Mynd: Bára Huld Beck

Risapakki til að bjarga íslensku atvinnulífi kynntur í vikunni

Íslensk stjórn­völd munu á allra næstu dögum kynna nýjar aðgerðir, af áður óþekktri stærð­argráðu, sem eiga að aðstoða íslensk fyr­ir­tæki sem verða fyrir lausa­fjár­skorti við að kom­ast í gegnum fyr­ir­sjá­an­legar efna­hags­legar aðstæður.

Íslensk stjórn­völd eru að und­ir­búa stórar efna­hags­legar aðgerðir til að koma íslenskum fyr­ir­tækjum, sem fyr­ir­sjá­an­legt er að mörg hver lendi í miklum vand­ræðum strax um kom­andi mán­aða­mót vegna skorts á lausu fé, til aðstoðar.

Aðgerð­irnar verða án for­dæma og allt ann­ars eðlis en það sem var til að mynda gert í banka­hrun­inu 2008, þegar hægt var að setja neyð­ar­lög og höft til að tryggja útflæði fjár­muna svo að mögu­legt væri að við­halda venju­leik­anum upp að því marki sem kostur var. Svo var hægt að nýta það svig­rúm sem skap­að­ist til að end­ur­skipu­leggja atvinnu­lífið og fjár­mála­kerfið. Það er ekki hægt nú. Vandinn sem íslensku fyr­ir­tækin standa mörg hver frammi fyrir í dag er ann­ars eðlis. Krónur eru ein­fald­lega ekki að skila sér í kass­ann. Það hefur ruðn­ings­á­hrif út um allt atvinnu­lífið.

Heim­ildir Kjarnans herma að aðgerð­irnar verði kynntar þegar líður á vik­una, en lík­lega ekki fyrr á mið­viku­dag hið fyrsta. Þær munu fela í sér sam­bæri­legar leiðir til að aðstoða fyr­ir­tæki og mörg önnur lönd hafa þegar til­kynnt um. Þ.e. sér­stakar aðgerðir til að hjálpa stórum, og kerf­is­lega mik­il­vægum fyr­ir­tækjum, mögu­lega með því að kaupa skulda­bréf þeirra, en mögu­lega eftir öðrum leiðum, og svo aðrar aðferðir til að aðstoða líf­væn­leg lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki í gegnum banka­kerfið, mögu­lega með því að ríkið gang­ist í ábyrgð fyrir lánum til þeirra.

Ljóst er að kostn­aður við aðgerð­irnar verður gríð­ar­legur og að ganga verður á gjald­eyr­is­vara­forða þjóð­ar­innar, sem stendur nú í 856 millj­örðum króna, til að halda líf­inu í fjöl­mörgum fyr­ir­tækjum. Viðbúið er að aðgerð­irnar muni kosta tugi millj­arða króna hið minnsta. Seðla­bank­inn mun einnig koma að aðgerð­unum með þeim vopnum sem hann býr yfir.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans verða aðgerð­irnar kynntar með skipu­lögðum hætti á kynn­ing­ar­fundi sem er í und­ir­bún­ingi og verður haldin á næstu dögum. Þar verður lögð áhersla á að staða Íslands til að takast á við það efna­hags­lega áfall sem sé þegar byrjað að raun­ger­ast sé góð, skuldir séu lágar og stór vara­sjóður sé til staðar sem skýr vilji sé til að nota.

Allt breytt á viku

Á þriðju­dag í síð­ustu viku héldu Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, ­Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sig­urður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra blaða­manna­fund til að kynna aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veirunn­ar.

Þá voru helstu mark­aðir Íslands enn opnir, og skipti þar sér­stak­lega máli aðgengi að Banda­ríkja­mark­aði en 29,2 pró­sent alls útflutn­ings Íslands á þjón­ustu var inn á þann markað í fyrra. Þar var að langstærstu leyti um ferða­menn að ræða. Alls var um að ræða 202 millj­arða króna í þjón­ustu­tekjum sem koma frá þessu eina landi.

Á nefnd­ar­fundum sem haldnir voru á þingi í byrjun síð­ustu viku komu gestir sem töl­uðu um að ferða­menn sem myndu heim­sækja Ísland heim á árinu gætu orðið, miðað við svört­ustu sviðs­mynd­ina, 1,6 millj­ónir. Það myndi þýða fækkun um 400 þús­und frá því í fyrra og 700 þús­und frá árinu 2018.

Við þess­ari stöðu var rík­is­stjórnin að bregð­ast á þriðju­dag­inn í síð­ustu viku þegar hún sagði frá sjö aðgerðum sem áttu að mæta þeirri efna­hags­legu stöðu sem upp var komin.

Í þeim pakka voru meðal ann­ars aðgerðir sem þegar höfðu verið kynntar, eins og til­færsla á inn­stæðum Íbúða­lána­sjóðs úr Seðla­banka Íslands og yfir til við­skipta­banka til að auka laust fé innan þeirra.

Þá hafði áður verið greint frá því að aukin kraftur yrði settur í fjár­fest­ingar hins opin­bera og engar nýjar slíkar til­greindar á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar. Þar var hins vegar greint frá því að fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum rekstr­ar­örð­ug­leik­um ­vegna tekju­falls verði veitt svig­rúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opin­berum gjöld­um og að gistin­átta­skattur verði felldur niður. Hann hefur skilað rúm­lega einum millj­arði króna í tekjum á und­an­förnum árum en fyrir liggur að gistin­átta­skatt­ur­inn, sem er 300 krónur á hverja selda gistinótt, mun hvort eð er skila mun minna í tekjur fyrir rík­is­sjóð ef ferða­menn eru ekki að koma til lands­ins.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson tóku báðir til máls á blaðamannafundinum fyrir tæpri viku síðan. Þær aðgerðir sem þar voru boðaðar duga ekki lengur til.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son tóku báðir til máls á blaða­manna­fund­inum fyrir tæpri viku síðan. Þær aðgerðir sem þar voru boð­aðar duga ekki lengur til.

Þá greindi rík­is­stjórnin frá því að hún ætl­aði í mark­aðsá­tak erlendis „þeg­ar að­stæður skap­ast til þess að kynna Ísland sem áfanga­stað, auk átaks til að hvetja til ferða­laga Íslend­inga inn­an­lands.“ Bjarni sagði á blaða­manna­fund­inum að í átak­inu fælist að mark­aðs­setja Ísland sem áfanga­stað „þegar að ský dregur frá sólu og aðstæður eru að nýju orðn­ar hag­felldar til að kalla ferða­menn til lands­ins. Þá verðum við til­bú­in.“

Stjórn­völd ætl­uðu svo að eiga virkt sam­tal um það hvernig bankar gætu tekið á stöðu fyr­ir­tækja sem geta ekki staðið við greiðslur af lánum né almennar rekstr­ar­greiðslur, eins og launa­greiðslur, hefur verið í gangi en engin nið­ur­staða kynnt um hvernig þeim málum verði háttað að öðru leyti en að til standi að reyna að fleyta „líf­væn­legum fyr­ir­tækjum“ í gegnum þann kúf sem framundan væri með því að veita þeim sem lentu í tíma­bundnum lausa­fjár­skorti súr­efni.

Engar leiðir voru hins vegar útfærðar í þessum efnum og engar tölur um kostnað nefndar.

Seðla­banki Íslands fylgdi svo í kjöl­farið á mið­viku­dag og lækk­aði vexti um 0,5 pró­sentu­stig niður í 2,25 pró­sent, lægstu vexti sem hann hefur nokkru sinni boðið upp á. Sömu­leiðis afnam hann með­al­tals bindi­skyldu banka sem losar um nokkra tugi millj­arða króna fyrir íslenska banka til að lána út.

Bætt við en ekki nóg

Íslensk stjórn­völd bættu aðeins í sínar aðgerðir í lok síð­ustu viku, meðal ann­ars með því að veita fyr­ir­tækjum mán­að­ar­frest á að greiða helm­ing þeirra opin­beru gjalda sem eru á eindaga í dag, 16. mars. Þetta þýðir að 22 millj­arðar króna sem ættu að skila sér í dag koma að óbreyttu frekar inn eftir mánuð. Flestir við­mæl­endur Kjarnans eru sam­mála um að þarna hafi fyrst og síð­ast verið á ferð­inni aðgerð til að kaupa tíma fyrir Icelandair, sem horfir fram á hrun í rekstri sínum, svo að hægt sé að end­ur­skipu­leggja rekst­ur­inn miðað við algjör­lega nýjar for­sendur.

Þá sam­þykkti rík­is­stjórnin að auka atvinnu­leys­is­bóta­rétt til 1. júlí og heim­ila fyr­ir­tækjum að setja hluta starfs­manna í hluta­starf án þess að það skerði rétt þeirra til að fá atvinnu­leys­is­bætur. Vinnu­veit­andi mun þá geta lækkað starfs­hlut­fall starfs­manns um 20 til 50 pró­sent en heild­ar­greiðslur til launa­fólks munu munu ekki geta numið hærri fjár­hæð en 80 pró­sent af með­al­tali heild­ar­launa laun­þega á síð­ustu þremur mán­uðum fyrir minnkað starfs­hlut­fall, og eigi meira en 650 þús­und krónum í heild­ina.

Þetta frum­varp hefur þó ekki verið sam­þykkt á Alþingi og mögu­leiki á að það muni taka breyt­ingum í ljós breyttra aðstæðna.

Stefnir í hrun í lykilatvinnugrein með tilheyrandi ruðningsáhrifum

Efna­hags­legar afleið­ingar vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum fyrir Íslend­inga hafa stökk­breyst á einni viku. Mörg okkar helstu við­skipta­lönd hafa lokað landa­mærum sínum alveg á þeim tíma til að takast á við aukna útbreiðslu veirunnar.

Banda­ríkja­menn til­kynntu um sínar aðgerðir aðfara­nótt fimmtu­dags og landa­mæri þeirra lok­uð­ust fyrir Íslend­ingum á mið­nætti á föstu­dags­kvöld. Norðmenn, Danir, Spán­verjar, Frakkar og nú síð­ast Þjóð­verjar hafa gripið til lok­unar eða umtals­verða tam­kark­ana á för fólks yfir landa­mæri sín.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti um lokun landamæra Bandaríkjanna fyrir íbúum Evrópu í síðustu viku. Bandaríkjamenn eru fjölmennasti hópur ferðamanna sem sækir Ísland heim. Mynd: Mynd EPA
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, til­kynnti um lokun landamæra Banda­ríkj­anna fyrir íbúum Evrópu í síð­ustu viku. Banda­ríkja­menn eru fjöl­menn­asti hópur ferða­manna sem sækir Ísland heim. Mynd: Mynd EPA

Öll Evrópa hefur gripið til for­dæma­lausra aðgerða á frið­ar­tímum þar sem tak­manir eru settar á atvinnu­starf­semi, skóla­starf og sam­komur fólks.

Þessar aðgerðir, sem eru til að hemja far­sótt sem vonir standa til að geisi í nokkrar mán­uði, mun hafa líka hafa marg­hátt­aðar afleið­ingar til lengri tíma, sér­stak­lega efna­hags­legar. Hversu langan tíma það mun taka íbúa heims­ins að geta, og jafn­vel vilja, ferð­ast aftur veit eng­inn almenni­lega á þess­ari stundu.

Fyrir land eins og Íslands, þar sem ferða­þjón­ustan skilað um þriðj­ungi allra útflutn­ings­tekna Íslend­inga árið 2018 og var um 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, verður þetta gríð­ar­legt högg, og mun stærra en mörg önnur lönd sem treysta á ferða­þjón­ustu. Í fyrra komu flestir ferða­menn sem heim­sóttu Ísland frá eft­ir­far­andi tíu löndum: Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Kína, Þýska­landi, Frakk­landi, Pólandi, Kanada, Spáni, Danmörku og Ítalíu. Þessir ferða­menn voru 71,3 pró­sent þeirra sem komu hingað til lands á tíma­bil­inu. Eina landið af þessum tíu sem er enn með opin landa­mæri er Kanada.

Við blasir hrun í íslenskri ferða­þjón­ustu með mörg hund­ruð millj­arða króna tekju­tapi á árs­grund­velli. Keðju­verk­andi áhrif þess á íslenskt sam­fé­lag, og flesta anga atvinnu­lífs­ins, verða gríð­ar­leg.

Byrjað að rúlla út stóru björgunarpökkunum

Ýmis ríki kynntu á síð­ustu dögum aðgerðir til að styðja við efna­hags­lífið. Banda­ríski seðla­bank­inn lækk­aði vexti þannig að þeir eru nú í eða við núllið auk þess sem hann sagð­ist ætla að beita öllu vopna­búr­inu sínu til að sjá banda­rísku atvinnu­lífi fyrir lausu fé.

Þjóð­verjar kynntu 500 millj­arða evra pakka sem verður komið til fyr­ir­tækj­anna í land­inu í gegnum rík­is­banka. Danska ríkið ætlar að greiða allt að 75 pró­sent af launum starfs­fólks fyr­ir­tækja til að koma í veg fyrir fjölda­upp­sagnir.

Erna Solberg for­­sæt­is­ráð­herra Nor­egs og Jan Tore Sanner, fjár­­­mála­ráð­herra lands­ins, kynntu svo í gær­kvöldi björg­un­ar­pakka upp á að minnsta kosti 100 millj­­arða norskra króna, sem eru um 1.340 millj­­arðar íslenskra króna, sem not­aður verður til að styðja við norsk fyr­ir­tæki vegna áhrifa sem þau verða fyrir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­­dómn­­um.

Annars vegar verða skulda­bréf keypt af stórum fyr­ir­tækjum fyrir 50 millj­arða norskra króna og hins vegar verða veittar ábyrgðir fyrir lánum uppá að minnsta kosti 50 millj­arða norskra króna í bönkum fyrir lítil og milli­­­stór fyr­ir­tæki svo þau geti fengið fyr­ir­greiðslu til að kom­­ast í gegnum það ástand sem nú er uppi. Með þessu ættu fyr­ir­tækin að geta tryggt sér laust fé til að lifa af.

Þessi leið nær til þeirra fyr­ir­tækja sem bankar meta sem svo að séu arð­­bær til lengri tíma lít­ið, en að gætu jafn­­vel lent i gjald­­þroti að óbreyttu vegna þeirra áhrifa sem útbreiðsla kór­ón­u­veirunnar og aðgerðir ríkja heims vegna hennar eru að hafa á allt efna­hags­­kerf­ið.

Í vik­unni verður svo komið að Íslend­ingum að kynna sinn pakka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár