Flokkur

Fréttaskýringar

Skýring

Mjög sjald­gæft að fangar vilji hefja afplánun áður en þeir eru boð­aðir

Mjög sjald­gæft er að ein­stak­lingar leit­ist eftir því að hefja afplánun fang­els­is­dóma áður en þeir eru boð­aðir til afplán­unar. Þegar slíkar óskir ber­ast er allt reynt til að koma til móts við þær, segir Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar. DV greindi frá því fyrr í dag að Ólafur Ólafsson, einn sak­born­ing­anna í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða, hafi þegar óskað eftir því að...
Skýring

Sig­mundur Davíð stillir sér upp með fólk­inu á gólf­inu - snúin staða

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur að und­an­förnu sýnt mikla og ein­dregna sam­stöðu með kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að hækka laun þeirra lægst laun­uðu umtals­vert. Kröfur hafa komið fram, meðal ann­ars hjá Starfs­greina­sam­band­inu, um að lægstu laun hækki úr 214 þús­und í 300 þús­und, og að hinir lægst laun­uðu fái „mynd­ar­lega“ krónu­tölu­hækkun á launum. Eins og greint hefur verið frá í frétta­skýr­ingum...
Skýring

Risa ákvörðun um mak­ríl - 150 til 170 millj­arða verð­mæti?

Ein umfangs­mesta ákvörðun sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, stendur frammi fyrir er hvort hann ákveður að úthluta mak­ríl­kvóta var­an­lega til þeirra útgerða sem hafa afla­reynslu af veiðum á mak­ríl. Veiðar og vinnsla á mak­ríl er ein skýr­ingin á góðri afkomu stóru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna sem hafa lagt stund á mak­ríl­veiðar á síð­ustu árum. Makríll veidd­ist fyrst sem með­afli á síld­veiðum...
Skýring

„Dauður inn­flytj­andi er besta jóla­gjöfin“ - net­hatur í Svíþjóð

Þegar Svíar vilja fá nán­ari upp­lýs­ingar um lík­ams­árásir og morð­mál en þeir fá í fjöl­miðlum fara þeir á spjall­síð­una Flashback. Þar má gjarnan finna spjall­þræði þar sem fólk er nafn­greint og bak­grunnur árásanna rak­inn í smá­at­riðum. Þeir sem vilja kaupa eit­ur­lyf geta fengið upp­lýs­ingar á síð­unni og þar má einnig finna ein­kunna­gjöf fyrir vænd­is­konur og nudd­stofur. Þetta efni er ekki...
Skýring

Blekk­ingum beitt til að koma Haga­vatns­virkjun yfir í nýt­ing­ar­flokk

Tvær umsagnir sem félagið Íslensk Vatns­orka (ÍV) hefur sent atvinnu­vega­nefnd Alþingis, til að knýja á um að virkj­un­ar­kostur við Hagavatn sunnan Lang­jök­uls verði færður úr bið­flokki yfir í nýt­inga­flokk við end­ur­skoðun Ramma­á­ætl­unar, stang­ast á við skýrslu sem verk­fræði­stofan Mannvit vann fyrir félagið um til­högun virkj­un­ar­innar. Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar vill að Haga­vatns­virkjun, sem áætlað er að verði um 20 mega­vött að stærð,...
Skýring

Gríð­ar­legur og umfangs­mik­ill vandi Reykja­nes­bæjar síast inn

Reykja­nes­bær er fimmta stærsta sveita­fé­lag lands­ins. Þar búa um 14.500 manns. Og Reykja­nes­bær er það sveit­ar­fé­lag sem glímir við mestan vanda allra á Íslandi í dag. Stærsta vanda­málið eru skuldir. Reykja­nes­bær er skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess, rúmir 40 millj­arðar króna, eru um 250 pró­sent af reglu­legum tekjum. Samkvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að...
Skýring

TISA-við­ræðum gæti lokið á næsta ári

Líkur eru á að TISA-samn­ing­ur­inn geti verið til­bú­inn til und­ir­rit­unar á næsta ári. Heim­ildir Kjarnans herma að búið sé að fast­setja við­ræðu­lotur út þetta ár en að ólík­legt sé talið að samn­ings­gerðin klárist á þeim tíma. Næsta við­ræðu­lota er fyr­ir­huguð í apríl. Þeir starfs­menn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem sjá um við­ræð­urnar fyrir hönd Íslands mættu á fund utan­rík­is­mála­nefndar síð­ast­liðin þriðju­dag til að...
Skýring

Gyðingar í Evrópu ótt­ast vax­andi andúð og hatur

Gyðingar í Evrópu eru ótta­slegnir vegna ódæð­anna í París í síð­asta mán­uði og Kaup­manna­höfn um síð­ustu helgi. Þeir segja andúð á gyð­ingum í mörgum Evr­ópu­löndum fara vax­andi og ótt­ast hið versta. Gyðingar í mörgum Evr­ópu­löndum segj­ast um langt skeið hafa fundið fyrir vax­andi andúð í sinn garð. Þessi andúð birt­ist með ýmsu móti: veist sé að þeim á götum úti...
Skýring

Af hverju var Al Thani ekki ákærður?

Kaup Mohamed bin Khalifa Al Thani á rúm­lega fimm pró­sent hlut í Kaup­þingi í sept­em­ber 2008 hafa heldur betur dregið dilk á eftir sér. Í síð­ustu viku voru fjórir menn dæmdir í fjög­urra til fimm og hálfs árs fang­els­is­vistar fyrir sína aðkomu að við­skipt­unum. Menn­irnir fjórir voru dæmdir Í Hæsta­rétti fyrir mark­aðs­mis­notkun, umboðs­svik eða hlut­deild í þeim brotum. Hreiðar Már...
Skýring

Fá ekki reynslu­lausn - fleiri Kaup­þings­mál til rann­sóknar

Stjórn­endur Kaup­þings sem dæmdir voru í Al Thani mál­inu, þeir Sigurður Ein­ars­son fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, geta ekki fengið reynslu­lausn úr fang­els­is­vist á meðan mál sem bein­ast gegn þeim hafa ekki verið til lykta leidd í dóms­kerf­inu. Þessir þrír stjórn­endur eru allir ákærðir í málum sem bíða þess að...
SkýringFerð til fjár

Sigríður Bene­dikts­dóttir útskýrir hag­vöxt og lands­fram­leiðslu

„Lands­fram­leiðla er fram­leiðsla á allri vöru og þjón­ustu innan ákveð­ins land­svæðis yfir ákveðið tíma­bil. Við notum gjald­miðil, krónur á Íslandi, til þess að mæla lands­fram­leiðsl­una.“ Svona útskýrði Sigríður Bene­díkts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­banka Íslands, fyr­ir­bærið lands­fram­leiðslu í síð­asta þætti af Ferð til fjár á RÚV. Að fengnu leyfi frá Helga Seljan, frétta­manni og öðrum umsjón­ar­manni þátt­anna, þá fór Sigríður með jöfn­una...
Skýring

Stál í stál hjá Grikkjum og Evr­ópu­sam­band­inu - spennan magn­ast

Fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, Yanis Varoufakis, seg­ist vera til­bú­inn að gera „hvað sem er“ til þess að ná sam­komu­lagi við kröfu­hafa lands­ins, þar á meðal Evr­ópu­sam­bands­ríkin, um breytta skil­mála fyrir end­ur­greiðslu skulda lands­ins. Breska rík­is­út­varpið BBC greindi frá þessu í gær­kvöldi. Fjár­mála­ráð­herrar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna stóðu upp frá samn­inga­borð­inu í gær­kvöldi og lét for­maður samn­inga­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins í við­ræð­unum við Grikkja, Jeroen Dijs­sel­bloem, þau orð...

Mest lesið undanfarið ár