Píratar ná yfirhöndinni í Reykjavík

Bæði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin eiga á hættu að fá engan mann kjör­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Eina kjör­dæmið þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ekki öruggastur með kosn­ingu er í Reykja­vík norður.

Oddvitar Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur, þau Lilja Alfreðs­dóttir og Karl Garð­ars­son, munu tæp­lega ná kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum ef þing­sæta­spáin gengur eftir. Þing­sæta­spáin er ítar­leg grein­ing á gögnum Kosn­inga­spár Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings sem birt hefur verið hér á vefnum und­an­farin miss­eri.

Í þing­sæta­spánni fyrir höf­uð­borg­ar­kjör­dæmin er eini full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem verður nokkuð örugg­lega kjör­inn Eygló Harð­ar­dóttir, vel­ferð­ar­ráð­herra og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Líkurnar á að hún nái kjöri eru 85 pró­sent miðað við 38 pró­sent líkur á að Lilja Alfreðs­dóttir, odd­viti flokks­ins í Reykja­vík suður, nái kjöri. Karl Garð­ars­son situr í efsta sæti list­ans í Reykja­vík norður og mælist með 18 pró­sent líkur.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk tvo þing­menn kjörna í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum í kosn­ing­unum árið 2013. Aðeins Karl gefur aftur kost á sér af þeim sem kjörin voru þá.

Þing­sæta­spáin er reikni­líkan sem fram­kvæmir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ þar sem nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi kann­ana eru hafðar til grund­vallar. Líkanið hönn­uðu stærð­fræð­ing­arnir Baldur Héð­ins­son og Stefán Ingi Valdi­mars­son með það að mark­miði að reikna líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum. Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spána, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Hér að neðan er fjallað um þrjú stærstu kjör­dæmi lands­ins. Það eru Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Samtals verða kjörnir 35 þing­menn úr þessum kjör­dæmum til það sitja á Alþingi með full­trúum kjör­dæmanna sem Kjarninn fjall­aði um í gær.

Nánar má lesa um fram­kvæmd þing­sæta­spár­innar á Kosn­inga­spár­vef Kjarnans þar sem allar nið­ur­stöður Kosn­inga­spár­innar verða aðgengi­legar fram að kosn­ingum og kosn­inga­úr­slitin að þeim loknum.

Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur í stærsta kjördæminu

Í stærsta kjör­dæmi lands­ins, þar sem 13 þing­menn eru kjörnir, er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur og fær örugg­lega þrjá þing­menn kjörna. Efstu þrír full­trú­arnir á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu náðu kjöri í öllum 100.000 hermunum sýnd­ar­kosn­ing­anna og eru þess vegna með 100 pró­sent líkur á kjöri í þing­sæta­spánni. Óli Björn Kárason, sem skipar fjórða sæti list­ans, á einnig mjög góðan séns á að ná kjöri. Hann mælist með 71 pró­sent líkur. Vil­hjálmur Bjarna­son, fimmti maður á list­anum, fær 14 pró­sent.

Fyrr­ver­andi vara­for­maður og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, nú odd­viti Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir mun örugg­lega ná kjöri í kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn. Samkvæmt þing­sæta­spánni á hún 100 pró­sent líkur á að ná kjöri. Viðreisn er öflug á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í öðru sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi er Jón Steindór Valdi­mars­son með 90 pró­sent líkur á að ná kjöri.

Raunar er það þannig að öll fram­boðin eiga góðar líkur á að fá þing­mann kjör­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Það má hugs­an­lega skýra með því að benda á stærð kjör­dæm­is­ins. Þó má ekki líta fram hjá því að fyrir utan fylgið sem safn­ast hjá Sjálf­stæð­is­flokknum virð­ast atkvæðin ætla að dreifast til­tölu­lega jafnt á milli flokka.

Sam­fylk­ingin er veik­ust fram­boð­anna í þessu kjör­dæmi. Árni Páll Árnason mælist með 74 pró­sent líkur á að ná kjöri, minnst allra odd­vit­anna.

Lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna á laug­ar­dag miðað við fyr­ir­liggj­andi kann­anir er eft­ir­far­andi:

  • A-listi Bjartrar fram­tíðar = 1 full­trúi
  • B-listi Fram­sókn­ar­flokks = 1 full­trúi
  • C-listi Við­reisnar = 2 full­trúar
  • D-listi Sjálf­stæð­is­flokks = 3 full­trúar
  • P-listi Pírata = 2 full­trúar
  • S-listi Sam­fylk­ing­ar­innar = 1 full­trúi
  • V-listi Vinstri grænna = 1 full­trúi

Auk þeirra tveir af eft­ir­far­andi: D4, A2, V2, C3, P3, S2 eða B2*. Af þeim sem nefndir eru í list­anum hér að ofan er S1 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

* Listabókstafur og röð fulltrúa á listanum. Dæmi: X2 er sá sem skipar annað sæti á X-lista.

Píratar stela senunni

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er heilt yfir stærstur á lands­vísu og í ein­staka kjör­dæmum eiga full­trúar hans sam­an­borið mestar líkur á að ná kjöri; Nema í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi noður. Píratar, með Birgittu Jóns­dóttur í stafni, eru stærstir í þessu kjör­dæmi og munu örugg­lega fá tvo þing­menn kjörna. Í öðru sæti á eftir Birgittu er Björn Leví Gunn­ars­son og náði hann kjöri í öllum 100.000 hermunum sýnd­ar­kosn­ing­anna. Í þriðja sæti lista Pírata situr Halldóra Mogensen með 92 pró­sent líkur á því að ná kjöri.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son leiðir lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hann getur verið öruggur með að ná kjöri. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari flokks­ins, má einnig vera nokkuð viss. Hún mælist með 98 pró­sent líkur á því að ná kjöri.

Aðeins einn odd­viti til við­bótar hlaut full­komna kosn­ingu í sýnd­ar­kosn­ing­unum; Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, mun að öllum lík­indum ná kjöri. Þor­steinn Víglunds­son, efsti maður á lista Við­reisnar, á 93 pró­sent líkur á að ná kjöri og Björt Ólafs­dóttir, odd­viti Bjartar fram­tíðar, mælist með 91 pró­sent líkur. Eins og áður sagði er Karl Garð­ars­son frá Fram­sókn­ar­flokki með 18 pró­sent líkur á að ná kjöri.

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, mun ná kjöri sam­kvæmt lík­leg­ustu nið­ur­stöðu kosn­inga­spár­innar. Hún mælist með 68 pró­sent líkur og er þess vegna veik­ust af þeim sem kosn­inga­spáin telur með. Helgi Hjörvar er í öðru sæti list­ans og mælist með átta pró­sent líkur á að ná kjöri.

Lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna á laug­ar­dag miðað við fyr­ir­liggj­andi kann­anir er eft­ir­far­andi:

  • A-listi Bjartrar fram­tíðar = 1 full­trúi
  • B-listi Fram­sókn­ar­flokks = 0 full­trúar
  • C-listi Við­reisnar = 1 full­trúi
  • D-listi Sjálf­stæð­is­flokks = 2 full­trúar
  • P-listi Pírata = 3 full­trúar
  • S-listi Sam­fylk­ing­ar­innar = 1 full­trúi
  • V-listi Vinstri grænna = 2 full­trúar

Auk þeirra tveir af eft­ir­far­andi: A2, P4, B1, C2, V3 eða S2*. Af þeim sem nefndir eru í list­anum hér að ofan er S1 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

* Listabókstafur og röð fulltrúa á listanum. Dæmi: X2 er sá sem skipar annað sæti á X-lista.

Vandræði Samfylkingarinnar áþreifanleg

Fylgi við fram­boðin dreif­ist jafnar sunnan Miklu­brautar og Hring­brautar í Reykja­vík. Hér eiga fimm full­trúar öruggar líkur á að ná kjöri. Það eru Hanna Kristín Frið­riks­son sem er í efsta sæt­inu á lista Við­reisnar, Ólöf Nordal og Brynjar Níelsson á lista Sjálf­stæð­is­flokks, Ásta Guðrún Helga­dóttir odd­viti Pírata og Svandís Svav­ars­dóttir á lista Vinstri grænna.

Vegna þess hversu jafnt fylgið dreif­ist eru fjórir full­trúar í öðru sæti list­anna sem eiga meira en 87 pró­sent líkur á að ná kjöri. Það eru Pawel Bartozsek frá Viðreisn (87%), Brynjar Níelsson, Gunnar Hrafn Jónsson frá Pírötum (97%) og Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé (97%) frá Vinstri grænum.

Í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu kosn­inga­spár­innar munu efstu tveir af listum Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks, Pírata og Vinstri grænna, ná kjöri og Nicole Leigh Mosty, odd­viti Bjartar fram­tíðar. Hvorki Lilja Alfreðs­dóttir né Össur Skarp­héð­ins­son eru nægi­lega sterk til þess að vera talin með í þennan hóp, þó þau séu í bæði hópi þeirra sem eigi séns.

Vandræði Sam­fylk­ing­ar­innar eru nán­ast áþreif­an­leg í Reykja­vík. Á kjör­tíma­bil­inu sem nú er að ljúka hefur flokk­ur­inn átt sam­tals fjóra þing­menn úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum; tvo úr hvoru. Nú eru odd­vitar list­anna í hálf­gerðum bar­áttu­sætum því lík­urnar eru ekki miklar. Nær helm­ings líkur eru á því að Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Reyk­vík­inga til 17 ára, nái ekki kjöri. Hann náði aðeins kjöri í 54 pró­sent 100.000 sýnd­ar­kosn­inga. Í hinu Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu er Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir með 68 pró­sent. Aðeins odd­vitar Fram­sókn­ar­flokks­ins mæl­ast minni.

Lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna á laug­ar­dag miðað við fyr­ir­liggj­andi kann­anir er eft­ir­far­andi:

  • A-listi Bjartrar fram­tíðar = 1 full­trúi
  • B-listi Fram­sókn­ar­flokks = 0 full­trúar
  • C-listi Við­reisnar = 2 full­trúar
  • D-listi Sjálf­stæð­is­flokks = 2 full­trúar
  • P-listi Pírata = 2 full­trúar
  • S-listi Sam­fylk­ing­ar­innar = 0 full­trúar
  • V-listi Vinstri grænna = 2 full­trúar

Auk þeirra tveir af eft­ir­far­andi: B1, S1, D3, P3 eða V3*. Af þeim sem nefndir eru í list­anum hér að ofan er A1 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

* Listabókstafur og röð fulltrúa á listanum. Dæmi: X2 er sá sem skipar annað sæti á X-lista.

Hverjir geta myndað meirihluta?

Umfjöllun Kjarnans um þing­sæta­spána heldur áfram á morgun. Þá verður kafað í þing­manna­fjölda fram­boð­anna á lands­vísu og líkur á því hvaða fram­boð geta sam­an­lagt myndað meiri­hluta á Alþingi að kosn­ingum loknum. Öll spá­rit og mynd­rit má finna á Kosn­inga­vef Kjarnans hér.

Þingsætaspáin

Þing­sæta­spáin er ítar­legri grein­ing á gögnum kosn­inga­spár­innar sem mælir lík­indi þess að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ingum. Nið­ur­stöð­urnar byggja á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­boða í öllum sex kjör­dæmum lands­ins hverju sinni og eru nið­ur­stöð­urnar birtar hér að vefnum. Þing­sæta­spáin sem nú er birt byggir á Þjóð­ar­púlsi Gallup 3.–12 októ­ber (vægi 57%) og Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 23. sept­em­ber - 5. októ­ber (vægi 43%). Ef fleiri könn­un­ar­að­ilar birta fylgi fram­boða niður á kjör­dæmi ásamt upp­lýs­ingum um fram­kvæmd könn­unar verður þeim upp­lýs­ingum bætt inn í þing­sæta­spánna.

Gallup er eini könn­un­ar­að­il­inn sem hefur veitt opinn aðgang að fylgis­tölum niður á kjör­dæmi. Auk þess var að finna fylgi niður á kjör­dæmi í Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem birt var í Morg­un­blað­inu. Fylgi flokka í kjör­dæmum hefur ekki hefur verið birt í Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 6.–12 októ­ber eða í Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 13.–19 októ­ber.

Fyrir kjördæmin

Líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri byggja á reikni­lík­ani stærð­fræð­ing­anna Baldurs Héð­ins­sonar og Stefáns Inga Valdi­mars­sonar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­unum“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­maður. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ingum“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingum“ þá reikn­ast lík­urnar á því að hann nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Fyrir landið í heild

Þegar nið­ur­stöður í öllum kjör­dæmum liggja fyrir er hægt taka nið­ur­stöð­urnar saman fyrir landið í heild og reikna út líkur á því hversu marga þing­menn hver flokkur fær á lands­vísu. X-list­inn gæti, svo dæm­inu hér að ofan sé haldið áfram, fengið:

  • 8 þing­menn í 4% til­fella
  • 9 þing­menn í 25% til­fella
  • 10 þing­menn í 42% til­fella
  • 11 þing­menn í 25% til­fella
  • 12 þing­menn í 4% til­fella

Þetta veitir tæki­færi til þess að máta flokka saman reyna að mynda meiri­hluta þing­manna og skoða líkur á því hvaða flokkar muni ná meiri­hluta á þingi að afstöðnum kosn­ingum. Ef X-list­inn er einn af þeim flokkum sem myndar meiri­hluta að loknum kosn­ingum er þing­manna­fram­lag hans til meiri­hlut­ans aldrei færri en 8 þing­menn, í 96% til­fella a.m.k. 9 þing­menn, í 71% til­fella a.m.k. 10 þing­menn o.s.frv. Lands­líkur X-list­ans eru því settar fram á form­inu:

  • = > 8 þing­menn í 100% til­fella
  • = > 9 þing­menn í 96% til­fella
  • = > 10 þing­menn í 71% til­fella
  • = > 11 þing­menn í 29% til­fella
  • = > 12 þing­menn í 4% til­fella
  • = > 13 þing­menn í 0% til­fella
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár