Frægur að endemum Roger Stone hefur getið sér orð fyrir að beita óskamm­feilnum aðferðum til að snúa almenn­ings­á­liti. Hann þykir með öðrum orðum hinn versti skálkur. Mynd: Shutterstock

Óskammfeilinn ráðabruggari Trumps

Roger Stone, einn alræmd­asti ráð­gjafi Donalds Trump, var hand­tek­inn á dög­unum. Sumir telja að mál hans gæti orðið lyk­ill­inn að því að fella Trump-stjórn­ina en ef marka má orð hans og gjörðir er lík­legt að Stone berj­ist til síð­asta blóð­dropa.

Banda­rískum stjórn­málum er í dag oft líkt við farsa og ein skraut­leg­asta fígúran á því sviði er án vafa Roger Stone. Hann hefur verið við­rið­inn kosn­inga­bar­áttu repúblik­ana ára­tugum saman og aldrei skamm­ast sín fyrir að nota öll brögðin í bók­inni og brjóta eins margar reglur og hann kemst upp með. Stone hefur fyrir vikið skelfi­legt orð­spor sem und­ir­för­ull svika­hrappur en hefur náð ótrú­legum árangri með aðferðum sínum og var meðal ann­ars einn fyrsti og helsti hvata­maður þess að Donald Trump reyndi fyrir sér í for­seta­fram­boði.

Það má segja að Roger Stone hafi verið á undan sínum sam­tíma en hann var tæki­fær­is­sinni frá fyrstu tíð. Hann fædd­ist árið 1952 og var aðeins átta ára gam­all þegar hann tók þátt í sinni fyrstu kosn­inga­bar­áttu sem ungur og ákafur stuðn­ings­maður for­seta­fram­boðs John F. Kennedy. Stone minn­ist þess oft í við­tölum að það hafi verið strax þá sem hann gerði sér grein fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár