við þá stöðu sem var uppi. Icelandair skil­aði hagn­aði það árið en hann var 58 pró­sent lægri en árið áður. Munurinn var þó sá, á fyr­ir­tækj­unum tveimur, að Icelandair átti mikið eigið fé til að takast á við sveiflur og til að leið­rétta mis­tök sem það hafði gert í breyt­ingum á rekstr­ar­mód­eli sínu.

Eins og greint hefur verið frá und­an­farna mán­uði þá hefur WOW air verið í líf­róðri mán­uðum saman. Í raun hafði starf­semi félags­ins dreg­ist saman um helm­ing áður en það hætti loks starf­semi, frá því hún var umfangs­mest, en þá var félagið að flytja til lands­ins 600 til 700 þús­und erlenda ferða­menn á ári. Í stað þess að verða heims­meist­ari, og stækkað flota sinn upp í á annað hund­rað vélar, hefur fyr­ir­tækið þurft að draga skarpt saman seglin. Vélunum sem það notar hafði fækkað úr 24 í 11. Þar af voru tvær kyrr­settar í lið­inni viku og enn fleiri á fimmtu­dags­kvöld.

Í upp­hafi lið­innar viku tóku hluti kröfu­hafa WOW air síðan fyr­ir­tækið yfir. Hlutafé Skúla Mogensen átti að afskrifa að öllu leyti með þeirri aðgerð en hann átti að geta haldið litlum hlut vegna þess að Skúli til­heyrði líka hópi kröfu­hafa. Enn átti þó eftir að hnýta marga lausa, og erf­iða, enda í þeirri veg­ferð, meðal ann­ars með því að semja við aðra kröfu­hafa fyr­ir­tæk­is­ins og að sann­færa ein­hvern um að koma með nýtt hlutafé, um fimm millj­arða króna hið minnsta, inn í rekst­ur­inn. Það náð­ist ekki og WOW air skil­aði inn flug­rekstr­ar­leyf­inu í gær­morgun.

Hvernig sem færi hjá WOW air þá var staða félags­ins þegar búin að taka það miklum breyt­ingum á skömmum tíma, að tölu­vert högg var þegar komið á ferða­þjón­ust­una. Það mun koma í ljós í sumar, hversu mikið það verður, en yfir­leitt skýrist bók­un­ar­staðan fyrir háanna­tím­ann ekki end­an­lega fyrr á vor­mán­uðum, þar sem sífellt algeng­ara er að ferða­menn bóki sér frí með skömmum fyr­ir­vara.

Icelandair glímir við annars háttar vanda

Icelandair hefur einnig gengið í gegnum tölu­verða erf­ið­leika að und­an­förnu, og tap félags­ins á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs upp á 6,8 millj­arða króna gefur vís­bend­ingu um harða sam­keppni í flug­iðn­aði í heim­inum um þessar mundir.

Slök afkoma Icelandair gerði það að verkum að það virkj­uð­ust ákvæði gagn­vart eig­endum skulda­bréfa­flokka félags­ins sem ekki tókst að end­ur­semja við. Því fékk Icelandair um tíu millj­arða króna að láni frá rík­is­bank­anum Lands­bank­anum í byrjun árs 2019 til að gera upp við þá. Í raun var Lands­bank­inn að taka yfir þann hluta fjár­mögn­unar Icelandair vegna þess að skulda­bréfa­eig­end­urnir vildu ekki halda á henni lengur.

Und­an­farnir mán­uðir hafa líka leitt að sér aðrar ófyr­ir­séðar áskor­anir, og bann við notkun á 737 Max 8 vélum Boeing, eftir hörmu­leg flug­slys í Indónesíu og Eþíópíu sem urðu sam­tals 346 að bana, öllum um borð í báðum vélum, hefur haft nei­kvæð áhrif á starf­sem­ina. Í til­kynn­ingum frá Icelandair hefur þó komið fram að félagið geti til skamms tíma leyst þann vanda sem fylgir því að þurfa að taka þrjár vélar af fyrr­nefndri gerð úr umferð, en til lengri tíma þarf að finna var­an­lega lausn á mál­unum, ef bannið við notkun á vél­unum dregst á lang­inn.

Icelandair er þó í sterkri fjár­hags­stöðu þegar kemur að eigið fé. Í lok árs í fyrra nam eigið fé 55 millj­örðum króna, en skuld­irnar voru 992 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 110 millj­örðum króna. Búast má við því að næstu mán­uðir verði krefj­andi fyrir íslensku flug­fé­lögin. Þrátt fyrir að á þriðja tug flug­fé­laga fljúgi til Íslands og tengi landið við um 100 áfanga­staði, þá voru Icelandair og WOW air mik­il­væg­ustu flug­fé­lögin þegar kemur að íslenskri ferða­þjón­ustu. Nú er Icelandair eitt í þeirri stöðu.

„Ögrandi rekstrarumhverfi“

Sam­dráttur eða kólnun í íslenskri ferða­þjón­ustu hefur átt sér þó nokkurn aðdrag­anda.

Það var oft gaman hjá Skúla Mogensen á meðan að á WOW-ævintýrinu stóð. Gamanið tók enda á fimmtudag.
Það var oft gaman hjá Skúla Mogensen á meðan að á WOW-ævin­týr­inu stóð. Gamanið tók enda á fimmtu­dag.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika, riti Seðla­banka Íslands, kom fram í byrjun árs í fyrra að teikn væru á lofti um minni tíðni beinna flug­ferða til og frá land­inu. „Sam­keppni í flugi hefur auk­ist und­an­farin miss­eri og hefur hún meðal ann­ars birst í því að flug­fé­lög hafa ekki hækkað far­gjöld þrátt fyrir tals­verða hækkun olíu­verðs sl. mán­uði. Víða glíma flug­fé­lög því við rekstr­ar­erf­ið­leika eins og nýlegt gjald­þrot Primera air, sem ann­að­ist meðal ann­ars leiguflug fyrir íslenskar ferða­skrif­stofur, er dæmi um. Íslensku milli­landa­flug­fé­lögin hafa ekki farið var­hluta af þess­ari þróun og glíma bæði við ögrandi rekstr­ar­um­hverfi,” sagði í grein­ingu Seðla­bank­ans.

Segja má að þetta hafi gengið eftir, og staðan orðið enn erf­ið­ari þegar ljóst varð að WOW air var gjald­þrota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár