Flokkur

Fréttaskýringar

Skýring

Verð­trygg­ingin fer fyrir Hæsta­rétt Íslands í maí

Fyrra verð­trygg­ing­ar­málið sem EFTA-dóm­stóll­inn veitti ráð­gef­andi álit um verður tekið fyrir í Hæsta­rétti 4. maí næst­kom­andi. Því ætti nið­ur­staða þess máls, þar sem tek­ist er á um hvort verð­trygg­ing neyt­enda­lána sé lög­mæt, að liggja fyrir síð­ari hluta maí mán­aðar. EFTA-dóm­stól­inn skil­aði ráð­gef­andi áliti sínu í mál­inu í ágúst 2014 og hér­aðs­dómur Reykja­víkur úrskurð­aði í því í febr­úar. Nú fer málið...
Skýring

Ármann Kr.: „Gríð­ar­leg óvissa“ ef þing­lýst eign­ar­hald heldur ekki

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, segir að „gríð­ar­leg óvissa“ skap­ist ef ekki sé hægt að reiða sig á upp­lýs­ingar úr þing­lýs­inga­bók, þegar kemur að eign­ar­haldi á landi. Eign­ar­nám bæj­ar­ins í landi Vatns­enda hafi byggt á þing­lýs­inga­bók og heim­ildum frá opin­berum stofn­unum og ráð­herra. Þetta kemur fram í svari Ármanns við fyr­ir­spurn Kjarnans um mál­efni sem tengj­ast landi Vatns­enda, en...
Skýring

Rík­is­sjóður ætlar að byrja að greiða niður hall­ann á líf­eyr­is­kerf­inu

Rík­is­sjóður mun á næsta ári, árið 2016, byrja að greiða á ný inn á upp­safn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar opin­berra starfs­manna. Það verður í fyrsta sinn frá því fyrir hrun sem þetta verður gert og áform eru uppi um að greiða inn á hall­ann árlega næstu árin. Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við Morg­un­blaðið í dag. Þar er haft eftir Bjarna:...
Skýring

Stál í stál í kjara­við­ræðum - horft til lausna á hús­næð­is­mark­aði

Viðræðum milli Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) og Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS) hefur nú verið slitið og er SGS þegar byrjað að und­ir­búa næstu aðgerðir. Félags­menn eru ríf­lega tólf þús­und og aðild­ar­fé­lögin sextán tals­ins, en SGS sleit við­ræð­unum þar sem SA voru ekki til­búin að koma til móts við hug­myndir um hækkun lág­marks­launa upp í 300 þús­und krónur. „Kröfur SGS eru skýrar: Að lægstu...
Skýring

Sér­fræð­ingar gætu verið ákærðir brjóti þeir trúnað um hafta­losun

Sér­fræð­ingar, innan og utan stjórn­ar­ráðs­ins, sem taka þátt í vinnu við losun fjár­magns­hafta eru bundnir af inn­herja­reglum sem stað­festar voru af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, 7. októ­ber 2014 og tóku gildi 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Brjóti þeir gegn við­kom­andi reglum gætu þeir átt fang­els­is­vist yfir höfði sér. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans...
Skýring

Miklir hags­munir í Vatns­enda­máli - Spjótin bein­ast að Kópa­vogsbæ

Erf­ingjar Vatns­enda, sem fengu nýlega stað­fest end­an­lega með dómi Hæsta­réttar að þeir væru rétt­mætir eig­endur Vatns­enda en ekki ein­ungis Þor­steinn Hjalte­sted, telja Kópa­vogsbæ skulda sér meira en tíu millj­arða króna vegna þess hvernig bær­inn hefur staðið að upp­bygg­ingu á Vatns­enda á grund­velli samn­ings við Þor­steinn Hjalte­sted. Nú liggur fyrir að Þor­steinn á ekki Vatns­enda og að hann var aldrei einn...
SkýringFerð til fjár

Styttri vinnu­dagur gæti aukið fram­leiðni – Deilt um hvort komi á undan

Stytting vinnu­vik­unnar og aukin fram­leiðni eru meðal helstu atriða til umfjöll­unar í kom­andi kjara­samn­ingum ýmissa stétt­ar­fé­laga og sam­taka vinnu­veit­enda. Ísland er eft­ir­bátur við­mið­un­ar­ríkja þegar kemur að fram­leiðni vinnu­afls, reiknuð sem lands­fram­leiðsla á hverja vinnu­stund. Því vilja bæði laun­þegar og atvinnu­rek­endur breyta, enda allra hagur. Heyra má sam­hljóm um vanda­málið þótt aðilar séu ekki endi­lega á einu máli um hvernig það...
Skýring

Frið­elsk­andi Svíar græða millj­arða á við­skiptum með vopn

Svíar eru hlut­laus þjóð. Þessi hugsun var grund­völlur utan­rík­is­stefnu þeirra frá lokum seinni heims­styrj­aldar þótt heldur hafi hrikt í stoðum hlut­leys­is­ins síð­ustu ár. Olof Palme gagn­rýndi Banda­ríkin harð­lega vegna Víetnam-stríðs­ins en ris­inn í austri var engu að síður talin helsta öryggisógn lands­ins. Svíþjóð hefur aukið sam­starf sitt við NATO að und­an­förnu og fylgir þar ekki hvað síst for­dæmi Finna. Finnski...
Skýring

Almenn­ingur er að borga banka­skatt­inn að hluta

Þegar rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks kynnti áform sín um skulda­leið­rétt­ingu á völdum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum fyrir um 80 millj­arða króna í nóv­em­ber 2013 kom í ljós að rík­is­sjóður myndi fjár­magna þær. Til að auka tekjur sínar svo hægt yrði að standa undir þessum aukna kostn­aði átti að hækka gjald á banka­starf­semi, oft­ast kall­aður hinn sér­staki banka­skattur, sem leggst á skuldir, enn...
Skýring

Lækkun á olíu kemur sér vel - Jafn­gildir þriggja pró­senta launa­hækkun

Verð­fallið á olíu hefur umtals­verð áhrif á stöðu almenn­ings hér á landi eins og ann­ars staðar, og hald­ist verðið á svip­uðum slóðum og það er nú þá skilar það sér í auknum ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­ila sem jafn­gildir ríf­lega þriggja pró­senta launa­hækkun. Þetta kom fram í erindi dr. Daníels Svav­ars­sonar, for­stöðu­manns hag­fræði­deildar Lands­bank­ans, á fundi um áhrif olíu­verðs­falls­ins að und­an­förnu á efna­hag...
SkýringLekamálið

Lög­reglu­stjór­inn í veikri stöðu eftir úrskurð Per­sónu­verndar

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, braut lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga með því að skrá ekki í mála­skrá emb­ætt­is­ins þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos við upp­haf leka­máls­ins svo­kall­aða. Þetta kemur fram í úrskurði Per­sónu­verndar sem Kjarninn birti fyrstur fjöl­miðla á föstu­dag­inn. Þar að auki hafði...
SkýringFerð til fjár

Ekki gefið að launa­hækk­anir skili auknum kaup­mætti

Það er alls ekki sjálf­gefið að miklar nafn­launa­hækk­anir skili sér í auknum kaup­mætti, en það er nokkuð víst að þróun nafn­launa eins og hún var 2011 er lík­leg til að kynda undir verð­bólgu, leiða af sér vaxta­hækk­anir, hækka fjár­magns­kostnað almenn­ings og fyr­ir­tækja, lækka raun­tekjur ríkis og sveit­ar­fé­laga og draga úr sam­keppn­is­hæfni hag­kerf­is­ins í gegnum sterkara raun­gengi. Þetta er mat grein­ing­ar­deildar...

Mest lesið undanfarið ár