Fyrrverandi stjórnarformaður VÍS vildi verða stjórnarformaður á ný

Enn og aftur eru átök í stjórn VÍS. Í gær fór fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður félags­ins, sem er til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara í máli sem snýst um meint umboðs­svik, mútu­brot og pen­inga­þvætti, fram á að taka aftur við for­mennsku.

Ástæða þess að tveir stjórn­ar­menn, Helga Hlín Hákon­ar­dóttir og Jón Sig­urðs­son, sögðu sig úr stjórn VÍS í gær er meðal ann­ars sú að Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður félags­ins og einn stærsti einka­fjár­festir­inn í VÍS, vildi taka aftur við stjórn­ar­for­mennsku.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var sú krafa ekki byggð á því að Helga Hlín, sem gegnt hefur stjórn­ar­for­mennsku frá því í sumar, nyti ekki trausts stjórnar, heldur væri ein­fald­lega vilji til breyt­inga hjá meiri­hluta stjórnar hjá öðrum stjórn­ar­mönnum. Slíkt er þó ekki hægt án þess að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­for­manns í skráðu félagi til setu og slík aft­ur­köllun þarf að byggja á mál­efna­legum ástæðum. Þegar and­staða kom fram við þessar breyt­ingar hjá Helgu Hlín og Jóni var lögð fram ný til­laga um breytta verka­skipt­ingu sem í fólst að gera stjórn­ar­mann­inn Valdimar Svav­ars­son að stjórn­ar­for­manni. Í kjöl­far þess að sú til­laga var lögð fram sögðu Helga Hlín og Jón sig úr stjórn­inni.

Í yfir­lýs­ingu sem þau sendu á fjöl­miðla klukkan 11:05 í gær­kvöldi kom fram að ástæðan væri ágrein­ingur um stjórn­ar­hætti innan stjórnar félags­ins ásamt trún­að­ar­bresti og ágrein­ingi um umboðs­skyldu stjórn­ar­manna. Þar er haft eftir þeim að nú sé svo komið að „stjórn­ar­hættir innan stjórnar hafa leitt af sér trún­að­ar­brests og um leið efa okkar um að umboðs­skyldu stjórn­ar­manna sé gætt í ákvarð­ana­töku. Undir slíkum kring­um­stæðum eru for­sendur brostnar fyrir því að við getum sinnt skyldum okkar og axlað ábyrgð sem stjórn­ar­menn.“ Jón var fyrst kjörin í stjórn VÍS í mars á þessu ári en Helga Hlín hefur setið þar frá því í apríl 2016.

Með stöðu sakborninga

Helga Hlín hafði verið stjórn­ar­for­maður félags­ins frá því að Svan­hildur Nanna steig til hliðar sem slíkur í júní síð­ast­liðnum eftir að opin­berað var að hún væri með stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á meintum skila­svikum, mögu­legum mútu­brotum og mögu­legum brotum á lögum um pen­inga­þvætti á því þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Guð­mundur Þórð­ar­son, eig­in­maður hennar, er einnig með stöðu sak­born­ings í mál­inu, en þau eiga tvö félög, Heddu eign­ar­halds­fé­lag og K2B fjár­fest­ingar, sem eiga sam­tals 7,25 pró­sent hlut í VÍS. Það gerir þau að stærstu einka­fjár­fest­unum í VÍS.

Hjónin höfðu byrjað að kaupa hluta­bréf í VÍS af miklum krafti árið 2015. Í krafti þess eign­ar­hlutar fóru þau síðan fram á stjórn­ar­setu. Í aðdrag­anda aðal­fundar VÍS í mars 2017 sótt­ist Svan­hildur Nanna eftir því að velta Herdísi Dröfn Fjelsted, þáver­andi stjórn­ar­for­manni, úr sessi. Herdís Dröfn sat þar meðal ann­ars með stuðn­ingi stærstu líf­eyr­is­sjóð­anna í eig­enda­hópi VÍS. Þessi aðgerð tókst.

Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem var einn stærsti hlut­haf­inn í VÍS fyrir þessa óvin­veittu yfir­töku á valda­taumunum í félag­inu, ákvað í kjöl­farið að selja sig hratt niður í VÍS. Þegar upp úr sauð átti Gildi ríf­lega sjö pró­sent hlut en sjóð­ur­inn í dag 2,78 pró­sent hlut.

Vék til hliðar á meðan rannsókn stæði yfir

Þegar Svan­hildur Nanna steig niður sem stjórn­ar­for­maður í sumar, Í kjöl­far þess að hér­aðs­sak­sókn­ari réðst í umfangs­miklar aðgerðir, meðal ann­ars hús­leitir og hand­tökur, vegna Skelj­ungs­máls­ins, var send til­kynn­ing til Kaup­hallar Íslands þar sem sagt var frá því að hún hefði óskað etir því að „stíga tíma­bundið niður sem for­maður af per­sónu­legum ástæðum.“

Síðar sendi, þegar fjöl­miðlar höfðu greint frá aðgerðum hér­aðs­sak­sókn­ara, sendi Svan­hildur Nanna og Guð­mundur frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau höfn­uðu öllum ásök­unum sem á þau höfðu verið bornar. Í þeirri yfir­lýs­ingu sagði einnig að „Svan­hildur Nanna ákvað að láta öðrum eftir stjórn­ar­for­mennsku í VÍS hf. á meðan rann­sóknin stendur yfir.“

Heim­ildir Kjarnans herma að rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara standi enn yfir. Þ.e. hvorki hefur verið fallið frá henni né hefur verið tekin ákvörðun um að setja málið í ákæru­ferli.

Varamenn taka sæti í stjórn

Helga Hlín og Jón til­kynntu um ákvörðun sína um að segja sig úr stjórn VÍS seint í gær­kvöldi. Það voru bæði óháðir stjórn­ar­menn. Í þeirra stað munu setj­ast í stjórn­ina vara­menn­irnir Ólöf Hildur Páls­dóttir, sjálf­stætt starf­andi við­skipta­fræð­ingur, og Sveinn Friðrik Sveins­son, fjár­mála­stjóri Samtaka fyirr­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS).

Nýr stjórn­ar­for­maður er, líkt og áður sagði, Valdimar Svav­ars­son. Í til­kynn­ingu sem hann sendi til Frétta­blaðs­ins segir Valdimar að „eftir umræður stjórnar í dag varð ljóst að Svan­hildur hugð­ist ekki stíga aftur inn sem for­maður og því þótti rétt að stjórn skipti með sér verkum að nýju[...]Skiptar skoð­anir voru um þetta á meðal stjórn­ar­manna en nið­ur­staða meiri­hluta stjórnar var kjósa for­mann og vara­for­mann að nýju. Það eru mikil von­brigði að Helga Hlín Hákon­ar­dóttir og Jón Sig­urðs­son skyldu ákveða að segja sig úr stjórn vegna þessa og harma ég það mjög.“

Lífeyrissjóðirnir stærstu eigendurnir

Stærstu eig­endur VÍS eru ann­ars vegar íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og hins vegar erlendir vog­un­ar­sjóðir. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna með 8,64 pró­sent hlut en Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á auk þess 5,61 pró­sent og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins 5,27 pró­sent. Þá á líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Brú 4,01 pró­sent hlut, Stapi líf­eyr­is­sjóður 3,87 pró­sent og Birta líf­eyr­is­sjóður 3,28 pró­sent.

Þegar þessir eign­ar­hlutir eru lagðir saman við áður­nefndar 2,78 pró­sent hlut Gildis, og 1,55 pró­sent eign­ar­hlut Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar, þá eiga íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sam­an­lagt að minnsta kosti 35 pró­sent hlut í VÍS.

Erlendu vog­un­ar­sjóð­irnir tveir, Landsdowne Partners (7,3 pró­sent) og breski sjóð­ur­inn CF Miton UK Multi Cap Income (6,19 pró­sent), eiga síðan sam­tals 13,49 pró­sent hlut.

Það hafa hins vegar verið íslenskir einka­fjár­festar sem hafa haft tögl og haldir í félag­inu und­an­farin miss­eri. Þar erum að ræða Svan­hildi Nönnu og Guðmund, sem eiga sam­tals 7,25 pró­sent hlut í gegnum tvö félög, og hins vegar félagið Óskabein ehf., sem er sem er m.a. í eigu Gests Breið­fjörð Gests­sonar, stjórn­ar­manns í VÍS, Sigurðar Gísla Björns­sonar, Andra Gunn­ars­sonar og Fannars Ólafs­sonar. Óskabein á í dag 2,05 pró­sent hlut í VÍS en félagið seldi fyrir 430 millj­ónir króna í félag­inu í síð­asta mán­uði í hluta­lokun á fram­virkum samn­ingi.

Auk þess eiga sjóðir sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Stefnis, sem er í eigu Arion banka, sam­tals 5,76 pró­sent hlut í VÍS. Þá á Arion banki í eigin nafni 3,67 pró­sent hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tryggingafélög

FréttirTryggingafélög

VÍS lækkar arð­greiðslu um þrjá millj­arða

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lag Íslands (VÍS) hefur ákveðið að lækka arð­greiðslu til hlut­hafa sinna úr fimm millj­örðum króna í 2.067 millj­ónir króna. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar rétt í þessu. Þetta er gert þrátt fyrir að stjórnin segi að arð­greiðslu­til­kynn­ingar hennar hafi verið vel innan þess ramman sem mark­mið um fjár­magns­skipan félags­ins gerir ráð fyrir. Þar segir að við­skipta­vinir...
FréttirTryggingafélög

Sjóvá lækkar arð­greiðslu um tæpa 2,5 millj­arða

Stjórn Sjóvá ákvað á fundi í dag að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu fyrir kom­andi aðal­fund félags­ins þess efnis að fyr­ir­huguð arð­greiðsla til hlut­hafa var lækkuð úr 3,1 millj­arði króna í 657 millj­ónir króna. Hún er hún jafn há og hagn­aður Sjóvár var á síð­asta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar sem send var í hádeg­inu í dag. Í grein­ar­gerð...
FréttirTryggingafélög

Segja FME standa með fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem merg­sjúgi almenn­ing

FÍB, félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda, segir Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) standa þétt að baki fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem merg­sjúgi almenn­ing. Hags­munir við­skipta­vina trygg­inga­fé­laga lands­ins virð­ist engu máli skipta fyrir FME, þrátt fyrir að stofnun hafi laga­skyldu til að gæta þeirra. Eft­ir­litið skilji ekki hlut­verk sitt. Þetta kemur fram í svari FÍB við yfir­lýs­ingu sem FME sendi frá sér í gær. Samkvæmt til­lögum, sem bornar verða...

Mest lesið undanfarið ár