Mynd: Pexels

Ríkustu 242 fjölskyldurnar á Íslandi eiga 282 milljarða króna

Eigið fé þess 0,1 pró­sent þjóð­ar­innar hefur vaxið um 120 millj­arða króna frá árinu 2010. Ríkustu fimm pró­sent lands­manna eiga eigið fé upp á tvö þús­und millj­arða króna, en það er alls um 40 pró­sent af allri hreinni eign í land­inu.

Ríkasta 0,1 pró­sent fram­telj­enda á Íslandi áttu 282,2 millj­arða króna í eigin fé um síð­ustu ára­mót. Hópurinn sam­anstendur af alls 242 fjöl­skyldum. Því átti hver fjöl­skylda innan hóps­ins tæp­lega 1,2 millj­arða króna að með­al­tali í hreina eign.

Á árinu 2019 óx eigið fé 0,1 pró­sent rík­asta hluta þjóð­ar­innar um 22 millj­arða króna. Alls hefur það vaxið um 120 millj­arða króna frá árinu 2010, eða um 74 pró­sent. Hlut­falls­lega stendur hlut­deild þessa hóps af heild­ar­eignum þjóð­ar­innar í stað milli ára en fimm pró­sent af nýjum auði sem varð til á Íslandi í fyrra rann til hans.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um skuldir og eignir lands­manna sem birt var síð­degis í dag á vef Alþingis.

Í þeim tölum kemur líka fram að eitt pró­sent rík­ustu Íslend­ing­arnir, alls 2.420 fjöl­skyldur, áttu 865 millj­arða króna í lok síð­asta árs og juku eign sína um tæp­lega 63 millj­arða króna milli ára. Auður þessa hóps hefur auk­ist um 416 millj­arða króna frá árs­lokum 2010, eða 93 pró­sent.

Þar segir enn fremur að fimm pró­sent rík­ustu Íslend­ing­arnir, alls um 12.100 fjöl­skyldur, hafi átt eigið fé upp á 1.999 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Það er 135 millj­örðum krónum meira en hóp­ur­inn átti í árs­lok 2018 og 1.105 millj­örðum krónum meira hann átti í árs­lok 2010. Þessi hópur átti 40,1 pró­sent af öllu eigið fé lands­manna í lok síð­asta árs, sem þýðir að hin 95 pró­sent fjöl­skyldna í land­inu áttu 59,9 pró­sent þess.

Eigið fé hækkaði um 433 milljarða króna í fyrra

Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber að eigið fé Íslend­inga hefði hækkað um 433 millj­arða króna í fyrra. Það er tölu­vert minna en sú hækkun sem varð á árunum 2017 (760 millj­arðar króna) og 2018 (641 millj­arðar króna), en vert er að taka fram að á þeim árum varð mesta hækkun sem átt hefur sér stað á vexti á eigin fé frá því að Hagstofa Íslands hóf að halda utan um þær tölur.

Upp­gangur síð­ustu ára hefur skilað því að eigið fé lands­manna, eignir þeirra þegar búið er að draga skuldir frá, hefur farið úr því að vera 1.565 millj­arðar króna í lok árs 2010 í að vera 5.176 millj­arðar krókna um síð­ustu ára­mót. Það hefur aldrei verið meira og er nú í fyrsta sinn yfir fimm þús­und millj­arðar króna.

Eigið fé vanmetið hjá ríkum

Eigið fé rík­ustu tíu pró­senta lands­manna er reyndar stór­lega van­metið, og er mun meira en tölur Hag­stof­unnar segja til um. Hluti verð­bréfa­eignar, hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum, er metin á nafn­virði, en ekki mark­aðsvirði. Þá eru fast­eignir metnar á sam­kvæmt fast­eigna­mati, ekki mark­aðsvirði, sem er í flestum til­fellum hærra.

Það þýðir að ef verð­bréf í t.d. hluta­fé­lögum hafi hækkað í verði frá því að þau voru keypt þá kemur slíkt ekki fram í þessum tölum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands hefur til að mynda hækkað um 30 pró­sent frá því snemma í jan­úar 2019 og um 60 pró­sent frá byrjun árs 2015.

Þessi hópur er líka lík­leg­astur allra til að eiga eignir utan Íslands sem koma ekki fram í tölum Hag­stof­unnar, en áætlað hefur verið að íslenskir aðilar eigi hund­ruð millj­arða króna í aflands­fé­lögum sem ekki hafi verið gerð grein fyrir.

Þessi staða var meðal ann­ars dregin upp í skýrslu sem unnin var fyrir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, eftir opin­berun Panama­skjal­anna og var birt í jan­úar 2017. Nið­ur­staða hennar var að upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 næmi ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og að tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 vegna þessa væri lík­lega um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta því verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Helmingur á rúmlega allt eigið féð

Sá helm­ingur Íslend­inga sem er með minnstu tekj­urnar, alls um 113,5 þús­und fjöl­skyldur, skuldar sam­an­lagt meira en hann á. Það hefur þó dregið úr þeirri stöðu á und­an­förnum árum og skiptir þar mestu að eigið fé fast­eigna hefur næstum fjór­fald­ast frá árs­lokum 2010.

Ástæðan þess er ein­föld: hækk­andi hús­næð­is­verð og bætt skulda­staða. Eigið fé í fast­eignum lands­manna hefur enda auk­ist um 2.888 millj­arða króna frá árinu 2010 og er því ábyrgt fyrir 80 pró­sent þeirrar hækk­unar sem Hag­stofan skrá­setur.

Sá helm­ingur lands­manna sem er með hæstu tekj­urnar er því með jákvætt eigið fé um alls 5.269 millj­arð króna, eða meira en sem nemur eigin fé þjóð­ar­innar allrar.

Erfitt að bera saman eignastöðu með tæmandi hætti

Ein­faldur sam­an­burður á eigna­stöðu fólks á Íslandi er flók­inn. Sér­stak­lega vegna þess að þær hag­tölur sem safnað er saman mæla ekki að öllu leyti heild­ar­eignir fólks né taka til­lit til hlut­deildar þess í eignum líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. hér að ofan hefur fyrst og síð­ast horft á hann út frá því hvernig krónur skipt­ast á milli hópa.

Sumir grein­endur kjósa að horfa ein­ungis á hlut­falls­tölur þegar þeir skoða slíkar tölur, og hvort ójöfn­uður hafi auk­ist. Ef horft er á slíkar, sér­stak­lega á afmörk­uðum tíma­bilum, er mjög auð­velt að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að eigna­jöfn­uður sé að minnka.

Til að mynda áttu tíu pró­sent rík­ustu lands­manna 86 pró­sent alls eig­in­fjár í eigu ein­stak­linga árið 2010. Um síð­ustu ára­mót hafði það hlut­fall lækkað niður í um 56 pró­sent og hlut­fallið féll lít­il­lega frá árinu áður. En taka verður til­lit til þess að árið 2010 höfðu eignir ann­arra Íslend­inga rýrnað mjög vegna hruns­ins á meðan eignir rík­ustu héld­ust nokkuð stöðugar í gegnum storm­inn.

Þegar horft er á þetta með öðrum augum, hversu stór hluti af nýjum auði fer til rík­ustu tíu pró­sent lands­manna, þá kemur í ljós að frá árinu 2010 hefur 47 pró­sent hans endað hjá þessum hópi, sem er með van­á­ætl­aðri eignir en hinir sem eiga ein­fald­ara eigna­safn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið undanfarið ár