Sóttar til saka fyrir þungunarrof

Í löndum þar sem kven­rétt­indi eru fótum troðin er aðgangur að þung­un­ar­rofi einnig mjög tak­mark­aður. Eins eru skýr merki þess að staða Donalds Trumps til for­seta Banda­ríkj­anna hafi orsakað ein­hvers konar æsing á meðal trúar- og stjórn­mála­leið­toga í mjög mörgum ríkjum Banda­ríkj­anna.

Hvort sem við erum stödd í Suður-Ameríku, Íslandi, Banda­ríkj­unum eða ann­ars staðar í heim­inum verður umræðan um þung­un­ar­rof alltaf reglu­lega til umræðu. Fjöl­margir láta sig málið varða, hvort sem það teng­ist trú­ar­legum skoð­unum, sem flestar eru veru­lega aft­ur­halds­samar eða, eins og í mörgum ríkjum Asíu, þar sem fjár­hags­leg örlög fjöl­skyld­anna veltir oft á kyni barna. En óhætt er að segja að umræðan um þung­un­ar­rof sé alltaf eld­fim og teng­ist fyrst og fremst yfir­ráði yfir sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þeirra sem bera börnin – sem eru vissu­lega konur og í mörgum til­vikum ung­lings­stúlkur.

Und­an­farnar vikur hefur umræðan um þung­un­ar­rof verið tölu­verð, bæði hér heima og vestur í Banda­ríkj­unum. Lög­gjöfin stefnir þó í ólíkar áttir hjá þjóð­unum tveimur þar sem 16 ríki í Banda­ríkj­unum hafa ann­að­hvort sam­þykkt eða til­kynnt um breyt­ingar á lögum sem tak­marka rétt til þung­un­ar­rofs. Á sama tíma sam­þykkti Alþingi nýlega að veita konum heim­ild til að rjúfa þungun allt til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár