Mynd: Samsett

90 þúsund króna launahækkun á tæpum fjórum árum en lítil hækkun í ár

Í nýgerðum kjara­samn­ingum, sem eru til tæp­lega fjög­urra ára, er upp­sagn­ar­á­kvæði sem virkj­ast ef Seðla­banki Íslands lækkar ekki stýri­vexti. Launa­hækk­anir sem koma til fram­kvæmda í ár verða mjög lágar.

Þeir sem starfa á töxtum munu fá 90 þús­und króna launa­hækk­anir á næstu þremur árum og átta mán­uðum. Þessar hækk­anir munu koma í fjórum skrefum. Hækkunin á árinu 2019 verður lág vegna þeirra aðstæðna sem eru í íslensku hag­kerfi sem stendur, en það hefur kólnað veru­lega á skömmum tíma vegna loðnu­brests og gjald­þrots WOW air sem leitt hefur af sér for­dæma­lausar upp­sagnir. Auk þess á hóf­söm launa­hækkun í ár að skapa skil­yrði fyrir Seðla­banka Íslands til að lækka stýri­vexti.

Þetta er meðal þess sem samið var um í kjara­samn­ingum milli sam­flots­fé­lag­anna Eflingar, VR, Fram­sýnar, Lands­sam­bands íslenzkra verzlunarmanna og verka­lýðs­fé­laga Akraness og Grinda­víkur við Samtök atvinnu­lífs­ins sem und­ir­rit­aður var í dag.

Þær krónu­tölu­hækk­anir sem náð­ust eru lægri en stefnt var að sam­kvæmt fram­lögðum kröfu­gerðum verka­lýðs­fé­lag­anna, en þar var stefnt að því að ná fram 125 þús­und króna hækk­unum á þremur árum. Allar launa­hækk­anir sem samd­ist um eru hins vegar krónu­tölu­hækk­anir og við þær bæt­ast sér­stakar krónu­tölu­hækk­anir á taxta.

Til við­bótar hefð­bundnum nafn­launa­hækk­unum koma til ýmis atriði sem munu auka ráð­stöf­un­ar­tekjur og eru þannig ígildi launa­hækk­ana. Í samn­ingnum er til að mynda ákvæði sem á að tryggja að hag­vaxt­ar­aukn­ing skili sér til launa­fólks í formi krónu­tölu­hækk­ana. Miðað við með­al­hag­vöxt síð­ustu 30 ára gæti ábati af slíkum hækk­unum skilað 10-24 þús­und krónum til við­bótar á mán­uði í heild­ar­hækkun launa á samn­ings­tím­anum.

Mikla athygli vekur að ein af for­sendum samn­ings­ins er að Seðla­banki Íslands lækki stýri­vexti, en samn­ings­að­ilar voru sam­mála um að kjara­samn­ing­ur­inn skapi aðstæður til þess. Það muni leiða til þess að útgjöld skuld­settra heim­ila muni lækka. Það muni leigu­verð líka gera í ljósi þess að fjár­magns­kostn­aður verði minni. Í samn­ingnum er sér­stakt for­sendu­á­kvæði um upp­sögn hans ef vaxta­lækk­anir verða ekki að veru­leika.

Seðla­banki Íslands er ekki aðili að gerð kjara­samn­inga og nýtur fulls sjálf­stæðis í störfum sínum sam­kvæmt lögum. Meg­in­mark­mið hans er stöðugt verð­lag og til að ná því mark­miði skil­greinir Seðla­banki Íslands hlut­verk sitt þannig að hann eigi að reyna að halda verð­bólgu að jafn­aði sem næst 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði. Ekkert er að finna um hlut­verk hans við að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga með vaxta­lækk­unum í lögum um starf­semi Seðla­bank­ans.

Samið um styttri vinnuviku

Í kjara­samn­ing­unum er einnig samið um styttri vinnu­viku með því að taka upp það sem er kallað „virkan vinnu­tíma“ sem verður að jafn­aði 36 stundir á viku. Hana á að inn­leiða með því að gera vinnu­tíma fólks sveigj­an­legri með því að bjóða því að kjósa sjálft um hvaða fyr­ir­komu­lag henti best á hverjum vinnu­stað.

Lyk­il­at­riði að því að ná kjara­samn­ing­unum saman var svo aðkoma stjórn­valda með aðgerð­ar­pakka sem telur marga tugi aðgerða. Sumar þeirra hafa þegar verið lagðar fram, aðrar eru nýjar útfærslur á gömlum hug­myndum og sumar eru ein­fald­lega end­ur­unnar hug­myndir ann­arra stjórn­mála­flokka. En hluti aðgerð­ar­pakk­ans, sem rík­is­stjórnin verð­lagði í gær á 100 millj­arða króna, en er nú sagður 80 millj­arða króna virði, er vissu­lega nýr.

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, hefur stýrt við­ræðum við stjórn­völd í kjara­samn­ingum. Kjarninn greindi frá því í morgun að sam­kvæmt þeim til­lögum sem til stóð að kynna á blaða­manna­fundi í gær klukkan 18:30, en hætt var við á síð­ustu stundu, felst meðal ann­ars í aðgerð­unum þróun Keldna­lands undir íbúða­byggð, hækkun ráð­stöf­un­ar­tekna lægsta tekju­hóps­ins um tíu þús­und krónur á mán­uði með skatta­lækk­unum, úrræði fyrir fyrstu kaup­endur hús­næðis um að fá sér­stök lán eða til að nýta hluta af líf­eyr­is­ið­gjalda­greiðslum sínum til að kom­ast inn á hús­næð­is­markað og fram­leng­ing á nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til að greiða niður hús­næð­is­lán til sum­ars­ins 2021.

Ósamræmi er á milli þeirra gagna sem Kjarninn hefur undir höndum um hvort að skatt­kerf­is­breyt­ing­arnar muni skila níu eða tíu þús­und krónum til lægstu tekju­hópanna en í þeim pakka sem til stóð að kynna í gær var talan tíu þús­und krónur.

Skattkerfisbreytingar og hækkuð skerðingarmörk

Rík­is­stjórnin kynnti skatta­breyt­ing­ar­til­lögur í febr­úar sem féllu í grýttan jarð­veg hjá verka­lýðs­for­yst­unni. Þær fól í sér nýtt skatt­þrep fyrir lægstu tekj­urnar og að skatt­leys­is­mörk og per­sónu­af­sláttur og tekju­mörk skatt­þrepa verði látin fylgja þróun breyt­inga á vísi­tölu neyslu­verðs og þróun fram­leiðni. Þessar breyt­ingar áttu að leiða til þess að jöfn krónu­tölu­lækkun á skatt­byrði myndi eiga sér stað upp allan tekju­stig­ann, en vænt­ingar verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar voru að meira yrði gert fyrir lægri tekju­hópa.

Þær breyt­ingar sem gripið verður til varð­andi tekju­skatt eru að uppi­stöðu í sam­ræmi við áður fram settar til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar en í stað þess að ráð­stöf­un­ar­tekjur tekju­lægsta hóp lands­manna verði auknar um 6.750 krónur á mán­uði verða þær auknar um tíu þús­und krónur á mán­uði.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er einnig á borð­inu vil­yrði um að hækka skerð­ing­ar­mörk barna­bóta í 325 þús­und krónur á mán­uði á næsta ári. Samkvæmt þeim til­lögum munu barna­bætur ein­stæðra for­eldra til að mynda hækka um allt að 9.500 krónur á mán­uði og fyrir for­eldra í sam­búð geta þær hækkað um allt að 14 þús­und krónur á mán­uði. Þær tölur miða við að við­kom­andi eigi tvö börn og að annað þeirra sé yngra en sjö ára.

Vert er að taka fram að Sam­fylk­ingin lagði fram til­lögur um að hækka barna­bætur á haust­þingi sem voru felldar.

Þá eru áður kynntar til­lögur um að lengja fæð­ing­ar­or­lof úr níu í tíu mán­uði á árinu 2020 og í tólf mán­uði frá byrjun árs 2021 hluti af pakk­anum sem lagður hefur verið fram.

„Tilgreind séreign“ og fyrstu kaupendur

Fjöl­margar til­lögur sem snúa að hús­næð­is­málum er að finna í pakka rík­is­stjórn­ar­innar til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga. Ein stærsta hús­næð­is­að­gerðin felst í því að ríkið og Reykja­vík­ur­borg eiga að kom­ast að sam­komu­lagi um að hefja skipu­lagn­ingu Keldna­lands, risa­stórs land­svæðis innan borg­ar­markanna sem er í eigu íslenska rík­is­ins. Vert er að taka fram að upp­bygg­ing í Keldna­landi var einnig hluti af áætl­unum aðgerð­ar­hóps síð­ustu rík­is­stjórnar sem sat í nokkra mán­uði á árinu 2017.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur leggur fram aðgerðarpakka sem hún metur á 100 milljarða króna til að liðka fyrir gerð kjarasamninga. Mynd: Bára Huld Beck.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur leggur fram aðgerð­ar­pakka sem hún metur á 100 millj­arða króna til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga. Mynd: Bára Huld Beck.

Þá á að veita heim­ild til þess að skipta upp lög­bundnu iðgjaldi, sem er 15,5 pró­sent, þannig að 3,5 pró­sent þess verði skil­greint sem „til­greind sér­eign“. Þann hluta verður hægt að nota til hús­næð­is­kaupa. Þessi leið er í sam­ræmi við frum­varp sem þing­menn frá Viðreisn, Pírötum og Flokki fólks­ins lögðu fram fram í haust og Þor­steinn Víglunds­son er fyrsti flutn­ings­maður af.

Sú heim­ild sem er við lýði nú um að nota sér­eign­ar­sparnað til að greiða inn á lán, en á að renna út í júlí næst­kom­andi, mun verða fram­lengd í tvö ár, eða fram á mitt ár 2021.

Takmörkun á veitingu verðtryggðra lána

Þá fór hluti for­ystu­manna verka­lýðs­fé­lag­anna fram á að tak­mark­anir á vægi verð­trygg­ingar lána yrðu hluti af fram­lagi stjórn­valda inn í kjara­við­ræður. Á meðal þess sem stjórn­völd hafa skuld­bundið sig til að gera í þeim mála­flokki er að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán frá byrjun næsta árs.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem áform í þessa veru hafa verið kynnt. Sam­bæri­legt bann var í frum­varpi sem lagt var fram í ágúst 2016 af þáver­andi rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar. Ýmsar und­an­þágur áttu þá að vera frá bann­inu, sem gerðu það að verkum að 75 pró­sent lands­manna gætu í raun tekið lánin áfram. Sömu­leiðis verður lág­marks­láns­tími verð­tryggðra lána lengdur úr fimm árum í tíu ár.

Þeir sem taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán eru þeir hópar sem ráða við lægstu afborg­anir af hús­næð­is­lánum, þ.e. lægstu tekju­hóp­arnir.

Þá á að grund­valla verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020. Hús­næð­is­verð hefur hækkað skarpt á und­an­förnum árum en þrátt fyrir það hefur verð­bólga verið um eða undir verð­bólgu­mark­miðum Seðla­banka Íslands. Í síð­asta mán­uði lækk­aði hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og því virk­aði hús­næð­islið­ur­inn til lækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs.

Í pakk­anum er einnig vil­yrði um að klára skoðun á því hvort að banna eigi alfarið verð­tryggð hús­næð­is­lán fyrir lok árs 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár