Erlendum ríkisborgurum á Íslandi hefur fjölgað um rúmlega einn Hafnarfjörð á áratug

Alls hefur erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi fjölgað um rúm­lega 33 þús­und frá lokum árs 2011. Flestir þeirra setj­ast að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og af þeim velur þorr­inn Reykja­vík sem nýja heim­ilið sitt.

Alls bjuggu 54.140 erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Þeir eru nú 14,4 pró­sent allra sem búa á Íslandi. Alls búa 44 pró­sent þeirra í Reykja­vík­ur­borg en allir íbúar hennar eru 36 pró­sent lands­manna. Erlendir rík­is­borg­arar eru því rúm­lega 17 pró­sent allra íbúa höf­uð­borg­ar­innar. 
Staðan er tölu­vert öðru­vísi í nokkrum nágranna­sveita­fé­lögum Reykja­vík­ur­borgar. Í Hafn­ar­firði eru erlendu íbú­arnir 11,9 pró­sent af heild­inni og í Kópavogi 10,8 pró­sent. Á Sel­tjarn­ar­nesi búa 450 erlendir rík­is­borg­arar og eru þeir 9,5 pró­sent allra íbúa. Í Mos­fellsbæ eru þeir 1.110 og 8,6 pró­sent íbúa. Í Garðabæ er hlut­fallið þó skakk­ast, en þar eru erlendu rík­is­borg­ar­arnir 930 tals­ins, eða fimm pró­sent þeirra 18.280 íbúa sem bjuggu í sveit­ar­fé­lag­inu í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Frá byrjun árs í fyrra hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík fjölgað um 1.940 tals­ins. Á sama tíma hefur þeim erlendu rík­is­borg­urum sem búa á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ fjölgað um 120. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík fjölgað um næstum sama fjölda og býr sam­an­lagt í áður­nefndum tveimur nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar.

Alls hefur erlendu rík­is­borg­urum sem búa á öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgað um 2.310 frá byrjun síð­asta árs. Næstum öll sú fjölgun hefur orðið í Reykja­vík, þar sem 84 pró­sent þeirra hafa sest að.

Mesta hlut­falls­lega aukn­ingin á land­inu síð­ast­lið­inn ára­tug hefur þó verið á Suð­ur­nesj­unum. Í Reykja­nesbæ voru erlendir íbúar 8,6 pró­sent af heild­inni í lok árs 2011. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum voru þeir fjórð­ungur íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu. Svipuð þróun hefur átt sér stað í Suð­ur­nesjabæ, sem sam­anstendur af Sand­gerði og Garði. Þar er hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara nú 20 pró­sent af heild­inni.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.

Sex af hverjum tíu nýjum Íslendingum eru útlendingar

Erlendir rík­is­borg­arar sem búa á Íslandi voru 20.930 í lok árs 2011. Síðan þá hefur þeim fjölgað um 33.210, eða 159 pró­sent, í áður­nefnda 54.140. Það er rúm­lega íbúa­fjöldi Hafn­ar­fjarðar, en 29.710 bjuggu í því þriðja stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Mikill fjöldi þeirra starfar í annað hvort ferða­þjón­ustu­tengdum greinum eða við mann­virkja­gerð.

Lands­­mönnum fjölg­aði um 55.270 sama tíma­bili og eru nú 374.830. Það þýðir að 60 pró­sent fjölg­unar lands­manna á síð­ast­liðnum ára­tug hefur verið vegna aðflutn­ings fólks hingað til lands sem er af erlendu bergi brotið.

Mest var fjölg­unin á árunum 2017 og 2018, þegar ferða­þjón­ustu­geir­inn var í mestum vexti, en á þeim tveimur árum fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búa hér um 13.930 alls. Á sama tíma fjölg­aði lands­mönnum öllum um 18.600. Því voru inn­flytj­endur ábyrgir fyrir 75 pró­sent af mann­fjölda­aukn­ingu á þessum tveimur árum.

Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri í félags- og barnamálaráðuneytinu.
Gissur Pét­urs­son, ráðu­neyt­is­stjóri í félags- og barna­mála­ráðu­neyt­inu.

Það sem af er árinu 2021 er aukn­ingin þó í takt við meðal síð­asta ára­tugar, en erlendir rík­is­borg­arar eru um 60 pró­sent af þeirri aukn­ingu sem orðið hefur á íbúa­fjölda á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Erlendu verkamennirnir fóru ekki

Á Þjóð­ar­spegli Háskóla Íslands, sem fór fram haustið 2019, voru mál­efni erlends starfs­fólks á Íslandi til umræðu. Á meðal þeirra sem sátu þar í pall­borði var Gissur Pét­urs­son, ráðu­neyt­is­stjóri í félags- og barna­mála­ráðu­neyt­inu og fyrr­ver­andi for­stjóri Vinnu­mála­stofn­un­ar. Hann sagði þar að það væri mik­ill kostur að á Íslandi væri svo ein­falt að „losa sig“ við erlent vinnu­afl um leið og sam­dráttur byrj­aði í efna­hags­líf­inu. Það hefði eng­inn beð­ið er­lenda verka­­menn um að koma til lands­ins til að vinna og því væri það ekki á ábyrgð Íslenska rík­­is­ins að hjálpa fólk­inu við að koma undir sig fót­unum með nokkrum hætti.

Ljóst má vera af þróun á fjölda þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem búa á Íslandi að þessi útlegg­ing ráðu­neyt­is­stjór­ans hefur ekki gengið eftir. Gríð­ar­legur sam­dráttur hefur verið í hag­kerf­inu frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á sem skil­aði því að áætlað er að rík­is­sjóður verði rek­inn í um 500 millj­arða króna halla sam­an­lagt árin 2020 og 2021. Frá byrjun árs 2020 og út árið 2016 gera fyr­ir­liggj­andi áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að rík­is­sjóður verði rek­inn í 1.105 millj­arða króna halla. Þrátt fyrir þessa stöðu hefur fjöldi aðfluttra haldið áfram að aukast.

Frá byrjun síð­asta árs hefur þeim fjölgað um 4.640, eða um 9,4 pró­sent. Eina skiptið á því tíma­bili sem erlendum rík­is­borg­urum hér hefur fækkað var á milli fyrsta og ann­ars árs­fjórð­ungs í fyrra, þegar þeim fækk­aði um 270 alls, eða um 0,5 pró­sent.

Atvinnuleysi mun meira hjá erlendu fólki

Í lok síð­asta mán­aðar var atvinnu­leysi hér­lendis komið niður í fimm pró­sent, og var þá hlut­falls­lega jafn mikið og það var í febr­úar 2020, áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Í apríl 2020, þegar fjöldi fyr­ir­tækja setti starfs­fólk sitt á hluta­bætur, mæld­ist atvinnu­leysið 17,8 pró­sent en 10,3 pró­sentu­stig féllu til vegna þeirra sem voru tíma­bundið sett á hluta­bætur.

Almennt atvinnu­leysi mæld­ist mest í jan­úar síð­ast­liðn­um, 11,6 pró­sent, og heild­ar­at­vinnu­leysi að með­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­sent.

Þetta atvinnu­leysi bitn­aði mest á erlendum rík­is­borg­urum. Í jan­úar síð­ast­liðnum var atvinnu­leysi á meðal þeirra 24 pró­sent og í lok ágúst mæld­ist það enn 11,8 pró­sent, eða langt umfram almennt atvinnu­leysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár