Fréttamál

Panamaskjölin

Fréttir

Eign­ar­lausir, stór­skuldugir en stofn­uðu samt net félaga á aflandseyjum eftir hrun

Fyrr­ver­andi eig­endur og stjórn­endur fjár­fest­inga­fé­lags­ins Sunds, sem síðar var end­ur­nefnt IceCapital, eru með pró­kúru í þremur félögum sem skráð eru til heim­ilis á lág­skatt­ar­svæði á Seychelles-eyjum. Félögin þrjú voru stofnuð af panömsku lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca í febr­úar 2011, tveimur og hálfu ári eftir hrun. Þau heita Orangel S.A., Xperia Trading S.A. og Tangon Consulting S.A. Frá þessu er greint í...
Fréttir

Kastljós birtir tölvu­póst­sam­skipti við Júlíus Vífil

Það er ekki rétt að Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi leið­rétt nokkuð af umfjöllun Kast­ljóss um mál­efni hans og fjöl­skyldu hans í gær, eins og hann heldur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Hann kaus þvert á móti að svara engum spurn­ingum. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá rit­stjórn Kast­ljóss í dag. Kastljós hefur einnig birt tölvu­póst­sam­skipti sín við...
Fréttir

Systkini Júlíusar Vífils segja Panama­sjóð hans eft­ir­launa­sjóð for­eldra þeirra

Systkini og syst­ur­sonur Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segja að Júlíus hafi við­ur­kennt fyrir þeim að í aflands­fé­lagi hans í Panama hafi verið týndir pen­ingar for­eldra þeirra. Þetta hafi hann gert eftir að Kastljós greindi frá sjóði hans, sem er í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu, í byrjun apríl. Frá þessu var greint í Kast­ljósi í kvöld. Fjöl­skyldan hefur lengi leitað að...
Fréttir

Systkini Júlíusar Vífils leita að týndum sjóðum for­eldra sinna

Erf­ingjar Ingvars Helga­sonar og Sigríðar Guð­munds­dóttur, systk­ini og frænd­fólk Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, ætla að fá erlent rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki til að leita að týndum sjóðum for­eldra sinna erlendis. Um þetta verður fjallað í Kast­ljósi í kvöld. Upp­lýs­ingar úr Panama­skjöl­unum um Júlíus Vífil settu málið í nýtt sam­hengi fyrir systk­inum hans. Guðrún Ingv­ars­dóttir, systir hans, segir í Kast­ljósi að þetta hafi verið líf­eyr­is­sjóður...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Skattsvik­arar verði eltir uppi

Það gengur mikið á vegna þeirra upp­lýs­inga sem komið hafa fram í dags­ljósið með Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Rík­is­skatt­stjóri, Skúli Eggert Þórð­ar­son, segir að emb­ættið muni opna tvö til þrjú hund­ruð ný mál, þar sem grunur leikur á und­an­skotum frá skatti. Má rekja þetta meðal ann­ars til upp­lýs­ingar í Panama­skjöl­unum en líka til gagn­anna sem skatta­yf­ir­völd keyptu af huldu­manni. Skúli Eggert segir...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

„Ósómi“ aflands­fé­laga

Skúli Eggert Þórðar­son, rík­is­skatt­stjóri og Ingvar J. Rögn­valds­son, vara­rík­is­skatt­stjóri, skrifa harð­orðan leið­ara í nýj­asta hefti Tí­und­ar, frétta­blað emb­ætt­is­ins, sem kom út í gær. Seg­ir þar að eft­ir að Panama-skjöl­in hafi komið fram sé „kerfi blekk­ing­anna“ óðum að hrynja „ sem aum­asta spila­borg.“ Er þar átt við aflands­fé­lög. Í leið­ar­anum segir enn fremur að til­raun­ir yf­ir­valda með við­ræðum, álykt­un­um og upp­lýs­inga­skipta­samn­ing­um...
Fréttir

Útfyll­ing CFC-eyðu­blaða verður „ófrá­víkj­an­leg“

Embætti rík­is­skatt­stjóra er nú með í und­ir­bún­ingi að vél­taka CFC-eyðu­blöð sem aflands­fé­laga­eig­endur eiga að fylla út og skila með skatt­fram­tölum sínum. „Þegar því verki verður lokið mun útfyll­ing eyðu­blað­anna verða ófrá­víkj­an­leg.“ Skatt­fram­töl þar sem reynir á eign­ar­hald lög­að­ila erlendis eru þannig í dag að vél­ræn yfir­ferð þeirra er ekki fram­kvæm­an­leg. Þetta kemur fram í svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­skatt­stjóra við...

Mest lesið undanfarið ár