Fréttamál

Panamaskjölin

Rannsókn

Panama­skjölin: Eigendur elstu heild­versl­unar Íslands stund­uðu við­skipti gegnum Tortólu

Erf­ingjar heild­söl­unnar Ó. Johnson og Kaaber, seldu hluta­bréf til Tortóla­fé­lags fyrir nærri 330 millj­ónir króna. Fjögur systk­ini og móðir þeirra stýrðu félag­inu sem hét Eliano Mana­gement Corp sem hóf lán­tökur upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna í bönkum í Lúx­em­borg. Systk­inin, meðal ann­ars fyrr­ver­andi frétta­mað­ur­inn Helga Guðrún Johnson, neita að tala um Tortóla­fé­lagið. Skatta­sér­fræð­ingur segir veru­legt skatta­hag­ræði kunna að hafa verið af félag­inu.

11 mín. lestur

Afhjúpun

Panama­skjölin: Notaði börnin sín í skatta­skjóli

Sigurður Bollason fjár­festir skuld­batt þrjú börn sín sem lög­ráða­maður þeirra í við­skiptum félaga í skatta­skjólum. Fjögurra og sex ára gömul börn eru skráðir eig­endur skúffu­fé­laga. Sigurður og við­skipta­fé­lagi hans, Magnús Ármann, eru næst umsvifa­mestir í Panama­skjöl­unum á eftir Björg­ólfs­feðgum. Arð­greiðslur frá félögum hjá Mossack Fonseca nema á sjötta millj­arð króna. Millj­arðar voru afskrif­aðir hjá þeim báðum eftir hrun en Panama­skjölin sýna miklar eignir þrátt fyrir það.

18 mín. lestur

Fréttir

Sigurður Ingi ætlar ekki að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð

Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, ætlar ekki að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, ef sá síð­ar­nefndi ákveður að bjóða sig aftur fram til for­manns. Þetta sagði Sigurður Ingi í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morgun. Sigurður Ingi sagði þar að það væri ekk­ert laun­ung­ar­mál að ýmsar raddir væru uppi innan flokks­ins um hvað...
Fréttir

Blaða­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vildi að Wintris-við­tal­inu yrði eytt

Blaða­full­trúi for­sæt­is­ráð­herra hringdi í Nils Hanson, aðal­rit­stjóra frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Uppdrag Granskning sem sýndur er í sænska rík­is­sjón­varp­inu, strax eftir að Sven Bergman, frétta­maður þátt­ar­ins, hafði tekið við­tal við Sigmund Davíð Gunna­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þann 11. mars og krafð­ist þess að hluta við­tals­ins yrði eytt. Sá hluti sem blaða­full­trú­inn vildi að yrði eytt snéri að spurn­ingum og svörum um Wintris Inc., aflands­fé­lag...
Afhjúpun

Flett ofan af Björg­ólfs­feðgum: Reikn­ingur í skatta­skjóli og banka­hólf opnuð í hrun­inu

Gögn frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca varpa ljósi á ótrú­lega umfangs­mikil við­skipti feðganna Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í skatta­skjólum fyrir og eftir hrunið 2008. Feðgarnir tengdir meira en 50 félögum. Dóttir Björg­ólfs Guð­munds­sonar opn­aði banka­reikn­ing og banka­hólf í Sviss og neitar að segja af hverju. Óþekkt lán­veit­ing upp á 3,6 millj­arða til Tortóla­fé­lags. Félag sem Björgólfur eldri stýrði fékk millj­arð í lán sem aldrei fékkst greitt til baka. Nær öll fyr­ir­tæki Björg­ólfs Thors eru beint eða óbeint í skatta­skjóli.

24 mín. lestur

Erlent

Mossack Fonseca lokar skrif­stofum

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi. Ósátt við fjöl­miðlaum­fjöllun Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd...
Fréttir

Eiga fé í skatta­skjólum en segj­ast eigna­laus á Íslandi

Fyrr­ver­andi eig­endur og stjórn­endur fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Sunds eru pró­kúru­hafar í þremur skatta­skjóls­fé­lögum á Seychelles-eyjum. Þeir skilja eftir sig skulda­slóð á Íslandi en nota félögin í skatta­skjól­inu til að halda utan um eignir á Íslandi. Skipta­stjóri Sunds segir að erf­ið­lega hafi gengið að inn­heimta kröfur sem fyrri eig­endur Sunds voru dæmdir til að greiða þrota­bú­inu.

Mest lesið undanfarið ár