Svæði

Ísland

Fréttir

Alcoa á Íslandi flutti 3,5 milljarða skatt­laust úr landi

Vaxta­greiðslur Alcoa á Íslandi ehf. til móður­félags síns í Lúxemborg nema nú tæplega 57 milljörð­um króna frá byggingu álversins á Reyðar­firði. Á sama tíma hefur bókfært tap numið rúmlega 52 milljörðum króna. Fyrr­verandi ríkis­skattstjóri hefur sagt tapið vera tilbúið til að komast hjá skatt­greiðslum en Alcoa rekur það til mikillar fjár­festingar á Íslandi.
FréttirOrka Energy-málið

Ósamræmi í skýringum Illuga og í gögnum um samstarf við Orku Energy

Illugi Gunnarsson svaraði spurningum um Orku Energy málið á Alþingi í gær. Gerði lítið úr aðkomu menntamála­ráðuneytisins að samstarfs­yfirlýsingu sem hann undir­ritaði við kínverska ríkið þar sem Orka Energy er hluti af samkomu­laginu. Menntamála­ráðuneyti Illuga ákvað að vilja­yfir­lýsingin yrði gerð sem og að Orka Energy yrði framkvæmdar­aðili ríkisins í samvinnunni við Kína. Illugi sagði hins vegar að gerð vilja­yfir­lýsingarinnar hefði ekki átt sér stað innan ráðuneytis hans.

Mest lesið undanfarið ár