Sætta sig ekki við samfélag sem samþykkir kynferðisofbeldi með þögn sinni

Marg­menni var mætt við Hall­gríms­kirkju til að taka þátt í hinni árlegu Druslu­göngu í dag. Ljós­mynd­ari Kjarnans fylgdi göng­unni og athug­aði stemn­ing­una.

Fjöldi fólks tók þátt í Druslu­göng­unni í ár en gengið var frá Hall­gríms­kirkju klukkan 14 í dag niður á Aust­ur­völl. Gangan er gengin til að sýna sam­stöðu með þolendum kyn­ferð­is­of­beldis og skila skömm þolenda þangað sem hún á heima, hjá ger­endum. Gangan hefur stækkað frá ári til árs síðan hún var gengin fyrst árið 2011 og í fyrra gengu hátt í 20.000 manns.

Á Facebook-síðu göng­unnar segir: „Druslu­gangan er okkar. Hún er vopn okkar gegn órétt­læti og ofbeldi. Við sættum okkur ekki við sam­fé­lag sem sam­þykkir kyn­ferð­is­of­beldi með þögn sinni og aðgerð­ar­leysi, sama hvort við séum þolendur, aðstand­endur eða tengj­umst göng­unni á annan hátt.“

Þá er bent á að kyn­ferð­is­of­beldi eigi sér stað í öllum lögum sam­fé­lags­ins, þar sem þöggun virð­ist kerf­is­læg og nauðg­un­ar­menn­ing rót­gróin. Við skulum ganga saman Druslu­göngu og standa saman gegn kyn­ferð­is­of­beldi.

Beðið við Hallgrímskirkju
Beðið við Hall­gríms­kirkju

Varð­hundar feðra­veld­is­ins klóra í bakk­ann með því að kæra þolendur fyrir meið­yrði. Þeir reyna að draga úr ofbeldi og upp­lifun fólks sem verður fyrir ofbeldi sagði Eva Sig­urð­ar­dóttir í sam­tali við Kjarn­ann í vik­unni en hún er í skipu­lags­teymi Druslu­göng­unnar í ár.

Í ár var engin ákveðin yfir­skrift Druslu­göng­unnar en þó voru ákveðnir hlutir sem skipu­leggj­endur vilja leggja áherslu á. „Eins og í fyrra vildum við leggja áherslu á að allir geti orðið fyrir ofbeldi óháð kyni, upp­runa og stétt. Kyn­ferð­is­of­beldi getur gerst allst staðar og geta ger­endur og þolendur verið alls stað­ar. Við viljum vera meira inklúsí­v,“ sagði Eva.

Lögreglan fylgdi göngunni
Lög­reglan fylgdi göng­unni

„Það hefur sýnt sig í kjöl­far auk­innar umræðu að það er þörf á Druslu­göng­unni. Við sjáum magnið af ofbeldi í sam­fé­lag­in­u,“ sagði Eva spurð um mik­il­vægi Druslu­göng­unn­ar. „Við sjáum varð­hunda feðra­veld­is­ins klóra í bakk­ann með því að kæra þolendur fyrir meið­yrði. Þeir reyna að draga úr ofbeld­inu og upp­lifun fólks sem verður fyrir ofbeld­i.“

Eva sagði Druslu­göng­una vera mik­il­vægt vopn í bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­of­beldi. „Við þurfum að halda áfram þangað til að þetta er ekki lengur partur af sam­fé­lag­in­u.“

Sig­rún Braga­dótt­ir, hann­yrða­pönk­ari og aktí­visti, og Al­dís Schram fluttu ávarp á Aust­ur­velli en þær hafa báðar talað opin­ber­lega um kyn­ferð­is­of­beldið sem þær hafa orðið fyrir.

Al­dís Schram
Al­dís Schram
Sigrún Bragadóttir
Sigrún Braga­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár