61% líkur á að vinstrikvartettinn geti myndað meirihluta

Flokk­arnir fjórir sem hafið hafa þreif­ingar um meiri­hluta­sam­starf að loknum kosn­ingum fengu eins manns meiri­hluta í aðeins 61% 100.000 sýnd­ar­kosn­inga í Kosn­inga­spánni.

Sam­an­lagt eru 61 pró­sent líkur á því að Píratar, Vinstri græn, Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin geti myndað eins manns meiri­hluta á Alþingi að loknum kosn­ingum ef marka má þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Þing­sæta­spáin byggir á upp­lýs­ingum sem má finna í fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi stjórn­mála­flokka sem gerðar hafa verið í aðdrag­anda kosn­ing­anna á laug­ar­dag­inn.

For­svars­menn þess­ara fjög­urra flokka hitt­ust um liðna helgi og ræddu mögu­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf að kosn­ingum loknum og er ráð­gert að full­trúar flokk­anna hitt­ist aftur á morgun til að halda þessum við­ræðum áfram.

Ljóst er af nið­ur­stöðum kosn­inga­spár­innar að ólík­legt er að þessir flokkar geti myndað sterkan meiri­hluta á þing­inu, og alls ekki víst að þeim tak­ist að mynda meiri­hluta yfir höfuð.

Þing­sæta­spáin er reikni­líkan sem fram­kvæmir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ þar sem nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi kann­ana eru hafðar til grund­vallar. Líkanið hönn­uðu stærð­fræð­ing­arnir Baldur Héð­ins­son og Stefán Ingi Valdi­mars­son með það að mark­miði að reikna líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum. Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spána, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Hér að neðan er rýnt í sam­an­lagðar líkur á því hversu marga þing­menn ein­staka flokkur getur náð á lands­vísu miðað við fyr­ir­liggj­andi kann­anir. Kjarninn hefur und­an­farna daga fjallað um nið­ur­stöður þing­sæta­spár­innar. Á mánu­dag voru lands­byggð­ar­kjör­dæmin þrjú tekin fyrir; Norð­vest­ur­kjör­dæmi, Norð­aust­ur­kjör­dæmi og Suð­ur­kjör­dæmi. Á þriðju­dag var fjallað um þrjú stærstu kjör­dæmi lands­ins; Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Norður, Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Suður og Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Nánar má lesa um fram­kvæmd þing­sæta­spár­innar á Kosn­inga­spár­vef Kjarnans þar sem allar nið­ur­stöður Kosn­inga­spár­innar verða aðgengi­legar fram að kosn­ingum og kosn­inga­úr­slitin að þeim loknum.

Samfylkingin og Björt framtíð fallvöltust

Áður en við förum að púsla saman hugs­an­legum þing­meiri­hlutum skulum við líta á mögu­leika ein­staka flokka til að ná mönnum á þing í töflu #1 hér að neðan. Eins og það sem kjör­dæma­töfl­urnar á kosn­inga­vef Kjarnans sýna þá eiga Sjálf­stæð­is­menn lang­mestan mögu­leika á að eiga stærsta þing­flokk­inn að afstöðnum kosn­ingum. Í öllum 100.000 hermunum sýnd­ar­kosn­ing­anna náðu 12 full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins kjöri. Í tæp­lega helm­ing herman­anna varð þing­flokk­ur­inn 17 þing­menn og í einu pró­sent til­vika fékk flokk­ur­inn 21 þing­mann kjör­inn.

Þetta rímar við fylgiskann­anir á lands­vísu sem sýna að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mests fylgis meðal kjós­enda. Næst stærstir eru Píratar og þeir munu fá, ef þing­sæta­spáin gengur eftir, minnst níu þing­sæti. Í öllum sýnd­ar­kosn­ing­unum fékk flokk­ur­inn níu þing­sæti, í 60 pró­sent til­vika fékk flokk­ur­inn 13 þing­sæti. Aðeins tvö pró­sent líkur eru á að þing­flokkur Pírata muni telja 17 þing­menn.

Þetta kemur heim og saman við kjör­dæma­töfl­urnar þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist ætla að eiga flest örugg þing­sæti í öllum kjör­dæmum nema í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, þar sem Birgitta Jóns­dóttir mun leiða Pírata til sig­urs, ef þing­sæta­spáin reyn­ist rétt.

#1 – Fjöldi þing­manna frá flokkum
ÞingmennABCDPSV
>=240.000.000.000.000.000.000.00
>=230.000.000.000.000.000.000.00
>=220.000.000.000.000.000.000.00
>=210.000.000.000.010.000.000.00
>=200.000.000.000.040.000.000.00
>=190.000.000.000.130.000.000.00
>=180.000.000.000.280.000.000.00
>=170.000.000.000.490.020.000.00
>=160.000.000.000.710.060.000.00
>=150.000.000.000.880.160.000.01
>=140.000.000.000.970.350.000.03
>=130.000.000.000.990.600.000.10
>=120.000.000.011.000.820.000.25
>=110.000.010.051.000.940.000.49
>=100.000.030.161.000.990.000.73
>=90.010.090.371.001.000.000.90
>=80.040.240.621.001.000.020.97
>=70.140.470.831.001.000.070.99
>=60.330.720.951.001.000.201.00
>=50.590.900.991.001.000.421.00
>=40.820.981.001.001.000.681.00
>=30.921.001.001.001.000.821.00
>=20.921.001.001.001.000.831.00
>=10.951.001.001.001.000.921.00

Upp­safn­aðar inn­byrðis líkur á fjölda þing­manna eftir flokkum. Hér er fjöldi til­vika þar sem flokkur fékk einn þing­mann í 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum lagðar saman við fjölda til­vika þar sem sami flokkur fékk tvo þing­menn kjörna og svo fram­vegis.

A: Björt fram­tíð, B: Fram­sókn­ar­flokkur, C: Viðreisn, D: Sjálf­stæð­is­flokkur, P: Píratar, S: Sam­fylk­ingin, V: Vinstri græn

Fimm af þeim sjö flokkum sem mældir eru í Kosn­inga­spánni fengu mann kjör­inn í öllum 100.000 hermunum sýnd­ar­kosn­ing­anna. Tveir flokkar þurk­uð­ust út í ein­hverjum til­vikum. Það eru Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin sem eru fall­völt­ust fram­boð­anna. Samkvæmt þing­sæta­spánni þá eru átta pró­sent líkur á því að Sam­fylk­ingin hverfi af Alþingi eftir kosn­ing­arnar á laug­ar­dag­inn. Fimm pró­sent líkur eru á að Björt fram­tíð fái ekki mann kjör­inn.

Þessir tveir flokkar munu jafn­framt eiga minnstu þing­flokk­ana ef þeir ná kjöri. Séu nið­ur­stöður allra sýnd­ar­kosn­ing­anna birtar fyrir hvert fram­boð getum við séð hvernig þing­sæta­fjöld­inn dreifð­ist og áttað okkur á lík­leg­ustu nið­ur­stöð­unni.

Eins og sést í töflu #2 þá fékk Sam­fylk­ingin oft­ast fjóra þing­menn kjörna í sýnd­ar­kosn­ing­unum 100.000, eða í 26 pró­sent til­vika. Nærri því jafn oft, eða í 26 pró­sent til­vika, fékk Björt fram­tíð fimm þing­menn kjörna. Þetta er því lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna fyrir Sam­fylk­ing­una og Bjarta fram­tíð. Þess bera að geta að í 22 pró­sent til­vika fékk Sam­fylk­ingin fimm þing­menn kjörna og nærri því jafn oft fékk Björt fram­tíð aðeins fjóra þing­menn. Hér eru vik­mörk þing­sæta­spár­innar að verki.

Út frá þess­ari töflu má ætla að átta pró­sent líkur séu á að Sam­fylk­ingin nái ekki kjöri og fimm pró­sent líkur á því að Björt fram­tíð nái ekki kjöri. Að sama skapi eru auð­vitað 92 pró­sent líkur á að Sam­fylk­ingin fái í það minnsta einn full­trúa og 95 pró­sent líkur á að Björt fram­tíð verði áfram á Alþingi.

Eðli vik­marka Kosn­inga­spár­innar er að þau stækka eftir því sem fylgi við fram­boðin eykst. Þing­sæta­spáin dreifir fjölda þing­manna í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem mælist með mest fylgi í skoð­ana­könn­unum, þess vegna aðeins meira en í hinum fram­boð­unum. Oftast hlaut Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 16 þing­menn kjörna eða í 22 pró­sent til­vika. Í 20 pró­sent til­vika var þing­flokk­ur­inn 17 þing­menn.

#2 – Dreifing þing­sæta
ÞingmennABCDPSV
00.050.000.000.000.000.080.00
10.030.000.000.000.000.090.00
20.000.000.000.000.000.010.00
30.100.020.000.000.000.140.00
40.230.080.010.000.000.260.00
50.260.180.040.000.000.230.00
60.200.250.110.000.000.130.00
70.100.240.210.000.000.050.02
80.030.150.250.000.000.010.08
90.010.060.200.000.010.000.17
100.000.020.110.000.050.000.24
110.000.010.040.000.120.000.23
120.000.000.010.010.220.000.15
130.000.000.000.030.250.000.07
140.000.000.000.080.190.000.02
150.000.000.000.170.100.000.01
160.000.000.000.220.040.000.00
170.000.000.000.210.010.000.00
180.000.000.000.150.000.000.00
190.000.000.000.080.000.000.00
200.000.000.000.030.000.000.00
210.000.000.000.010.000.000.00
220.000.000.000.000.000.000.00
230.000.000.000.000.000.000.00
240.000.000.000.000.000.000.00

Í töfl­unni má sjá dreif­ingu á fjölda til­vika þar sem flokkur fékk ákveð­inn fjölda þing­manna kjör­inn í 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum.

A: Björt fram­tíð, B: Fram­sókn­ar­flokkur, C: Viðreisn, D: Sjálf­stæð­is­flokkur, P: Píratar, S: Sam­fylk­ingin, V: Vinstri græn

Það þarf miklu fleiri en tvo til að dansa tangó

Ef við gefum okkur að sá þing­manna­fjöldi sem flokk­arnir fengu oft­ast verði nið­ur­staða kosn­ing­anna á laug­ar­dag­inn er hægt að bjóða í örlít­inn sam­kvæm­is­leik og raða í stæti við ímyndað rík­is­stjórn­ar­borð. Nú þegar hafa full­trúar stjórn­mála­flokk­ana rætt heil­mikið um hugs­an­legt sam­starf þeirra á milli að kosn­ingum loknum. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði til dæmis á fundi Félags kvenna í atvinnu­líf­inu á dög­unum að hann hefði heil­miklar áhyggjur af stöð­unni því það er alls ekki á hreinu hver eða hverjir eiga að leiða stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður ef nið­ur­staðan verður á þá leið sem skoð­ana­kann­anir benda til. Það mun þurfa fleiri en tvo flokka til.

Kjarninn hefur fjallað um þessa hugs­an­legu stjórn­ar­kreppu og bent á að Guðni Th. Jóhann­es­son gæti átt erfitt verk­efni fyrir höndum við sína fyrstu stjórn­ar­mynd­anir eftir að hann tók við emb­ætti for­seta Íslands í sumar. Ekki bætir úr skák að ein­hverjir flokkar hafa úti­lokað sam­starf með öðrum og aðrir flokkar gefið mis­vísandi skila­boð um hvað þeir muni gera eftir kosn­ingar.

Fjórir flokkar hafa þegar fundað um mögu­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf að loknum kosn­ingum. Það eru Píratar (P), Vinstri græn (V), Björt fram­tíð (A) og Sam­fylk­ingin (S). Þessir flokkar munu, sam­kvæmt lík­leg­ustu nið­ur­stöðu kosn­ing­anna, fá 13, 10, 5 og 4 þing­menn (í þeirri röð sem flokk­arnir voru taldir upp). Slíkt dugar fyrir ein­faldan meiri­hluta á Alþingi, með 32 þing­menn gegn 31 stjórn­ar­and­stöðu­þing­manni.

Oddný Harðardóttir, Birgitta Jónsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Óttarr Proppé hafa fundað um mögulegt samstarf að kosningum loknum.
Oddný Harð­ar­dóttir, Birgitta Jóns­dóttir, Katrín Jak­obs­dóttir og Óttarr Proppé hafa fundað um mögu­legt sam­starf að kosn­ingum loknum.

Í kosn­inga­spánni er hægt að finna líkur á því hversu marga þing­menn flokk­arnir munu fá sam­an­lagt í kosn­ing­unum. Aðeins 61 pró­sent líkur eru á því að sam­starf þess­ara fjög­urra flokka muni duga til þess að mynda 32 manna – eins manns – meiri­hluta á þing­inu. Það þýðir að í 61 pró­sent 100.000 hermana sýnd­ar­kosn­ing­anna fengu þessir flokkar sam­an­lagt 32 þing­menn kjörna.

Líkurnar eru enn minni ef þrösk­uld­ur­inn fyrir ásætt­an­legan meiri­hluta hækkar. 27 pró­sent líkur eru til dæmis á því að þessir flokkar geti myndað 34 manna meiri­hluta á þing­inu að loknum kosn­ingum.

#3 – Líkur á sam­an­lögðum þing­manna­fjölda
FlokkurBDBCDDVDPPVAPVAPSVACPSVACPV
>=400.000.000.000.000.000.000.000.610.08
>=390.000.000.000.000.000.000.000.770.15
>=380.000.000.000.000.000.000.010.880.27
>=370.000.010.000.000.000.000.030.950.43
>=360.000.030.000.010.000.000.070.980.59
>=350.000.070.000.020.000.000.150.990.75
>=340.000.140.000.040.000.010.271.000.86
>=330.000.250.010.090.000.030.441.000.94
>=320.000.390.020.180.000.070.611.000.97
>=310.000.560.060.310.000.150.751.000.99
>=300.000.730.130.480.000.280.861.001.00
>=290.010.850.240.650.010.430.931.001.00
>=280.020.930.400.810.030.600.971.001.00
>=270.050.970.580.910.070.760.991.001.00
>=260.120.990.750.970.160.871.001.001.00
>=250.231.000.870.990.290.941.001.001.00

Líkur á að sam­an­lagður þing­manna­fjöldi fram­boðs­lista nái meiri­hluta á þingi. Til að fá eins manns meiril­huta á Alþingi þarf sam­an­lagður fjöldi að vera 32 þing­menn. Rauða strikið í töfl­unni hér að neðan er sláin sem þarf að kom­ast yfir.

A: Björt fram­tíð, B: Fram­sókn­ar­flokkur, C: Viðreisn, D: Sjálf­stæð­is­flokkur, P: Píratar, S: Sam­fylk­ingin, V: Vinstri græn

Hingað til hefur ekk­ert verið minnst á Viðreisn (C). Þessi nýji flokkur mun skjóta rót­grónum flokkum á borð við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu ref fyrir rass ef marka má kosn­inga­spána. Viðreisn mun lík­leg­ast fá átta þing­menn kjörna, miðað við sex þing­menn Fram­sókn­ar­flokks og fjóra þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar.

Viðreisn hlýtur að vera nær­tæk­asti kost­ur­inn fyrir „vin­strik­var­tett“ Pírata, Vinstri grænna, Bjartar fram­tíðar og Sam­fylk­ingar, vilji þeir styrkja meiri­hluta sinn á þingi. Í öllum 100.000 hermunum kosn­inga­spár­innar fengu þessir fimm flokkar sam­an­lagt 34 þing­menn kjörna. Í 95 pró­sent til­vika fengu þeir sam­an­lagt 37 þing­menn og í 61 prós­net til­vika var þessi meiri­hluti kom­inn í 40 þing­menn.

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, hefur sagt að flokkur sem fær ekki for­mann­inn sinn kjör­inn sé varla stjórn­ar­tækur flokkur. Það gæti þess vegna farið svo að Sam­fylk­ingin segi sig frá þessum hugs­an­lega „vin­strik­var­tett“. Píratar, Vinstri græn og Björt fram­tíð munu ólík­lega geta myndað meiri­hluta án aðkomu fjórða flokks­ins. Saman hafa þessir þrír flokkar sjö pró­sent líkur á að fá 32 þing­menn kjörna.

Með Viðreisn inn­an­borðs eru lík­urnar mun meiri á því að hægt verði að mynda meiri­hluta á þing­inu. Líkurnar á að Píratar, Vinstri græn, Viðreisn og Björt fram­tíð geti myndað 32 manna meiri­hluta eru 97 pró­sent. Ef mark­miðið er að mynda 36 manna meiri­hluta eru lík­urnar 59 pró­sent.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks ekki möguleg

Núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins (D) og Fram­sókn­ar­flokks­ins (B) á enga mögu­leika á að halda meiri­hluta á þing­inum, sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Til þess að ná ein­földum meiri­hluta þarf 32 þing­menn en lík­urnar á því að þessir tveir flokkar geti saman fengið 29 þing­menn er eitt pró­sent.

Ef mynda ætti rík­is­stjórn til hægri hlýtur Viðreisn að vera nær­takasti kost­ur­inn til að stoppa upp í gatið. Það eru hins vegar aðeins 39 pró­sent líkur á að þessir þrír flokkar nái að mynda meiri­hluta.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun sam­kvæmt lík­leg­ustu nið­ur­stöðu Kosn­inga­spár­innar verða stærstur flokka á þing­inu eftir kosn­ingar. Mjög litlar líkur eru á að hann geti myndað tveggja flokka meiri­hluta. Tveir næst stærstu flokk­arnir, Píratar og Vinstri græn, hafa auk þess nær úti­lokað rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­mönnum. En, allt er hægt í póli­tík er stundum sagt; Með Pírötum eru 18 pró­sent líkur á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti myndað 32 manna meiri­hluta á þing­inu. Með Vinstri grænum eru tvö pró­sent líkur á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti myndað meiri­hluta.

Pólitískur ómöguleiki?

Ef við lítum hlut­lægt á gögnin úr kosn­inga­spánni og reynum að finna mestar líkur á meiri­hluta­sam­starfi tveggja flokka verður það lík­leg­ast sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks og Pírata. Líkurnar á 32 manna meiri­hluta eru, eins og áður sagði, 18 pró­sent.

Ef við reynum að finna mestar líkur á meiri­hluta­sam­starfi þriggja flokka verður það lík­leg­ast sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks, Pírata og Vinstri grænna. Líkurnar á því að þessir þrir flokkar geti myndað 32 manna meiri­hluta eru 100 pró­sent. Og ef þrösk­uld­ur­inn er færður ofar þá eru 71 pró­sent líkur á að þessi meiri­hluti verði 39 þing­menn.

Ef við reynum að finna mestar líkur á meiri­hluta­sam­starfi fjög­urra flokka verða það lík­lega sömu flokkar auk Við­reisnar sem mynd­uðu þann meiri­hluta. Líkurnar á því að þessi hópur verði að minnsta kosti 42 þing­menn eru 100 pró­sent.

Svona væri hægt að setja saman lík­indin enda­laust. Í öllum 100.000 hermunum kosn­inga­spár­innar var eina sam­setn­ingin sem virk­aði í öllum til­fellum sam­starf allra flokka. Líkurnar á því að sá meiri­hluti geti verið 63 þing­menn er 100 pró­sent.

Þingsætaspáin

Þing­sæta­spáin er ítar­legri grein­ing á gögnum kosn­inga­spár­innar sem mælir lík­indi þess að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ingum. Nið­ur­stöð­urnar byggja á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­boða í öllum sex kjör­dæmum lands­ins hverju sinni og eru nið­ur­stöð­urnar birtar hér að vefnum. Þing­sæta­spáin sem nú er birt byggir á Þjóð­ar­púlsi Gallup 3.–12 októ­ber (vægi 57%) og Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 23. sept­em­ber - 5. októ­ber (vægi 43%). Ef fleiri könn­un­ar­að­ilar birta fylgi fram­boða niður á kjör­dæmi ásamt upp­lýs­ingum um fram­kvæmd könn­unar verður þeim upp­lýs­ingum bætt inn í þing­sæta­spánna.

Gallup er eini könn­un­ar­að­il­inn sem hefur veitt opinn aðgang að fylgis­tölum niður á kjör­dæmi. Auk þess var að finna fylgi niður á kjör­dæmi í Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem birt var í Morg­un­blað­inu. Fylgi flokka í kjör­dæmum hefur ekki hefur verið birt í Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 6.–12 októ­ber eða í Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 13.–19 októ­ber.

Fyrir kjördæmin

Líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri byggja á reikni­lík­ani stærð­fræð­ing­anna Baldurs Héð­ins­sonar og Stefáns Inga Valdi­mars­sonar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­unum“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­maður. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ingum“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingum“ þá reikn­ast lík­urnar á því að hann nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Fyrir landið í heild

Þegar nið­ur­stöður í öllum kjör­dæmum liggja fyrir er hægt taka nið­ur­stöð­urnar saman fyrir landið í heild og reikna út líkur á því hversu marga þing­menn hver flokkur fær á lands­vísu. X-list­inn gæti, svo dæm­inu hér að ofan sé haldið áfram, fengið:

  • 8 þing­menn í 4% til­fella
  • 9 þing­menn í 25% til­fella
  • 10 þing­menn í 42% til­fella
  • 11 þing­menn í 25% til­fella
  • 12 þing­menn í 4% til­fella

Þetta veitir tæki­færi til þess að máta flokka saman reyna að mynda meiri­hluta þing­manna og skoða líkur á því hvaða flokkar muni ná meiri­hluta á þingi að afstöðnum kosn­ingum. Ef X-list­inn er einn af þeim flokkum sem myndar meiri­hluta að loknum kosn­ingum er þing­manna­fram­lag hans til meiri­hlut­ans aldrei færri en 8 þing­menn, í 96% til­fella a.m.k. 9 þing­menn, í 71% til­fella a.m.k. 10 þing­menn o.s.frv. Lands­líkur X-list­ans eru því settar fram á form­inu:

  • = > 8 þing­menn í 100% til­fella
  • = > 9 þing­menn í 96% til­fella
  • = > 10 þing­menn í 71% til­fella
  • = > 11 þing­menn í 29% til­fella
  • = > 12 þing­menn í 4% til­fella
  • = > 13 þing­menn í 0% til­fella
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár