Mynd: Isavia

Úti er WOW-ævintýri

WOW air hefur háð bar­áttu fyrir til­veru sinni mán­uðum saman. Þótt undið hafi verið ofan af umfangi flug­fé­lags­ins síð­ustu mán­uði versn­aði staðan samt sem áður dag frá degi. Í lok síð­ustu viku lá fyrir að afar ólík­legt væri að WOW air yrði bjargað.

Í lok síð­ustu viku var ljóst að WOW air væri komið nán­ast fram af bjarg­brún­inni. Indigo Partners sleit loks form­lega sam­tali sínu um að koma að rekstri flug­fé­lags­ins eftir margra mán­aða dans, og Icelandair var kallað aftur að borð­inu til að reyna að finna ein­hverja leið til að halda starf­sem­inni lif­andi. Það var þungi í þeirri til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar vegna þessa og skýrt tekið fram að við­ræður myndu fara fram á þeim for­sendum að WOW air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæti. Það ger­ist ekki nema að eng­inn annar mögu­leiki sé í stöð­unni en yfir­taka sam­keppn­is­að­ila, enda heim­ila þær for­sendur til að mynda að sam­keppn­is­legum hömlum sam­runa er vikið til hliðar.

Þegar Kjarninn greindi frá því á sunnu­dag klukkan 17:19, að búið væri að slíta við­ræðum við Icelandair blasti við að dauða­stríð WOW air var komið á loka­metr­anna. Og að krafta­verk þyrfti til að bjarga félag­inu.

Bakvið tjöldin hófst vinna hjá stjórn­völdum um hvernig brugð­ist yrði við yfir­vof­andi gjald­þroti WOW air, bæði með til­liti til áhrifa á ferða­þjón­ustu á Íslandi og um það hvernig væri hægt að tryggja að allir far­þegar sem áttu miða með WOW air kæmust til sinna heima. Farið var yfir þann mögu­leika að grípa inn í með sama hætti og þýsk stjórn­völd gerðu þegar Air Berlin fór í þrot árið 2017. Þá lögðu stjórn­völd skipta­stjóra til fjár­magn svo hægt væri að við­halda rekstri þar til að hægt væri að koma rekstr­inum í ann­arra hendur. Fljót­lega var þó ákveðið að ýta þeirri sviðs­mynd til hliðar. Það þótti ein­fald­lega ekki for­svar­an­legt fyrir stjórn­völd að setja opin­bert fé inn í slíkan áhættu­rekstur sem WOW air var.

Svart varð svartara

Þótt WOW air hafi nokkrum sinnum verið alveg við það að falla, og oft bjargað sér fyrir horn með hætti sem nán­ast stork­aði hinu mögu­lega, þá var staðan sem við blasti í byrjun viku aug­ljós­lega svart­ari en nokkru sinni áður. Og hún varð enn verri þegar tvær af ell­efu vélum WOW air voru kyrr­settar af einum af leigu­sala fyr­ir­tæk­is­ins á mánu­dag. Þeir sem áttu hinar níu vél­arnar voru í við­bragðs­stöðu alla vik­una að gera slíkt hið sama. Og það var á end­anum ákvörðun þeirra um að láta kyrr­setja vélar WOW air í Banda­ríkj­unum og Kanada aðfara­nótt fimmtu­dags sem veitti WOW air náð­ar­höggið.

Kjarninn fékk upp­lýs­ingar um að vél­arnar væru fastar í Banda­ríkj­unum og Kanada klukkan rúm­lega tvö í nótt og að þær kæmu ekki aftur til Íslands. Sam­göngu­stofa, eft­ir­lits­að­ili WOW air, var upp­lýst um þá stöðu. Það voru stjórn­völd líka og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við Kjarnann í morgun að hún hefði fengið tölvu­póst um stöð­una um mið­nætti í gær.

Það leiddi síðan til þess að for­svars­menn WOW air gengu á fund Sam­göngu­stofu klukkan rúm­lega átta í morgun og skil­uðu inn flug­rekstr­ar­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins. Með því lauk form­lega rekstri WOW air, sem hóf starf­semi síðla árs 2011, og við­bragðs­á­ætlun stjórn­valda um að koma um þús­undum far­þegum sem voru stranda­glópar víða í Evrópu og Norður-Ameríku, til sinna heima.

Á meðan að þessi atburða­rás stóð yfir, áður en að leyf­inu var skilað inn en eftir að vélar WOW air voru kyrr­settar, sendi WOW air frá sér til­kynn­ingu sem nú hefur verið fjar­lægð af vef flug­fé­lags­ins. Þar stóð að allt flug WOW air hefði verið stöðvað en að fyr­ir­tækið væri „á loka­metr­unum að klára hluta­fjár­aukn­ingu við nýjan eig­enda­hóp á félag­inu. Allt flug hefur verið stöðvað þangað til þeir samn­ingar verða klárað­ir. Nán­ari upp­lýs­ingar verða gefnar kl. 9. Félagið þakkar far­þegum fyrir stuðn­ing­inn og biðst vel­virð­ingar á þeim óþæg­indum sem þetta veld­ur.“

Áður en þær upp­lýs­ingar voru gefnar, rétt­ara sagt klukkan rúm­lega korter yfir átta í morgun, var birt til­kynn­ing á fjár­festa­síðu WOW air um að félagið hefði hætt starf­semi. Væri gjald­þrota.

Það var oft mikil stemmning í kringum rekstur WOW air. Hér sést Skúli Mogensen klippa á borða á Keflavíkurflugvelli þegar WOW air hóf flug til Montreal.
Það var oft mikil stemmn­ing í kringum rekstur WOW air. Hér sést Skúli Mogensen klippa á borða á Kefla­vík­ur­flug­velli þegar WOW air hóf flug til Montreal.

Kjarninn hefur upp­lýs­ingar um að það hafi sann­ar­lega verið gerð ein loka­til­raun í milli­tíð­inni og að þær við­ræður hafi staðið yfir fram á sjö­unda tím­ann í morgun.

Þær skil­uðu ekki árangri og því fór sem fór.

Erfitt að rökstyðja aðkomu

Þótt WOW air hefði form­lega orðið gjald­þrota í morgun þá hefur flug­fé­lagið í reynd verið ógreiðslu­fært lengi. Því hefur verið haldið á floti með svig­rúmi frá kröfu­höfum, skulda­bréfa­út­boði sem varð á end­anum eins og plástur á svöðu­sár og áfram­hald­andi lán­veit­ingum.

Erfitt var að sjá, sér­stak­lega síð­ustu mán­uði, hvað það væri sem ætti að draga nýja fjár­festa að WOW air. Vöru­merkið sjálft, sem hefur jákvæða merk­ingu á Íslandi vegna þess að WOW air hefur tryggt íslenskum far­þegum lægri flug­far­gjöld en hefur verið valið versta flug­fé­lag í heimi af AirHelp, sem sér­hæfir sig í að aðstoða fólk við að sækja bætur frá flug­fé­lögum.

Í byrjun vik­unnar, á mánu­dag, fór WOW air í raun í greiðslu­þrot þegar fyr­ir­tækið gat ekki greitt skulda­bréfa­eig­endum sínum á gjald­daga. Í kjöl­farið sam­þykktu þeir að breyta kröfum sínum í nýtt hlutafé með þeim fyr­ir­vara að það tæk­ist að ná í nýtt hlutafé sam­hliða. Í raun tóku kröfu­hafar því yfir WOW air frá þeim tíma.

Skuldir WOW air voru þó orðnar 24 millj­arðar króna sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins sem birt var fyrr í vik­unni og ljóst að ein­ungis var hægt að breyta hluta þeirra í nýtt hlutafé. Þá vakn­aði upp sú rétt­mæta spurn­ing: af hverju ætti fjár­festir sem hefur áhuga á að fara inn í flug­rekstur að setja nýja pen­inga inn i WOW air til þess að deila eign­ar­haldi með hluta af kröfu­höfum flug­fé­lags­ins og taka á sig margra millj­arða króna við­bót­ar­skuldir við þjón­ustu­að­ila á borð við Isavia, líf­eyr­is­sjóði og leigu­sala flug­fé­lags­ins? Væri ekki skyn­sam­legra að byrja ein­fald­lega upp á nýtt, eiga allt flug­fé­lagið sjálfur og skulda ekk­ert?

Nú blasir við að svarið við þeirri spurn­ingu var já. Á end­anum taldi eng­inn þeirra aðila sem WOW air reyndi að fá að borð­inu að það væri þess virði að leggja fyr­ir­tæk­inu til nýtt hlutafé. Sá sem þótti lík­leg­astur til þess,sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, var alltaf Bill Franke, eig­andi Indigo Partners, og helsta lífs­vonin í þess­ari viku var bundin við að hann myndi koma aftur að borð­inu ef það tæk­ist að grynnka vel á skuldum WOW air.

Það reynd­ist ekki von sem hægt var að byggja á.

Skúli sagðist eiga fyrir launum

Þrátt fyrir þessa stöðu þá var Skúli Mogensen, stofn­andi, eig­andi og for­stjóri WOW air, kok­hraustur að venju í við­tölum. Á þriðju­dag fór hann í við­tal hjá báðum sjón­varps­frétta­stöðvum lands­ins. Á RÚV sagði hann ein­fald­lega: „Ég er alltaf brattur að eðl­is­fari[...]Ég ætla mér að klára þetta.“

Í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 sagði Skúli að staðan væri bara nokkuð góð og að sú ákvörðun skulda­bréfa­eig­enda að breyta kröfum í hlutafé væri að styrkja flug­fé­lagið all­veru­lega. Eftir til­tekt væri WOW air komið í „mjög góðan gír“.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fékk upplýsingar um stöðu WOW air um miðnætti í gær.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fékk upp­lýs­ingar um stöðu WOW air um mið­nætti í gær.

Nú væri búið að vinda ofan af þeim dýr­keyptu mis­tökum sem hefðu verið gerð með leigu á breið­þotum. „Nú erum við búin að skila þeim og hag­ræða á ný. Nú erum við aftur orðin sams­konar flug­fé­lag og við vorum árin 2015 og 2016. Það er þess vegna sem ég segi með miklu öryggi að við vitum nákvæm­lega hvað við erum að gera og hvert við erum að fara og við sjáum árang­ur­inn nú þegar vera að skila sér.“

„Ég er mjög von­góður,“ sagði Skúli og þegar hann var spurður hvort að flug­fé­lagið myndi eiga fyrir launum um kom­andi mán­aða­mót var svarið ein­falt: „já“. Nú liggur fyrir að starfs­fólk WOW air þarf að sækja þau laun í ábyrgð­ar­sjóð launa, og þar af leið­andi til skatt­greið­enda.

Í sama við­tali sagði Skúli að fólki yrði óhætt að kaupa flug­miða með flug­fé­lag­inu. Í dag voru um fjögur þús­und ein­stak­lingar sem keyptu sér flug með WOW air á næstu vikum ekki með flug heim.

Umtalsverð samfélagsleg áhrif

Viðbúið er að þrot WOW air mun hafa umtals­verð áhrif á íslenskt sam­fé­lag. Hátt í þús­und manns misstu vinn­una í morgun og nokkur hund­ruð í við­bót sem starfa við þá sem hafa þjón­u­stað WOW air munu einnig missa starfið. Áhrifin munu lík­ast til verða einna mest á Suð­ur­nesjum þar sem stór hluti þeirra sem starfar á Kefla­vík­ur­flug­velli býr.

Þá er við­búið að tekjur þjóð­ar­bús­ins munu drag­ast saman og end­ur­skoða þarf allar áætl­anir í rík­is­rekstri. Kröfu­hafar, inn­lendir og erlendir, munu tapa umtals­verðum fjár­hæðum. Hér­lendis eru það meðal ann­ars Arion banki og rík­is­fyr­ir­tækið Isavia. Auk þess munu þjón­ustu­fyr­ir­tæki á borð við Festar, sem selja WOW air elds­neyti, finna vel fyrir áhrifum af brott­hvarfi WOW air af sjón­ar­svið­inu.

Neyt­endur hafa auk þess misst val­kost sem hefur keyrt niður verð á flug­miðum á und­an­förnum árum.

En áhrifin á íslenskt hag­kerfi til lengri tíma eru ekki talin veru­leg. Starf­semi WOW air hefur til að mynda verið dregin veru­lega saman á und­an­förnum mán­uðum á meðan að dauða­stríð flug­fé­lags­ins hefur farið fram fyrir allra augum. Floti fyr­ir­tæk­is­ins hefur farið úr 24 í 11, flug­leiðum hríð­fækkað og hund­ruð starfs­manna verið sagt upp störfum.

Þetta mat, um áhrifin af þroti WOW air, fékk stað­fest­ingu í orðum for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við Kjarnann í morgun. Þar sagði Katrín að rík­is­stjórnin teldi að hag­kerfið væri „vel í stakk búið til að takast á við þessa áskor­un.“ Erlend eigna­staða þjóð­ar­bús­ins væri jákvæð, skulda­staða rík­is­sjóðs og heim­ila væri mjög góð og svig­rúm væri í rík­is­rekstr­inum til að takast á við sam­drátt, í ljósi þess að áætl­anir gera ráð fyrir mynd­ar­legum afgangi í honum sem hægt sé að ganga á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár