Jón Atli: Undirfjármögnun HÍ gengur ekki til lengdar

Jón Atli Bene­dikts­son, pró­fessor við verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­svið Háskóla Íslands (HÍ), segir skól­ann þurfa aukin fjár­fram­lög til áfram­hald­andi upp­bygg­ingar. Annað sé ekki val­kostur, ef það eigi að fram­þróa starfið í skól­anum. „Það má t.d. nefna að þrátt fyrir um 20% nið­ur­skurð á árunum eftir hrun fjölg­aði nem­endum um 20%. Þetta jók gríð­ar­lega álag á starfs­menn sem á sama tíma hafa einnig verið að sækja fram í rann­sóknum. Und­ir­fjár­mögnun af þessu tagi gerir auð­vitað allt starf mjög erfitt og gengur ekki til lengdar,“ segir Jón Atli í svörum við spurn­ingum sem Kjarninn beindi til hans í til­efni af því að hann hefur ákveðið að sækj­ast eftir emb­ætti rekt­ors Háskóla Íslands, en Kristín Ing­ólfs­dóttir hefur þegar til­kynnt að hún ætli ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Spurn­ingar Kjarnans og svör Jóns Atla við þeim eru hér að neðan.

Af hverju sæk­ist þú eftir því að gegna emb­ætti rekt­ors?

„Margir hafa leitað til mín og hvatt mig til að sækj­ast eftir rekt­ors­starf­inu þar sem skól­inn þurfi á ein­stak­lingi að halda í starf rekt­ors sem þekkir háskól­ann vel og hafi góðan skiln­ing á þörfum ólíkra fræði­greina og fræða­sviða. Ég hef starfað innan Háskóla Íslands í hart­nær ald­ar­fjórð­ung. Á þeim tíma hef ég kynnst starf­semi skól­ans vel bæði sem kenn­ari í raf­magns- og tölvu­verk­fræði og vís­inda­maður. Þá hef ég verið aðstoð­ar­rektor vís­inda og kennslu frá árinu 2009 og áður sinnt marg­vís­legum öðrum stjórn­un­ar­störfum innan skól­ans. Á síð­ustu árum hefur átt sér stað mikil upp­bygg­ing þrátt fyrir skugga nið­ur­skurðar og óvissu um fram­tíð­ar­fjár­mögnun háskól­ans. Ég vil gjarnan taka þátt í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu Háskóla Íslands og hef því ákveðið að verða við því kalli að bjóða mig fram til rekt­ors. Önnur ástæða þess að ég býð mig fram er sú að mér finnst gaman að vinna með fólki í því að móta sam­eig­in­lega sýn og kom­ast að nið­ur­stöðu sem gagn­ast heild­inni.“

Hver eru mest aðkallandi verk­efnin sem Háskóli Íslands þarf að ráð­ast í að þínu mati?

„Ég legg áherslu á fjögur meg­in­at­riði varð­andi fram­tíð skól­ans. Fyrst er að nefna fjár­mögnun. Eftir mik­inn nið­ur­skurð á síð­ustu árum er, að mínu mati, eitt helsta verk­efni nýs rekt­ors að treysta fjár­mögnun Háskóla Íslands. Aukin fjár­fram­lög til skól­ans eru for­senda áfram­hald­andi upp­bygg­ingar. Sér­stak­lega vil ég nefna að mik­il­vægt er að heild­ar­end­ur­skoðun fari fram á reikn­lík­ani mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyts­ins. Í öðru lagi tel ég brýnt að bæta starfs­kjör og aðbúnað starfs­fólks og leita leiða til að draga úr miklu starfs­á­l­agi og auka starfs­á­nægju. Í þriðja lagi legg ég þunga áherslu á mik­il­vægi nýsköp­unar þekk­ingar og rann­sókna. Mikið hefur áunn­ist á und­an­förnum árum en mik­il­vægt er að læra líka af reynsl­unni og treysta enn frekar rann­sókna­inn­við­ina, virða sér­stöðu fræði­greina og efla þver­fræði­legt sam­starf og nýliðun. Að síð­ustu má nefna að ég tel nauð­syn­legt að standa vörð um gæði náms og próf­gráða. Háskól­inn má aldrei missa sjónar á því meg­in­mark­miði að þjóna nem­endum sem best. Tryggja verður að nám við Háskóla Íslands stand­ist ávallt alþjóð­legan sam­an­burð. Styðja þarf við bakið á kenn­urum, tryggja góða kennslu­hætti og náms­að­stöðu fyrir nem­endur.“

[caption id="attachment_17527" align="alignnone" width="640"] Jón Atli segir mikið álag hafa verið á starfs­mönnum Háskóla Íslands á und­an­förnum árum.[/caption]

Hvernig finnst þér að til hafi tek­ist við rekstur Háskóla Íslands, í erf­iðu árferði, und­an­farin ár?

„Háskóli Íslands er mjög vel rekin stofnun og grettistaki hefur verið lyft á síð­ustu árum hvað varðar aukna rann­sókn­ar­virkni og upp­bygg­ingu náms þrátt fyrir mik­inn nið­ur­skurð frá hruni. Það má t.d. nefna að þrátt fyrir um 20% nið­ur­skurð á árunum eftir hrun fjölg­aði nem­endum um 20%. Þetta jók gríð­ar­lega álag á starfs­menn sem á sama tíma hafa einnig verið að sækja fram í rann­sóknum. Und­ir­fjár­mögnun af þessu tagi gerir auð­vitað allt starf mjög erfitt og gengur ekki til lengdar. Reyndar hefur skól­inn lengi verið und­ir­fjár­magn­aður eins og skýrsla Samtaka evr­ópskra háskóla (EUA) frá 2005 sýndi fram á. Þá sýna mæl­ingar OECD að íslenska háskóla­kerfið er ein­ungis hálf­drætt­ingur á við Norð­ur­lönd þegar kemur að fram­lögum á hvern nem­anda. Þessu þarf að breyta.“

Ertu flokkspóli­tískur?

„Ég hef alltaf haft áhuga á stjórn­málum og sam­fé­lags­legum mál­efnum. Ég fylgi hins vegar engum flokkspóli­tískum línum né er ég með­limur í stjórn­mála­flokki. Rektor Háskóla Íslands þarf að eiga gott sam­starf við alla, óháð stjórn­mála­skoð­unum, og því er ekki við hæfi að sá sem gegnir því emb­ætti taki þátt í flokkspóli­tísku starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár