ÁTVR borgaði Rolf Johansen bætur fyrir að hætta að kaupa neftóbakið Lunda

Fyrir tæpum ára­tug ætl­uðu nokkrir aðilar að fara í sam­keppni við ÁTVR í sölu á lög­legu nef­tó­baki, sem þó var aðal­lega notað sem munn­tó­bak. ÁTVR brást við með því að hætta inn­kaupum á vörum sam­keppn­is­að­ila.

Árið 2012 var gerð til­raun til að kom­ast inn á íslenskan nef­tó­baks­markað. ÁTVR hafði þá setið að mark­aðnum eitt í nokk­urt tíma, en rík­is­fyr­ir­tækið fram­leiðir sitt eigið nef­tó­bak, sem gengur oft­ast undir nafn­inu „Ruddi“.

Á þessum tíma hafði hefð­bundið munn­tó­bak og fín­korna nef­tó­bak verið bannað hér­lendis í 16 ár og þeir sem vildu setja tóbak í vör­ina á sér sneru sér að „Ruddanum“ í stað­inn og not­uðu hann sem munn­tó­bak. Þessi grófa vara, sem hafði þótt fremur hall­æris­leg og hafði aðal­lega verið notuð af eldri mönnum, hafði verið talin á útleið. Viðtekið við­horf var að eft­ir­spurn eftir henni myndi ein­fald­lega deyja út með síð­asta nef­tó­bakskall­inum í sveit­inni.

Þetta breytt­ist þegar nýr mark­hópur, að uppi­stöðu yngri karl­menn, hóf að setja „Ruddann“ í vör­ina. Frá 2002 og til 2011 þre­fald­að­ist salan á vör­unni. Það leiddi til þess að íslenska heild­salan Rolf Johansen & Company (RJC) ákvað að reyna fyrir sér á mark­aði fyrir gróft munn­tó­bak og kynnti til leiks reyklausa tóbakið Lunda haustið 2011. Fyr­ir­tækið hefur frá árinu 1999 ein­beitt sér að inn­flutn­ingi og dreif­ingu á tóbaks­vörum, áfeng­is­vörum og tengdum varn­ingi og var því í umfangs­miklum við­skiptum við ÁTVR á fleiri sviðum en ein­ungis þessu.

Munurinn á Lunda og „Rudda“ var aðal­lega sá að Lundinn var blaut­ari, og líkt­ist þar með meira sænsku munn­tó­baki í áferð. Ljóst var að eft­ir­spurn var til staðar, enda seld­ust 600 kíló af Lunda á fyrstu þremur dög­unum eftir að hann kom á markað.

Hvenær er neftóbak munntóbak?

Sala á Lunda þurfti að fara fram í gegnum ÁTVR, enda hefur fyr­ir­tækið einka­leyfi á heild­sölu tóbaks á Íslandi sam­kvæmt lögum. Nýir fram­leið­endur á grófu tóbaki sem hægt var að taka í nef eða setja í vör þurftu því að selja ÁTVR, sam­keppn­is­að­ila sínum á smá­sölu­mark­aði fyrir reyk­laust tóbak, vör­una sem síðan dreifði henni áfram í versl­anir.

Nokkrum mán­uðum síðar, í jan­úar 2012, birt­ist til­kynn­ing á vef ÁTVR. Fyr­ir­tækið hafði ákveðið að hætta inn­kaupum á Lunda og öðrum teg­undum af reyklausu tóbaki „á meðan úr því verði skorið hvort þessar vörur séu í raun munn­tó­bak frekar en nef­tó­bak.“

Þessi ákvörðun var rök­studd með því að margar vís­bend­ingar væru uppi um að reyk­laust tóbak væri frekar notað í munn en nef, ólíkt því sem var á árum áður. „ÁTVR lítur svo á að svara þurfi hvort og hvenær nef­tó­bak verður munn­tó­bak,“ og vís­aði þar til þess að bannað væri að selja allt munn­tó­bak hér­lendis.

Þrátt fyrir að þetta ætti aug­ljós­lega líka við um „Ruddann“ þá var hann ekki tek­inn úr sölu á meðan að kom­ist var til botns í skil­grein­ingu á því hvort gróft reyk­laust tóbak væri nef- eða munn­tó­bak. „ÁTVR bendir meðal ann­ars á að skil­grein­ingar varð­andi nef- og munn­tó­bak séu óljósar. Í núver­andi lögum nær skil­grein­ingin nær ein­göngu til korna­stærðar en ekki til raka­stigs. Rakastig getur hins vegar skorið úr um það hvort yfir­höfuð sé hægt að taka tóbakið í nef.“

Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu var kynnt málið og óskað var eftir afstöðu ráðu­neyt­is­ins til þess þar sem tóbaks­varnir voru á for­ræði ráðu­neyt­is­ins. Í til­kynn­ingu ÁTVR sagði að ekki væri hægt að segja neitt um hverjar lyktir máls­ins yrðu á þessu stigi en að reiknað væri með því að þrír til fimm mán­uðir gætu liðið þar til end­an­leg nið­ur­staða lægi fyrir. Inn­kaupa­bannið var síðar fram­lengt út árið 2012 og fram­leiðsla á Lunda logn­að­ist ein­fald­lega út af.

Engar laga­breyt­ingar voru nokkurn tím­ann gerðar sem skil­greindu mun­inn á nef- og munn­tó­baki eitt­hvað frekar.

Tekjur upp á rúmlega sjö milljarða

ÁTVR sat eitt að lög­lega mark­aðnum fyrir reyk­laust tóbak næstu árin, og keppti þar aðal­lega við smyglað sænskt munn­tó­bak sem selt var á svörtum mark­aði. Árið 2019, þegar sala á „Rudda“ náði hámarki, seldu ÁTVR 46,1 tonn af honum. Salan hafði næstum fimm­fald­ast frá árinu 2002. Tekjur ÁTVR af söl­unni ruku því upp á þessu tíma­bili.

Árið 2012, þegar ákveðið var að hætta að kaupa inn Lunda, námu sölu­tekjur ÁTVR að und­an­skildum virð­is­auka­skatti 381 millj­ónum króna. Árið 2019 voru þær 1.512 millj­ónir króna. Tekj­urnar fjör­föld­uð­ust. Sam­an­lagt skil­aði sala á „Rudda“ ÁTVR tekjum upp á 7,3 millj­örðum króna frá byrjun árs 2012 og til loka árs 2019. Mark­að­ur­inn sem RJC, fram­leið­andi Lunda, og aðrir sem höfðu uppi áform um að setja reyk­laust tóbak á markað á árinu 2012 misstu af, var stór.

Árið 2019 dró svo aftur til tíð­inda. Við­skipta­blaðið birti umfjöllun þar sem fram kom að ÁTVR hefði aflað lög­fræði­á­lits sem er dag­sett í febr­úar 2013 þar sem fram kom að þær nýju teg­undir sem til stóð að setja á markað 2011 og 2012 væru sam­bæri­legar „Ruddanum“ að flestu leyti.

Í maí 2019 sendi ÁTVR svo bréf til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem sagði meðal ann­ars: „ÁTVR telur sig ekki hafa laga­heim­ild til þess að banna [nef­tó­bak] alfarið miðað við óbreytt lagaum­hverfi. Þar sem ekki er lengur stætt á því út frá sam­keppn­is­sjón­ar­miðum að halda núver­andi sölu­stöðvun mun ÁTVR frá og með 1. júní nk., að óbreyttu, heim­ila sölu á reyklausu tóbaki frá öðrum birgjum.“

Sölu­bannið, sem sett hafði verið á í jan­úar 2012 og tryggði ein­okun „Rudda“ á mark­aði fyrir reyk­laust tóbak, hafði verið afnumið.

Samið um bætur vegna tjóns

Þetta þýddi að ákvörðun ÁTVR frá árinu 2012 var án laga­stoðar. Í ljósi þess að hún hélt öðrum fram­leið­endum frá afar arð­bærum mark­aði, þar sem sala nam um sjö millj­örðum króna þangað til að sölu­bannið var afnumið, þá var ljóst að þeir fram­leið­endur máttu ætla að þeir hefðu orðið fyrir fjár­hags­legu tjóni.

Þar fór fremst í flokki RJC, fram­leið­andi Lunda. Í lok árs 2020, rúmu ári eftir að sölu­bannið var afnumið var unnið minn­is­blað, dag­sett 9. des­em­ber, sem sýndi með ótví­ræðum hætti að ákvörðun ÁTVR um að hætta inn­kaupum á Lunda hafi verið ólög­mæt. Degi síðar, 10. des­em­ber, var und­ir­ritað sam­komu­lag milli RJC og ÁTVR um að síð­ar­nefnda fyr­ir­tækið myndi greiða hinu fyrr­nefnda bætur. Í sam­komu­lag­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir að þetta sé gert „vegna alls þess tjóns sem RJC varð fyrir eða telur sig hafa orðið fyrir egna stöðv­unar reyklausa tóbaks­ins Lunda í árs­byrjun 2012.“

13,6 milljónir króna vegna sölubanns í átta ár

Bæturnar sem ÁTVR greiddi eru 13,6 millj­ónir króna. Í sam­komu­lag­inu segir að um fulln­að­ar­greiðslu sé að ræða vegna alls tjóns, beins og óbeins, sem RJC telur sig hafa orðið fyrir frá upp­hafi sölu­banns­ins 2012 og til enda árs­ins 2019.

Í sam­komu­lag­inu er sér­stak­lega tekið fram að það sé trún­að­ar­mál og að ekki verði gerður reikn­ingur vegna greiðslu ÁTVR á áður­nefndum 13,6 millj­ónum króna.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn um sam­komu­lagið til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins 25. maí síð­ast­lið­inn í ljósi þess að yfir ÁTVR er ekki stjórn og fyr­ir­tækið heyrir beint undir ráðu­neytið. Óskað var eftir því að fá minn­is­blaðið frá 9. des­em­ber 2020 og sam­komu­lagið við RJC frá 10. des­em­ber 2020 afhent.

Ráðu­neytið svar­aði sex dögum síðar og sagði að umbeðin gögn hefðu ekki fund­ist í ráðu­neyt­inu. „Ráðu­neytið hefur ekki aðkomu að ein­stökum ákvörð­unum og/eða samn­ingum sem gerðir eru af hálfu ÁTVR. Það er þáttur í starf­semi margra fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu að gera samn­inga sem bundnir eru trún­aði. Beina verður erindi þínu um aðgang að umræddum upp­lýs­ingum gagn­vart ÁTVR. Ef slíkum aðgangi er synjað verður ÁTVR að svara fyrir for­sendur þess.“

Sam­dæg­urs var sömu fyr­ir­spurn beint til ÁTVR. Í svari Sigrúnar Óskar Sigð­ur­ar­dóttur, aðstoð­ar­for­stjóra ÁTVR, sem bár­ust 8. júní stað­festi hún að RJC hefðu verið greiddar sam­komu­lags­bætur vegna tjóns sem talið var að fyr­ir­tækið hefði orði ðfyrir þegar Lundi var tekin úr sölu hjá ÁTVR árið 2012. „Ástæða sölu­stöðv­un­ar­innar var grunur um að tóbakið væri í raun munn­tó­bak í skiln­ingi tóbaks­varn­ar­laga, sem bannað er að fram­leiða, flytja inn og selja og var sölu­bannið sett á í sam­ráði við heil­brigð­is­yf­ir­völd. Síðan var bann­inu fram­haldið að til­mælum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Lundi var eina reyklausa tóbakið sem ÁTVR hafði þá tekið til sölu til við­bótar við Íslenska nef­tó­bakið, sem selt hefur verið á grund­velli ára­tuga langrar hefðar. Því eru engir aðrir birgjar í sömu stöðu og RJC og bóta­grund­völlur ekki fyrir hendi.“

Sigrún Ósk segir að sam­komu­lagið hafi verið bundið trún­aði að beiðni RJC, enda varði það við­skipta­lega hags­muni þess fyr­ir­tækis. Því geti ÁTVR ekki orðið við því að afhenda minn­is­blaðið sem sam­komu­lagið byggði á né sam­komu­lagið sjálft nema að RJC kjósi að aflétta trún­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár