Mynd: EPA

„Á hvaða plánetu eru þeir?“ – Boris Johnson í vanda vegna ráðgjafa sem braut útgöngubann

Dominic Cummings, hinn umdeildi en óum­deil­an­lega áhrifa­ríki, ráð­gjafi Boris Johnson virð­ist hafa brotið gegn útgöngu­banni á sama tíma og bresk stjórn­völd sögðu öllum þegnum: „Þið verðið að vera heima.“ Gríð­ar­legur þrýst­ingur er á Johnson að reka Cummings.

Þann 23. mars ávarp­aði Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, bresku þjóð­ina. Til­gang­ur­inn var að til­kynna um að nær algjört útgöngu­bann tæki gildi í land­inu þá þeg­ar. Fólk í Bret­landi átti vera heima, með örfáum und­an­tekn­ing­um. Ein­ungis tveir mega koma saman á almanna­færi, nema þeir búi á sama heim­ili. „Þið verðið að vera heima,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Íbúar í Bret­landi áttu ein­ungis fara út til þess að versla helstu nauð­synja­vör­ur, eins sjaldan og unnt er. Einnig mátti fólk fara út að hreyfa sig einu sinni á dag, en þá ein­samalt eða með öðrum sem búa á sama heim­ili.

Úr ávarpi Johnson. Mynd: Skjáskot
Úr ávarpi Johnson. Mynd: Skjáskot

„Þú átt ekki að hitta vini. Ef vinir þínir biðja þig um að hitta sig, þá ættir þú að segja nei,“ sagði Johnson og bætti við að ef fólk færi ekki að reglum hefði lög­regla heim­ild til þess að beita sektum eða til þess að leysa upp sam­kom­ur.

Flest dauðsföll í Evrópu

Þetta var fyrir rúmum tveimur mán­uðum síðan og frá þeim tíma hefur COVID-19 far­ald­ur­inn farið illa með breskt sam­fé­lag. Staðfest greind smit þar hafa verið um 260 þús­und og tæp­lega 37 þús­und manns hafa lát­ist í ástand­inu. Það er hæsta dán­ar­tala í Evrópu og sú næst hæsta í heim­inum, á eftir Banda­ríkj­unum.

Bretar hafa fært miklar fórnir til að reyna að ná tökum á far­aldr­inum. Flestir hafa hlýtt skila­boðum stjórn­valda og haldið sig heima. Sleppt því að hitta vini og ætt­ingja. Farið að öllu með gát þangað til að stjórn­völd hafa gefið meld­ingar um annað.

Þess vegna er mjög útbreidd og almenn bræði í bresku sam­fé­lagi yfir fram­ferði Dominic Cummings, helsta póli­tíska ráð­gjafa Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra.

Umdeildur maður fer í heimsókn til foreldra sinna í útgöngubanni

Cummings er afar umdeildur í Bret­landi. Hann stýrði bar­áttu útgöngu­sinna í Brexit-deil­unni með þeim árangri að þeir sigr­uðu hana. Und­an­farin miss­eri hefur hann svo verið helsti póli­tíski ráð­gjafi Boris Johnson sem hefur unnið hvern póli­tískan sig­ur­inn á fætur öðrum fram að COVID-far­aldr­inum. Fyrst varð hann for­sæt­is­ráð­herra og nýr for­maður Íhalds­flokks­ins í fyrra­sumar og svo vann hann stór­sigur í þing­kosn­ingum sem fram fóru í des­em­ber síð­ast­liðnum. Helsta bar­áttu­mál Johnson og Cummings var sem fyrr að klára útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, sem hefur ekki gengið snuðru­laust fyrir sig frá því að hún var sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2016.

Annað hvort 27. eða 28. mars, skömmu eftir að Johnson, sem sjálfur var um tíma í bráðri lífs­hættu eftir að hafa smit­ast af COVID-19, flutti ávarpið þar sem hann sagði Bretum að vera heima þá ákvað Cummings að ferð­ast rúm­lega 400 kíló­metra, frá London til Durham þar sem for­eldrar hans búa, með eig­in­konu sinni og ungu barni. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hjónin væru bæði með ein­kenni sem svip­aði til COVID-19 sjúk­dóms­ins. Bresku dag­blöðin The Guardian og Daily Mirror opin­ber­uðu ferða­lagið nýverið.

Cummings hefur gefið þær skýr­ingar að hann hafi farið í ferða­lagið með hags­muni barns­ins í huga. Til­gang­ur­inn hafi verið sá að ef hann eða eig­in­kona hans myndu veikj­ast alvar­lega þá gætu for­eldrar hans séð um það. Þegar blaða­menn sátu fyrir Cummings fyrir utan heim­ili hans á laug­ar­dag þá sagð­ist hann hafa hagað sér bæði „skyn­sam­lega og lög­lega.“

Þau ummæli hafa fallið í grýttan jarð­veg víða, enda fjöl­margir Bretar sem voru í þeirri stöðu að hafa getað þegið hjálp nán­ustu ætt­ingja við umönnun barna sinna á meðan að þeir tók­ust á við veik­indi í far­aldr­inum, en sóttu hana ekki vegna þess að stjórn­völd höfðu sagt þeim að halda sig heima.

Það var svo ekki til að bæta úr skák þegar vitni gáfu sig fram og sögð­ust hafa séð Cummings og eig­in­konu hans tví­vegis utan heim­ilis for­eldra hans í apríl. Í fyrra skiptið í Durham snemma í mán­uð­inum og í hið síð­ara við Barnard Castle, sem er vin­sæll ferða­manna­staður í útjaðri Durham þann 12. apríl.

Tveimur dögum síðar, 14. apríl,var Cummings kom­inn aftur til London og var mynd­aður þar. Vitni hefur síðan sagt að það hafi séð hann á almanna­færi í nálægð við Durham fimm dögum síðar, eða 19. apríl. Cummings virð­ist því hafa ferð­ast fram og til baka milli London og Durham á tímum þar sem hið mjög stranga útgöngu­bann var í gildi.

Forsætisráðherra lýsir yfir stuðningi

Gríð­ar­legur þrýst­ingur hefur skap­ast á að Cummings verði rek­inn. Það megi ekki vera þannig að stjórn­völd láti eina teg­und reglna gilda um alla þjóð­ina, en aðrar um helsta ráð­gjafa for­sæt­is­ráð­herra. Sér­stak­lega þegar um er að ræða jafn víð­tæka frels­is­svipt­ingu og rót á dag­legu lífi íbú­anna og raun ber vitni vegna COVID-aðgerða.

Johnson ræddi við Cummings í eigin per­sónu um helg­ina og ákvað svo, á stöðu­fundi stjórn­valda vegna COVID-far­ald­urs­ins í gær, að lýsa yfir stuðn­ingi við hann. For­sæt­is­ráð­herr­ann taldi ráð­gjafa sinn hafa fylgt inn­sæi sínu sem faðir og hegðað sér í sam­ræmi við settar reglur. Sumt sem sagt hefði verið í fréttum væri ekki satt, en Johnson til­tók þó ekki hvað það væri.

Þegar The Guardian og Daily Mail eru sammála

Janine Gibson, aðstoð­ar­rit­stjóri Finacial Times, tísti í gær að ein­hver mjög hátt­settur í rík­is­stjórn Tony Blair á sínum tíma hefði sagt henni að ef Daily Mail og The Guardian séu sam­mála um eitt­hvað, þá ætti við­fangið að gef­ast sam­stundis upp. Daily Mail þykir enda mjög hallt undir stefnu Íhalds­flokks­ins og The Guardian draga taum Verka­manna­flokks­ins.

Á for­síðu the Daily Mail í dag segir ein­fald­lega: „Á hvaða plánetu eru þeir?“ Þar er átt við Johnson og Cummings. Í til­vísun í leið­ara­skrif blaðs­ins á for­síð­unni segir að Cummings hafi á mjög skýran hátt brotið gegn útgöngu­bann­inu. „Með því að gera það þá hefur hann gefið hverri ein­ustu sjálfselsku mann­eskju leyfi til að leika sér að heilsu almenn­ings.“ Í kjöl­farið er farið fram á afsögn Cummings. Fáist hún ekki þurfi Johnson að reka hann og svo er vitnað í fræg ummæli for­sæt­is­ráð­herr­ans um Brexit, þar sem hann sagði ítrekað „no ifs or buts“, það þyrfti að klára þá útgöngu.

Forsíða Daily Mail í dag.
Forsíða Daily Mail í dag.

Þegar við bæt­ist að fjöl­miðla­mað­ur­inn Piers Morgan, sem hefur þótt afar hlið­hollur Íhalds­flokknum und­an­farin miss­eri og stýrir vin­sælum sjón­varps­þætti þar í landi, lýsti því yfir að hann teldi það „hel­vítis sví­v­irðu“ (e. fucking disgrace) að Johnson hefði ekki rekið Cummings. Morgan hefur einnig sagt að hann muni brjóta gegn útgöngu­banns­reglum til að heim­sækja aldr­aða for­eldra sína ef for­sæt­is­ráð­herr­ann end­ur­skoðar ekki ákvörðun sína.

Keir Starmer, sem nýverið tók við sem leið­togi Verka­manna­flokks­ins, tísti að Johnson hefði fallið á próf­inu með því að lýsa yfir stuðn­ingi við Cummings. „Það er móðgun við þá fórn sem breskur almenn­ingur hefur fært að Boris Johnson skuli ekki ætla að gera neitt í máli Cummings,“ skrif­aði Starmer.

Verka­manna­flokk­ur­inn hefur auk þess látið útbúa aug­lýs­ingar sem fara nú sem eldur um sinu um sam­fé­lags­miðla þar sem að athæfi Cummings er sett í sam­hengi við orð helstu stjórn­ar­herra und­an­farið.

Rík­is­stjórn Johnson hitt­ist síðar í dag til að ræða frek­ari til­slak­anir á útgöngu­bann­inu sem verið hefur við lýði í Bret­landi. Þar verður staða Cummings án efa rædd á ný og hvort þessi umdeildi áhrifa­maður sitji áfram í hirð for­sæt­is­ráð­herr­ans mun að öllum lík­indum ráð­ast þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár