Stjórnendur í ráðuneytum eiga milljónir í hlutabréfum

Einn ráðu­neyt­is­stjóri og tveir skrif­stofu­stjórar ráðu­neyt­anna eiga hluta­bréf í félögum sem skráð eru á mark­aði í Kaup­höll­inni fyrir meira en milljón krónur. Ekki er greint frá hluta­bréfa­eign ráðu­neyt­is­stjór­ans í opin­berri hags­muna­skrá.

Ráðu­neyt­is­stjóri sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins á hluta­bréf í Marel að and­virði rúm­lega milljón króna sem ekki eru til­greind í hags­muna­skrá hennar á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Tveir skrif­stofu­stjórar, ann­ars vegar í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og hins vegar í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, eiga einnig hluta­bréf í Kaup­hall­ar­fyr­ir­tækjum fyrir 16 og 33 millj­ónir króna.

Hlutabréfaeign skráð til að forðast hagsmunaárekstur

Í jan­úar á síð­asta ári lagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fram frum­varp um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráð­inu og var það sam­þykkt í fyrra­sumar. Lögin tóku svo gildi í byrjun þessa árs.

Samkvæmt lög­unum ber ráðu­neyt­is­stjórum, aðstoð­ar­mönnum, skrif­stofu­stjórum og sendi­herrum að skila hags­muna­skrán­ingu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, þar sem hluta­bréfa­eign þeirra kemur fram.

Hags­muna­skrán­ing á hags­munum ráðu­neyt­is­stjóra og aðstoð­ar­manna ráð­herra er aðgengi­leg á vef hvers ráðu­neytis fyrir sig, en hags­muna­skrán­ing skrif­stofu­stjóra og sendi­herra er ekki birt opin­ber­lega. Hins vegar mun for­sæt­is­ráðu­neytið halda utan um allar þessar upp­lýs­ingar og og á það birta þær opin­ber­lega þegar almanna­hags­munir krefj­ast þess.

Katrín skrif­aði sjálf grein um lögin á Kjarn­anum í fyrra, en þar sagði hún að það væri mik­il­vægt að skýrar reglur um skrán­ingu æðstu stjórn­enda hins opin­bera séu settar svo að traust geti skap­ast í garð stjórn­valda.

Lögin voru unnin með hlið­sjón af ábend­ingum frá GRECO, sam­taka ríkja gegn spill­ingu, og leið­bein­ingum efna­hags- og fram­fara­stofn­unar (OECD) um opin­ber heil­indi.

Eignarhlutur ekki gefinn upp í hagsmunaskrá

Engin hluta­bréfa­eign er skráð í hags­muna­skrá Ragn­hildar Hjalta­dóttur, ráðu­neyt­is­stjóra sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins, en hún var síð­ast upp­færð árið 2018. Hins vegar er hún skráður hlut­hafi í fjórum Kaup­hall­ar­fé­lögum, en þar af er eign­ar­hlutur að virði rúm­lega milljón króna í Marel.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um eign sína í Marel segir Ragn­hildur að bréfin séu í eigna­stýr­ingu hjá Kviku og fylgi fjár­fest­inga­stefnu bank­ans. Því hafi hún ekki áhrif á fjár­fest­inga­á­kvarð­anir þegar kemur að ein­stökum bréfum og ættu þar af leið­andi engir hags­muna­á­rekstrar að vera til staðar.

Tveir skrifstofustjórar einnig með hlut

Kolbeinn Árnason, skrif­stofu­stjóri í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, og Nökkvi Bragason, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, eru einnig skráðir hlut­hafar í fjölda fyr­ir­tækja í Kaup­höll­inni.

Samkvæmt sam­stæðu­reikn­ingum síð­asta árs á Kolbeinn hluta­bréf í Marel að and­virði 18 millj­óna króna, auk bréfa í Reginn að and­virði 2,6 millj­óna króna og bréfa í Origo að virði tæp­lega 1,8 millj­óna króna. Einnig á hann tíu millj­óna króna hluta­bréf í Símanum, en hann var stjórn­ar­maður fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra og sat í end­ur­skoð­un­ar­nefnd þess. Samtals er virði hluta­bréfa­eignar hans 33 millj­ónir króna.

Kolbeinn Árnason, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, er fyrrverandi framkvæmdastjóri LÍÚ
Kolbeinn Árnason, skrif­stofu­stjóri í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri LÍÚ

Sjálfur seg­ist Kolbeinn hafa til­kynnt hluta­bréfa­eign sína í sam­ræmi við lög, en telur þó ekki að hags­muná­rekstur gæti skap­ast í störfum sínum sem skrif­stofu­stjóri vegna hennar.

Nökkvi Bragason er skráður hlut­hafi í fjórum félögum í Kaup­höll­inni, Brim, Eimskip, Iceland Seafood og Sýn. Mark­aðsvirði hluta­bréfa­eignar Nökkva í Brimi, Eimskipi og Sýn nemur rúm­lega þremur millj­ónum króna fyrir hvert fyr­ir­tæki, en eign­ar­hlutur hans í Iceland Seafood nemur rúm­lega fimm millj­ónum króna.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans seg­ist Nökkvi einnig hafa til­kynnt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um þessa eign, auk þess sem reglu­verðir fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hafi verið látnir vita.

„Ég tel að það sé hafið yfir allan vafa að ég hef hvorki fyrr né síðar búið yfir neinum inn­herj­a­upp­lýs­ingum sem varða umrædd hluta­fé­lög og að verk­efni sem ég vinn að hjá ráðu­neyt­inu varða ekki hags­muni þess­ara fyr­ir­tækja sér­stak­lega,“ bætir hann við. „Ef svo ólík­lega vildi til að ég ætti hlut í félagi sem með ein­hverjum hætti varð­aði mín verk­efni mundi ég að sjálf­sögðu gæta að stöðu minni og standa rétt að málum í sam­ráði við mína yfir­boð­ara í ráðu­neyt­inu og gera reglu­gerði við­vart.“

Telur birtinguna fara gegn lögum

Ekki er víst hvort heild­ar­hlut­haf­alist­arnir sem not­aðir voru til að finna hluta­bréfa­eign emb­ætt­is­manna verði aðgengi­legir í langan tíma, en líkt og Kjarninn fjall­aði um á dög­unum telur Per­sónu­vernd birt­ingu þeirra fara gegn lögum.

Í áliti sem stofn­unin birti í þar­síð­ustu viku segir að orða­lag laga­breyt­ing­anna feli að óbreyttu ekki í sér nægi­lega skýra heim­ild til birt­ing­ar­lista yfir alla hlut­hafa félaga sem undir lögin falla með árs­reikn­ingum þeirra.

Þess má geta að árið 2018 fetti stofn­unin fingur út í það að Kaup­höllin sjálf birti reglu­lega upp­færðar upp­lýs­ingar um 20 stærstu hlut­hafa skráðra félaga á vef sínum.

Per­sónu­vernd lagði fyrir rík­is­skatt­stjóra að láta af slíkri birt­ingu upp­lýs­inga innan mán­aðar frá ákvörð­un­inni, það er að segja fyrir 18. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár