Þrír þingmenn héldu ræður í gær með grátstafinn í kverkunum. Rammaáætlun kann að vera fráhrinandi orð en náttúran sem í henni er um fjallað snertir við mörgum.
Þrír þing­menn héldu ræður í gær með grát­staf­inn í kverk­unum. Ramma­á­ætlun kann að vera frá­hrin­andi orð en nátt­úran sem í henni er um fjallað snertir við mörgum. Mynd: Skjáskot af vef Alþingis

Tár, bros og leitin að grænu hjörtunum

Litla gula hænan, póli­tískur býtti­leikur og ref­skák. Auðmenn og stjórn­mála­flokkar sem hafa „skrælnað“ að innan. Allt kom þetta við sögu í umræðum um ramma­á­ætlun á Alþingi.

Ég held að engan hafi dreymt um það að það væri almenn sátt um alla hluti þegar að þessu kemur.“

Þetta sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis- orku- og lofts­lags­ráð­herra, í umræðu um ramma­á­ætlun á Alþingi í gær­kvöldi. Þá hafði hver stjórn­ar­and­stöðu þing­mað­ur­inn, sem og einn stjórn­ar­liði, á fætur öðrum staðið í ræðu­stól og gagn­rýnt að til stæði að færa virkj­ana­kosti úr vernd­ar­flokki áætl­unar. Fámennt var á bekk ráð­herr­anna í umræð­unni. Þar var for­sæt­is­ráð­herra til dæmis ekki sjá­an­legur.

„Það er algjör­lega úti­lokað,“ sagði umhverf­is­ráð­herr­ann, „að við náum þeim háleitu mark­miðum sem við höfum sett okkur, þegar við tökum út bensín og dísil, án þess að koma með græna orku í stað­inn. Algjör­lega ómögu­legt. Og ég veit ekki til þess að neinum detti það í hug.“

Hann benti á að ekki stæði til að færa neina virkj­un­ar­kosti úr vernd­ar­flokki í nýt­ing­ar­flokk – aðeins í bið­flokk og sagði það „ómak­legt“ og „ósann­gjarnt“ að væna meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar, sem lagt hefur til breyt­ing­arnar á ramma­á­ætlun, að hafa ekki rök­stutt þær vel.

Ráð­herr­ann var nokkuð brúna­þungur er hann steig í ræðu­stól á sjö­unda tím­anum í gær­kvöldi eftir að hafa hlustað á gagn­rýn­ina. Bað hann þing­menn Pírata og Sam­fylk­ingar um að líta sér nær – til sinna heima­haga í Reykja­vík. Í borg­inni sem þessir flokkar færu með stjórn á stæði til að raska ósnort­inni strand­lengju í Skerja­firði sem væri „umhverf­isslys í upp­sigl­ingu“.

Það var hins vegar allt annar fjörður sem var Bjarna Jónssyni, þing­manni Vinstri grænna, ofar í huga: Skaga­fjörður. Þar sat hann í sveit­ar­stjórn í tvo ára­tugi og var far­inn að sjá hylla undir sátt um að vernda Hér­aðs­vötnin og jök­ulsárnar eftir þrot­lausa bar­áttu. „Að þær fengju runnið frjálsar til sjávar um ókomna tíð,“ sagði hann um það leyti sem Guð­laugur Þór stóð upp úr sæti sínu og gekk úr þing­sal. Það fór ekki fram­hjá Bjarna. „Og ég hefði alveg kosið að hæst­virtur umhverf­is­ráð­herra með meiru sæti hér undir ræðu minni.“

Guð­laugur kom aftur til sætis skömmu síðar er Bjarni var að rifja upp að VG hefði unnið sinn fyrsta kosn­inga­sigur í Skaga­firði árið 2002, ekki síst vegna lof­orða um verndun jök­ulsánna. Fyrir nokkrum mán­uðum hafi hann sent inn umsögn við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að ramma­á­ætlun og fagnað því að setja ætti árnar í Skaga­firði í vernd­ar­flokk. „Hér stend ég nú, á Alþingi sjálfu, með til­lögu meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar í hönd­unum, sem leggur til að færa Hér­aðs­vötnin, jök­ulsárnar, úr vernd­ar­flokki í bið­flokk og í óviss­una.“

Að slíku nefnd­ar­á­liti gæti hann ekki staðið. „Ég verð,“ sagði hann með áherslu, „að standa áfram með fólk­inu mínu sem hefur háð ...“

Bjarni kláraði ekki setn­ing­una. Hann var við það að bresta í grát. Kyngdi stórum kökk áður en hann hélt áfram: „Fólkinu sem hefur háð með mér bar­átt­una fyrir verndun jök­ulsánna í Skaga­firði.“

Enn barð­ist hann við grát­inn en lét ekki deigan síga. Hélt ótrauður áfram. Sagðist þurfa að standa með öllu því fólki sem treysti á sig og aðra þing­menn, „fólk­inu sem stendur með nátt­úr­unni sjálfri.“

Hann lauk ræðu sinni af krafti.

„Heyr, heyr!“ mátti heyra frá öðrum þing­mönnum í salnum.

Bjarni var ekki eini þing­mað­ur­inn sem komst við í umræð­unum í gær­kvöldi. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, gerði það einnig. Og sömu­leiðis Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún líkt og Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, létu bæði til sín taka og gagn­rýndu máls­með­ferð­ina. Þau eiga það auk þess sam­eig­in­legt að hafa skilið við sinn gamla flokk, Vinstri græna, á síð­asta kjör­tíma­bili.

„Hvar eruð þið?“ spurði Rósa Björk fyrr­ver­andi flokks­fé­laga sína. „Hvar er græna hjartað í hreyf­ing­unni sem stofnuð var í kringum nátt­úru- og umhverf­is­vernd?“

Bjarni var eini þing­maður stjórn­ar­flokk­anna sem and­mælti breyt­ing­ar­til­lög­unum. Hann er full­trúi í umhverfis- og sam­göngu­nefnd en skrif­aði ekki undir meiri­hluta­á­litið. Það gerði hins vegar félagi hans úr VG, þing­mað­ur­inn Orri Páll Jóhanns­son, sem Bjarni hrós­aði fyrir að hafa átt stóran þátt í að koma inn í álitið nokkrum jákvæðum breyt­ingum fyrir nátt­úr­una.

Orri Páll sagð­ist enda telja sig nátt­úru­vernd­ar­sinna. Benti svo á að tafir á afgreiðslu þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sem fyrst var lagður fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu haustið 2016, hafi skaðað umræð­una. Steininn hafi tekið úr í vetur þegar umræða um raf­orku gekk „fjöllum hærra“ og ekki alltaf byggð á „skýrum – skulum við segja – rökum“.

Ísland fram­leiðir einna mest af raf­orku í heim­inum miðað við mann­fjölda, benti hann á. „Það er ekki þar með sagt að við mætum orku­skipt­unum, sem er nauð­syn­legt að mæta, ein­vörð­ungu með því að brjóta nýtt land.“

„Ákveðnir aðilar“ hefðu talað mjög stíft fyrir því að frek­ari orku­vinnsla væri eina leiðin, og „allskyns – leyfi ég mér að segja, virðu­legi for­seti – útópískar hug­myndir um það að hér verði engin fram­tíð nema að við öflum orku með stór­virkum vinnu­vélum. Ég sjálfur hafna þessu – hafna þess­ari nálgun.“

Þing­mað­ur­inn, sem var aðstoð­ar­maður umhverf­is­ráð­herr­ans Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar á síð­asta kjör­tíma­bili, sagði til­lögur meiri­hlut­ans að til­færslum kosta úr vernd­ar­flokki í bið­flokk ekki fela í sér „nein skila­boð“ um að þeir eigi svo að fara í nýt­ing­ar­flokk. „Ég minni á að nátt­úru­verð­mætin eru ekki farin. Þau eru þarna og hafa ef til vill auk­ist í ein­hverjum til­fellum.“ Slíkt muni koma í ljós við mat nýrra fag­hópa og verk­efn­is­stjórnar fimmta áfanga ramma­á­ætl­unar.

Gagnrýni þing­manna minni­hlut­ans sem stigu í pontu á Alþingi í gær snýr m.a. líkt og hjá Bjarna að því að færa eigi virkj­un­ar­kosti í Skaga­firði sem og Kjalöldu­veitu í efri hluta Þjórsár úr vernd­ar­flokki. Þeir sögð­ust hins vegar styðja að Skrokköldu­virkjun sem áformuð er í nágrenni Vatna­jök­uls­þjóð­garðs fær­ist úr nýt­ing­ar­flokki. Sögðust einnig sam­þykkir því að færa tvær virkj­anir í neðri hluta Þjórsár úr þeim flokki en þóttu rökin sem beitt væri til að skilja þriðju virkj­un­ina á svip­uðum slóðum, Hvamms­virkjun, eftir í nýt­ing­ar­flokki, hæpna.

Andrés Ingi lagði því fram breyt­inga­til­lögu um að Hvamms­virkjun færi sömu leið og systur hennar neðar í Þjórsá – í bið­flokk. Að færa hana ekki með hinum tveimur gerði „að engu“ orð meiri­hlut­ans um að skoða virkj­ana­kost­ina þrjá sem heild. „Ef meiri­hlut­inn vill að [virkj­an­irnar] verði skoð­aðar sem í heild, þá þurfa þær bara allar að fara í bið.“

Andrés lagði einnig fram til­lögu um að setja Hval­ár­virkjun á Ströndum, sem verið hefur í nýt­ing­ar­flokki frá árinu 2013, í bið­flokk. Það ætti að gera með sömu rökum og taka á Skrokköldu úr nýt­ing­ar­flokknum, sagði Rósa Björk enda hnígi allar seinni tíma rann­sóknir að því að hún myndi skerða stóran hluta víð­erna Dranga­jök­uls­svæð­is­ins og sé „algjör­lega óásætt­an­leg“ fyrir nátt­úru­vernd dags­ins í dag. „Meiri­hlut­inn hand­velur rök, sem eiga að styðja breyt­ingar á hverjum virkj­un­ar­kosti fyrir sig, en afneitar því miður vís­vit­andi, greini­lega, öllum vís­inda­legum og fag­legum gögnum sem mæla fyrir vernd­ar­flokkun umræddra kosta,“ sagði hún.

Þeir kostir sem færa eigi úr vernd­ar­flokki til­lög­unnar séu í jaðri mik­il­vægra víð­erna á hálend­inu. „Og jök­ul­árnar í Skaga­firði með sína ein­stöku nátt­úru eru aftur undir. Og fossar Skjálf­anda­fljóts fá ekki þann frið sem þeir eiga sann­ar­lega skilið. Ára­tuga­löng bar­átta nátt­úru­unn­enda fyrir var­an­legri sátt um vernd hinna helgu Þjórs­ár­vera og far­vegar Þjórsár er að engu gerð hér.“

Samþykki Alþingi breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar verði „sú fag­lega sátt sem ramma­á­ætlun er ætlað að skapa end­an­lega rofin“. Und­an­farið hafi verið hlustað á vís­inda­fólk, sagði Rósa, „og er ekki bara best að gera það áfram?“

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, sagði það ekki gagn­rýn­is­vert, eitt og sér, að gera breyt­ingar á til­lögum. En tók undir með Rósu Björk um að þær yrðu þá að vera ítar­lega rök­studdar sem til­lögur meiri­hlut­ans væru ekki. Gera yrði kröfu um að breyt­ingar séu „í þágu heild­ar­hags­muna en ekki sér­hags­muna.“ Nið­ur­staða meiri­hlut­ans væri „dap­ur­legur loka­hnykkur“ á umfjöllun umhverfis- og sam­göngu­nefndar.

„Já, herra for­seti, hvar skal byrja?“ sagði Andrés Ingi, þing­maður Pírata, á meðan hann rað­aði minnis­p­unktum sínum og útprent­uðum breyt­ing­ar­til­lögum sínum á ræðupúltið fyrir framan sig. „Kannski er best að byrja á að segja hversu leið­in­legt er að sjá farið svona illa með þetta verk­færi sem ramma­á­ætlun er. Verkfæri sem er ætlað að ná ... tja ... það er kannski erfitt að segja sátt, en að búa til ein­hvers konar leið til að koma saman ólíkum sjón­ar­miðum varð­andi nýt­ingu land­svæða.“

Hann gerði örstutt hlé á máli sínu er félagi hans í Pírötum, þing­mað­ur­inn Gísli Rafn Ólafsson, kom að ræðu­stólnum og færði honum barm­merki. „Og núna eru nátt­úru­vernd­ar­sam­tök mætt fyrir utan Alþingi til að mót­mæla vegna þess að það er verið að tæta þetta verk­færi í sundur á loka­metr­unum,“ sagði Andrés á meðan hann nældi merkið í jakk­ann sinn.

„Hérna sýn­ist mér ég vera búinn að fá foss­inn Dynk,“ sagði hann svo og virti mynd­ina á merk­inu fyrir sér. Foss sem meiri­hlut­inn leggi til að taka úr vernd­ar­flokki. Ekki foss­inn sjálfan, bætti hann þó við, heldur Kjalöldu­veitu, sem Lands­virkjun leggi ríka áherslu á. Og Kjalöldu­veita „mun þurrka Dynk upp“.

Landsvirkjun eða Landvernd?

Er Andrés sagði þetta var hvíslað utan úr sal að hann hefði ekki farið rétt með fyrr­ver­andi starfs­vett­vang Guð­mundar Inga, núver­andi vinnu­mála­ráð­herra en áður umhverf­is­ráð­herra. „Ahhh, já, hann var fram­kvæmda­stjóri Land­verndar,“ leið­rétti Andrés og hall­aði sér fram á púltið, brosti og roðn­aði eilítið. Björn Leví, sem sat í stól for­seta Alþingis, og hafði verið svip­brigða­laus undir ræð­unni, gat ekki heldur varist brosi. „Næsti bær,“ hélt Andrés áfram. „Það má vart á milli sjá þessa dag­ana.“

Hann segir það ekki koma á óvart hver nið­ur­staðan í umhverfis- og sam­göngu­nefnd hefði verið. Ýmislegt var vel gert í nefnd­ar­starf­inu en hins vegar hafi eitt lyk­il­at­riði aldrei feng­ist inn í umræð­una. Hvernig ætti að upp­fylla þær óskir rík­is­stjórn­ar­innar, fyrst og fremst „virkj­ana­flokk­anna“ Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar, að stækka bið­flokk­inn. Af því hefði verið spurt en engin svör feng­ist. „Þetta var eins og að lesa Litlu, gulu hæn­una – allir sem við spurðum sögðu ekki ég, ekki ég.“

En svörin feng­ust loks á loka­metrum nefnd­ar­starfs­ins. „Fyrir viku fengum við fyrst að vita hver hefði orðið mála­miðlun stjórn­ar­flokk­anna.“ Að færa þrjár virkj­anir úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk en fimm úr vernd í bið.

Andrési finnst eðli­legt að mála­miðl­anir séu gerðar milli ólíkra hags­muna en það verði að gera á fag­legum grunni. „Mála­miðlun stjórn­ar­flokk­anna er ekk­ert slíkt. Heldur bara póli­tísk ref­skák þeirra á milli.“

Þetta hafi nefndin fengið í fangið þegar verið var að ganga frá þing­loka­samn­ingum, „þegar mála­haug­ur­inn er svo stór að allt fellur í skugg­ann. Þetta er auð­vitað engin til­viljun,“ sagði hann með áherslu, „heldur með­vituð taktík stjórn­ar­flokka til að forð­ast umræðu um óverj­andi ákvörðun.“

Varúðarregla fyrir virkjanasinna

Hvað ein­kennir allar þessar breyt­ingar? spurði hann. „Það sem ein­kennir þær er að það er hlustað á virkj­un­ar­sinna.“ Var­úð­ar­regl­unni sé beitt „hægri vinstri“ í til­lögum meiri­hlut­ans en „ekki í þágu nátt­úr­unnar eins og á að gera“.

Andrés sagði heitar umræður skap­ast í kringum ramma­á­ætlun vegna þess að hún væri, þótt hún ætti ekk­ert að vera það, „síð­asta vígið“. Umhverf­is­mat setti enga bremsu á fram­kvæmdir – jafn­vel þótt það væri mjög nei­kvætt, líkt og raunin er í til­felli Hval­ár­virkj­unar sem dæmi.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir sagð­ist við­ur­kenna að hún yrði döpur þegar „rótað“ væri í sömu mál­unum, sömu virkj­un­unum, aftur og aftur. Haldið áfram að ýta og ýta. „Þrýsti­hóp­arnir, auð­menn­irnir, hafa kom­ist í til­lög­una og þess vegna er verið að færa til dæmis Hér­aðs­vötnin.“

Hún bað Andrés að útskýra hvað væri eig­in­lega að ger­ast með hans gamla flokk, Vinstri græn. Andrés sagði að þegar flokkur sem gaf sig eitt sinn út fyrir að vera „besti nátt­úru­vernd­ar­flokkur í heimi“ væri kom­inn í lið með öfl­ugum hags­muna­öflum þá hefði bar­áttu­fólk, sem sumt hvert hefði barist við „ofureflið Lands­virkjun“ í ára­tugi misst mik­il­vægt bak­land.

„En hvað ger­ist?“ spurði hann. „Flokkar skrælna stundum. Skrælna að utan og innan.“ Það muni sjást í atkvæða­greiðsl­unni um þetta mál hvað þing­mönnum flokks­ins raun­veru­lega finnst.

Guð­laugur Þór, umhverfis- orku- og lofts­lags­ráð­herra, sagði alltaf hafa legið fyrir að það væri alþing­is­manna að lokum að taka ákvörðun um ramma­á­ætlun. Afgreiðsla hennar hefði dreg­ist og mik­il­vægt væri að ljúka henni. En engin mann­anna verk væru full­komin, „ekki einu sinni þing­mál eða nið­ur­stöður hátt­virtrar nefndar“.

Þórunn biðl­aði til þing­manna allra flokka að styðja ekki breyt­inga­til­lögu meiri­hlut­ans, svo að þau „hrika­legu mis­tök“ yrðu ekki gerð að virkj­ana­kostir í Skaga­firði og í jaðri Þjórs­ár­vera færu úr vernd­ar­flokki. Hún klökkn­aði er hún þakk­aði nátt­úru­vernd­ar­fólki fyrir sína bar­áttu.

Andrés hvatti sömu­leiðis þing­menn til að verja vernd­ar­flokk­inn fyrir „póli­tískum árásum“ stjórn­ar­flokk­anna. Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, sagð­ist hafa margar efa­semdir um breyt­ing­ar­til­lögur meiri­hlut­ans og að hann gæti ekki stutt þær þótt flokks­fé­lagi hans, Jakob Frímann Magn­ús­son, áheyrn­ar­full­trúi í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, hafi skrifað undir meiri­hluta­á­litið.

„Það hefur legið alveg fyrir,“ sagði Guð­laugur Þór, „hefur alltaf legið fyrir og mun alltaf liggja fyrir, að það eru fáir tveir Íslend­ingar sem eru algjör­lega sam­mála í þessum málum.“

Atkvæða­greiðsla um ramma­á­ætlun fer sam­kvæmt dag­skrá fram á Alþingi í dag. Þar verða einnig greidd atkvæði um allar þær breyt­inga­til­lögur sem minni­hlut­inn hefur lagt fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár